Tólf ára stúlku var bjargað úr höndum fimm manna í spænsku borginni Ceuta eftir að kona og móðir hennar heyrðu örvæntingarfullt öskur frá götunni um miðja nótt.
Konurnar, Nora og Rajaa, sögðu frá atvikinu í spænska sjónvarpsþættinum En Boca de Todos.
Þær voru heima um klukkan tvö um nótt þegar þær heyrðu stúlku öskra úti fyrir og fóru út til að kanna hvað væri að gerast.
Þar komu þær að fimm arabískumælandi mönnum sem höfðu umkringt 12 ára stúlkuna og voru að rífa niður um hana buxurnar.
Konurnar gripu þegar inn í og tókst móður Noru að ná stúlkunni frá mönnunum.
„Við fórum til að bjarga henni. Móðir mín náði henni frá þeim. Þeir voru fimm að níðast á 12 ára stúlku. Hún var bara lítil stelpa,“ sagði Nora þegar hún lýsti atvikinu.
Enginn lögregla kom
Eftir að stúlkunni hafði verið komið undan mönnunum hringdu konurnar í neyðarlínuna 112 og óskuðu eftir aðstoð lögreglu.
Að sögn Noru fengu þær þau svör að það væri svo mikið að gera hjá neyðarþjónustunni að ekki væri hægt að senda lögreglu á vettvang.
Þær tóku því stúlkuna sjálfar með sér og komu henni í hendur félagsþjónustunnar.
Nora sagði litlu hafa mátt muna.
„Ef við hefðum ekki hjálpað henni hefðu þeir drepið hana,“ sagði hún.
Konurnar segja jafnframt að síðar hafi þær reynt að tilkynna málið á lögreglustöðinni en að ekki hafi verið tekið við kæru.
Ótrúleg aukning kynferðisbrota
Mikil fjölgun hefur orðið á alvarlegum afbrotum í Ceuta eftir innrásina frá Marokkó í lok júlí.
Aðeins 16 kynferðisbrotamál hafa farið formlega inn í kerfið frá því innrásin hófst. Þrátt fyrir það berast dómstólum í Ceuta nú um 200 kærur vegna afbrota á dag, þar á meðal vegna kynferðisbrota, samanborið við um 20 áður.
Nútíminn sagði áður frá því að félag spænskra lögreglumanna, JUPOL, hefði lýst því að lögreglan hefði ekki undan ástandinu í Ceuta og að kynferðisárásir ættu sér stað daglega og að kerfið í Ceuta sé löngu sprungið og kærum og tilkynningum ekki sinnt sem skyldi.
Félag spænskra lögreglumanna segir kynferðisbrot daglegt brauð í Ceuta – Vargöld ríkir í borginni
Samkvæmt El Mundo hefur heildarfjöldi kæra vegna afbrota aukist um nær 900 prósent frá 30. júlí.
Málið með 12 ára stúlkuna sýnir jafnframt að raunverulegur fjöldi tilfella er líklegri til að vera enn hærri.
Sjá einnig: