Nýtt sauna svæði hefur verið opnað í Sundhöll Selfoss, sem var hannað með þægindi, vellíðan og slökun að leiðarljósi. Nýja aðstaðan kostaði um 50 milljónir króna en Sveitarfélagið Árborg og World Class skipta kostnaðinum jafnt á milli sín.
Mikil ánægja er með nýja sauna svæðið, sem var opnað formlega í gær að viðstöddu fjölmenni. Það kom í hlut Björns Leifssonar, eiganda World Class, að klippa á borða og opna aðstöðuna formlega. Magnús Gísli Sveinsson, sem er forstöðumaður Sundhallar Selfoss, segir nýju aðstöðuna mjög flotta.
„Þetta er alveg ótrúlega vel heppnuð framkvæmd, það er bara svoleiðis,” segir Magnús.
En á nýja aðstaðan eftir að slá í gegn?
„Já, þetta á algjörlega eftir að slá í gegn, það er öruggt og það er alveg á hreinu, þetta er ótrúlega vel heppnað eins og ég segi og vel framkvæmt hjá Birni í World Class,” segir Magnús og bætir við.
„Við erum með mjög stóran sánuklefa og svo erum við með infrarauða sánu og kaldan pott og sturtu áður en þú ferð út í pottinn og svo gott hvíldarherbergi.“
Kostnaður við nýja sauna baðið er um 50 milljónir króna þar sem Árborg greiðir 25 milljónir og World class 25 milljónir.
Aðsókn að Sundhöll Selfoss hefur aldrei verið eins mikil og nú og á örugglega eftir að aukast með nýju sauna aðstöðunni.
„Já, hún hefur snaraukist en þegar við tókum þetta nýja hús í notkun 2009, þá komu um 240 þúsund manns og á níu árum erum við komin í 400 þúsund gesti á ári, sem er bara ansi gott held ég,” segir Magnús.
Sumarið leggst vel í Magnús og hans starfsfólk?
„Já, það gerir það, það verður gott sumar, sólskin og fólk getur komið hingað í nýju saununa og prófað, mér líst bara vel á það”, segir Magnús Gísli.