Gísli Már Árnason ljósmyndari segir margar leiðir færar til að mynda sólmyrkvann. Þrátt fyrir að fólk taki myndir í rigningu komi það ekki í veg fyrir að það sjáist hvernig skuggi tunglsins þeysist yfir.
„Þá mæli ég hiklaust með svona fisheye-linsum eins og ég er með hérna eða einhverjum víðlinsum. Við þurfum ekki að vera með einhvern flókinn og dýran og tæknilegan búnað til að gera það.“
Hann segir framkvæmdina flóknari ef notast er við aðdráttarlinsur. „Þá þurfum við að vera með stjörnutracker sem eltir snúning jarðar.“
Gísli Már segir hins vegar að einfaldasta leiðin sé að nota snjallsíma og gleiðlinsustillingu til að mynda sólmyrkvann. „Víðlinsa og hreinlega taka myndskeið, eina mínútu áður en almyrkvinn skellur á og eina mínútu eftir.“
Stundum þarf sólarsíur, en ekki alltaf
Undir sumum kringumstæðum þarf að setja sólarsíu eða filter á myndavélarlinsur áður en myndir eru teknar.
„En sólin er það lítil á himninum að með víðlinsum, eins og fisheye-linsu eða 14 mm upp í 24 mm, þá þurfum við engan filter. Það er ekki nema við séum komin út í lengri brennivíddir, einhverjar aðdráttarlinsur eða jafnvel sjónauka,“ segir Gísli.
Síurnar eru hafðar meðan á deildarmyrkva stendur. „En við tökum svo síurnar af um það bil 20 sekúndum áður en almyrkvinn skellur á.“
Ekki er mælst til þess að fólk myndi sólmyrkvann með snjallsíma með því að taka nærmyndir af honum án sólarsíu.
Gísli segir að takist fólki að mynda sólina í kringum almyrkvann með aðdráttarlinsu krefjist það talsverðrar æfingar og undirbúnings. „Þá þurfa menn að vera ansi tilbúnir að breyta stillingum á vélunum vegna þess að öll þessi mismunandi fyrirbæri krefjast mismuandi lýsingartíma á myndavélum.“