Stjórnvöld í Kanada og Þýskalandi ætla að auka samstarf milli þjóðanna. Þetta tilkynnti Lars Klingbeil, varakanslari Þýskalands og fjármálaráðherra, eftir fund með Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í Toronto í Kanada í gær.
Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá. Klingbeil segir að samstarfið verði á sviði gervigreindar, orkumála, mikilvægra hráefna og verkefna á sviði varnarmála. Varakanslarinn hefur einnig lagt til að Kanadamenn kaupi kafbáta af Þjóðverjum.