Tvö hundruð og fimm Rússum og jafnmörgum Úkraínumönnum var sleppt úr haldi í morgun. Frá þessu greinir rússneska varnarmálaráðuneytið. Vika er síðan Trump Bandaríkjaforseti sagði frá því að umfangsmikil fangaskipti væru í farvatninu. Á sama tíma var tilkynnt um þriggja daga vopnahlé.
Síðan vopnahléinu lauk hefur sprengjum Rússlandshers rignt yfir Úkraínu. Tuttugu og sjö almennir borgarar hið minnsta hafa verið drepnir í árásum síðustu tveggja daga, að því er segir í frétt Reuters. Zelensky forseti Úkraínu segir Rússa hafa skotið nærri 1.600 drónum að Úkraínu í þessari umfangsmestu árásarhrinu hersins til þessa.