Maður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra sakfelldur fyrir líkamsárás gegn dóttur sinni vegna atvika sem urðu þann 24. febrúar árið 2024.
Í ákæru var maðurinn sakaður um ofbeldisbrot í nánu sambandi en til vara líkamsárás. Hann er sagður hafa ráðist gegn dóttur sinni þegar hún var að reyna að stöðva deilur hans og eiginkonu hans, móður brotaþola, á heimili þeirra. Er hann í ákæru sagður hafa slegið hana með flötum lófa í andlitið tvisvar, tekið hana niður í gólf, sparkað í líkama hennar þar sem hún lá í gólfinu og síðan þegar hún stóð upp og reyndi að koma sér undan honum er hann sagður hafa gripið um úlnliði hennar, dregið hana til sín, ýtt henni upp við vegg svo hnakki hennar skall í vegginn, tekið hana hálstaki, náð henni aftur niður í gólfið og dregið hana eftir gólfinu með því að halda í hettu á hettupeysu sem hún var í.
Dóttirin hlaut af þessu vægan heilahristing, sprungna vör, nokkra smáa áverka í andliti, eymsli í hnakka og baki, og mar á hálsi.
Hinum ákærða föður og brotaþolanum, dóttur hans, bar saman um að hún hefði reiðst yfir rifrildi hans við móður hennar og hefði löðrungað hann. Bar þeim því saman um að hún hefði átt upptökin að átökunum. Dómurinn taldi hins vegar að viðbrögð hans við löðrungnum hefðu verið úr hófi en taldi hins vegar að ekki væri allt það meinta ofbeldi hans sem greint er frá í ákæru fullsannað. Einnig var tekið tillit til þess að ofbeldi hans gegn dótturinni hefði ekki verið endurtekið og atburðarásin tekið stuttan tíma. „Hins vegar telur dómurinn, einkum með hliðsjón af aflsmunum ákærða og brotaþola og áverkum brotaþola, viðbrögð ákærða úr öllu hófi,“ segir ennfremur í dómsniðurstöðunni.
Var hann dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til að greiða tæplega 1,3 milljónir í málskostnað.
Dóminn má lesa hér.