„Það er skandall að þetta hafi þurft að taka rúm þrjú ár vegna trega lögreglunnar og ákæruvaldsins til að gefa út ákæru á manninn. Þetta var sérstaklega hættuleg líkamsárás með barefli, þar sem refsiramminn er 16 ára fangelsi. Það er með ólíkindum að lögreglan og síðan saksóknari hafi ákveðið að fella málið niður,“ segir Haukur Ægir Hauksson í samtali við DV, en ríkissaksóknari hefur fellt niður ákvörðun héraðssaksóknara um að ákæra ekki Mohamad Weti, sýrlenskan skutlara, fyrir líkamsárás á Hauk, og gert héraðssaksóknara að gefa út ákæru á Mohamad í málinu.
Skutlarinn verður ákærður fyrir árás á Hauk –„Hentu mér inn í klefa eftir þetta höfuðhögg og létu mig dúsa þar í hálfan sólarhing“