Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, ætlar að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið á laugardag.
Í færslu sinni á Facebook segir hún afstöðuna hvorki byggða á ótta né þjóðernishyggju. Hún hafi lengi trúað á alþjóðlega samstöðu alþýðufólks og fundist óþægilegt þegar fólk byggir stolt sitt á landi, fána eða þjóðerni.
„Ég hef aldrei verið gefin fyrir þjóðernishyggju,“ skrifar Sólveig Anna og rifjar meðal annars upp hvernig hún hafi séð fána og þjóðerniskennd notuð til að réttlæta stríð þegar hún bjó í Bandaríkjunum.
Elskar Ísland en syngur ekki ættjarðarlög
Sólveig Anna segist ekki myndu kalla sig stolta af því einu að vera Íslendingur og hafi lítinn áhuga á að syngja „Ísland er land þitt“.
Hún elski þó Ísland, náttúruna, söguna og þá tilfinningu að geta gengið frá fjölmennu tjaldstæði inn í ósnortið sumarland.
„Ég trúi ekki á þjóðernishyggju. En ég trúi á það að skilja hvað er þess virði að vernda, hvað er einstakt og hvað er dýrmætt. Og mér finnst þetta land dýrmætt og ég vil standa vörð um sérstöðu þess,“ segir hún.
Stolt af baráttu alþýðunnar
Sólveig Anna fer yfir fjölmarga atburði úr íslenskri sögu sem hún segist stolt af. Þar nefnir hún fyrstu kröfugöngu alþýðunnar árið 1923, Gúttóslaginn, baráttuna gegn hersetu, Búsáhaldabyltinguna og stuðning Íslendinga við Palestínumenn.
Hún leggur sérstaka áherslu á baráttu íslensks verkafólks og þann árangur sem náðst hefur með henni. Þar nefnir hún velferðarkerfið, skóla fyrir öll börn, heilsugæslu, atvinnuleysisbætur, lífeyrisréttindi, sumarfrí og rétt launafólks til að starfa í verkalýðsfélögum og leggja niður störf.
Sólveig Anna segir þennan árangur að mörgu leyti einstakan og að hann verði að verja.
„Ég ætla að segja nei í atkvæðagreiðslunni á laugardaginn. Ekki af því að ég sé hrædd eða heimsk eða þröngsýn.“