Gefin var út appelsínugul veðurviðvörun í gærkvöld fyrir Norðurland vestra. Þrátt fyrir mikinn vindstyrk virðist allt hafa verið með kyrrum kjörum á Norðurlandi. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, staðfesti í samtali við fréttastofu að ekkert útkall hafi verið í nótt.
Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð, sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að veður þar á bæ hefði verið með fínasta móti.
Eyjólfur Þór Þórarinsson, eigandi Nautabúsins ehf., sem er staðsett skammt frá Varmárhlíð í Skagafirði, segist hafa vaknað upp um miðja nótt við vindhviður sem gengu þar yfir. Hann hafi þó kippt sér tiltölulega lítið upp við það og lagst aftur til rekkju.
„Það hvessti heldur um óttuleytið í nótt og mældist vindstyrkur um 50 metrar á sekúndu í hörðustu hviðu hér á Nautabúi. Það eru um 100 hnútar á klukkustund,“ segir hann en óttuleytið vísar til tímans rétt fyrir dögun eða snemma á morgnana og miðar oftast við um klukkan þrjú að nóttu.
„Íbúðarhúsið, sem er árinu eldra en pabbi, er mjög vandlega byggt og hefur staðið af sér storma í 98 ár og gerir vonandi lengi enn. Mér fannst Kári samt ríða hér heldur hörðu skeiði um upsir og rjáfur. Þegar hafði runnið af honum mesti móðurinn sá er fornlega glímu hans fyrir mér,“ segir Eyjólfur í skriflegu svari til fréttastofu og lætur fylgja með fallega vísu sem hann orti sjálfur við tilefnið:
Kári fögrum reið röftum,
réði né kröftum snöggtum.
Ógnin reis við óttu,
ólmaðist um nóttu,
hundrað hnúta skeið;
hart á greiðri leið.
Upsum á efst;
uppgefin sest.
Kári fögrum reið röftum,
réði né kröftum snöggtum.
Ógnin reis við óttu,
ólmaðist um nóttu,
hundrað hnúta skeið;
hart á greiðri leið.
Upsum á efst;
uppgefin sest.