Gadi Eisenkot, leiðtogi Yashar-flokksins í Ísrael, hefur hafnað tilboði Benjamíns Netanjahús, starfandi forsætisráðherra, um að mynda saman stjórn og skiptast á því að gegna embættinu á næsta kjörtímabili.
Eisenkot og Netanjahú áttu í dag tveggja tíma langan fund til þess að ræða fyrirkomulagið
Fjölmiðlarnir Times of Israel og CNN vitna í heimildarmenn sem fengu upplýsingar um það sem fram fór. Þeir segja að fundinum hafi lokið án niðurstöðu um samkomulag. Engir frekari fundir hafi verið skipulagðir.
Netanjahú hugnast ekki óháð rannsókn á 7. október
Eitt af því sem heimildarmaður CNN heldur fram er að Eisenkot hafi boðið Netanjahú að mynda stjórn ef hann myndi samþykkja áætlanir um óháða rannsóknarnefnd ríkisins sem rannsaka ætti mistök í aðdraganda árása Hamas á Ísrael 7. október 2023.
Benjamín Netanjahú, sem var við völd í október 2023, hefur lagst gegn stofnun slíkrar nefndar. Hann vill að stofnuð verði nefnd sem stjórnmálamenn skipi í.
Frumvarp um nefndina var samþykkt á þingi Ísraels á miðvikudaginn en ennþá á eftir að ræða það þrisvar sinnum á þinginu áður en það verður að lögum.
Eisenkot er einn helsti andstæðingur Netanjahús og leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Hann hlaut stjórnarmyndunarumboðið eftir þingkosningar í haust og hefur frest til 6. desember til að mynda stjórn.
Hvorugri af tveimur stærstu blokkunum á þingi tókst að tryggja sér meirihluta í kosningunum sem voru í síðasta mánuði. Blokk Eisenkots fékk 48 þingsæti en blokk Netanjahús fékk 53 þingsæti.