Hækkanir á máltíðum og heimsendum mat eldri borgara í Reykjavík eru eins og köld vatnsgusa, segir formaður Félags eldri borgara. Þetta lýsi vanvirðingu í garð aldraðra.
Hækkanirnar eru á dagskrá borgarráðs á morgun, en hafa þegar verið samþykktar í velferðarráði. Hver máltíð kostar nú ýmist 1.100 eða 1.190 krónur og á að hækka í 1.900 krónur 1. september.
Rosalegur biti
„Miðað við aðila sem fær mat heim á hverjum virkum degi - þá eru það 500.000. Það fer úr 300.000 úr 500.000,“ segir Sigurður Ágúst Sigurðsson formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrennis.
Það hækkar um 200.000 krónur á ári? „Já. Það er rosalegur biti.“
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður Velferðarráðs sagði í fréttum í gær að núverandi gjaldskrá væri langt undir kostnaðarverði.
Þá hefði samningur borgarinnar við fyrirtæki sem þjónustar mötuneyti ekki verið að fullu fjármagnaður af fyrri meirihluta í borgarstjórn.
Eins og köld vatnsgusa
Sigurður segir að tilbúnar máltíðir sem þessar skipti marga eldri borgara miklu máli. Margir geti ekki lengur eldað sér mat og það sé alvarlegt mál ef fólk þurfi að spara við sig máltíðir.
„Þetta er fólk sem á erfitt með að ferðast um, komast út - og þess vegna eru þau að nýta þessa þjónustu. Fá heimsendan mat. Þetta er í raun og veru köld vatnsgusa.“
Þú segir að þetta hafi komið ykkur á óvart, þú notar orð eins og köld vatnsgusa - höfðuð þið engar spurnir af þessu áður en þetta var ákveðið? „Nei, ekki neitt.“
Segir öldungaráðið sniðgengið
Að mati Sigurðar hefði átt að leggja málið fyrir öldungaráð borgarinnar, sem hann situr í, en endurvakning ráðsins og efling samstarfs við hagsmunasamtök eldra fólks er á verkefnalista nýja meirihlutans. Þar segir að því verkefni sé lokið.
„Það hefur ekki verið haldinn fundur í öldungaráði enn þá,“ segir Sigurður.
Hann segir engar spurnir hafa borist af hækkunum fyrir aðra hópa í borginni. „En ég spyr og okkar félag: hvað með starfsmenn borgarinnar? Er maturinn að hækka þar? Ég spyr.“
Finnst þér þetta lýsa einhverjum tilteknum viðhorfum í garð eldra fólks? „Já. Alger vanvirðing. Alger vanvirðing.“