Einn starfsmaður sendiskrifstofu Íslands í Freetown í Síerra Leone hefur verið fluttur heim til Íslands vegna öryggissjónarmiða.
Þetta staðfestir Ægir Þór Eysteinsson, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins, við fréttastofu, en Vísir greindi fyrst frá.
Hann segir ekki hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Samkvæmt vef utanríkisráðuneytisins hafa íslensk stjórnvöld átt í samstarfi um þróunarsamvinnu í Síerra Leóne síðan 2018. Voru fyrstu verkefni íslenskra stjórnvalda unnin í samstarfi með þarlendum stjórnvöldum og Alþjóðabankanum. Árið 2023 hélt útsent starfsfólk til starfa og var sendiráðið opnað formlega í maí 2024.