Kjörsókn í þingkosningunum á Spáni um miðjan dag var mun meiri en var í síðustu þingkosningum og að sögn þarlendra fjölmiðla er þetta mesta kjörsókn í þingkosningum frá því að lýðveldið var endurreist árið 1975.
Klukkan tvö eftir hádegi var kjörsóknin komin í 45,7 prósent, en á sama tíma í síðustu kossningum árið 2023, var kjörsókn 40,5 prósent.
Þetta boðar mögulega gott fyrir Pedro Sanchez forsætisráðherra, sem átti litla von um að halda velli miðað við síðustu skoðanakannanir. Hann hvatti fólk í morgun til að mæta á kjötstað og láta rödd sína heyrast. Það mun svo koma í ljós í kvöld hvort kjósendur séu honum hliðhollir.
Fyrirfram var talið að Lýðflokkur Alberto Núñez Feijóo yrði í lykilstöðu til að mynda stjórn eftir kosningarnar.