Sunna Ben, plötusnúður og ljósmyndari, vill að lög verði sett sem takmarki birtu bílljósa. Orðið sé erfitt að keyra á Íslandi í myrkri.„Demókratar í Bandaríkjunum virðast vera að vinna í frumvarpi til þess að setja takmarkanir á hversu björt ljós á bílum mega vera svo þau blindi ekki aðra í umferðinni og ég grrrátbið íslenska pólitíkusa um að vaða í málið!“ segir Sunna í færslu á samfélagsmiðlum.Þetta eigi ekki síst við um aðstæður á Íslandi.
Sunna grátbiður stjórnmálamenn að breyta þessu – „Algjör horror í umferðinni í myrkrinu!“