Bændasamtökin kynntu skýrslu sína um möguleg áhrif aðildarviðræðna og aðildar að Evrópusambandinu á landbúnað hér á landi fyrir rúmri viku. Þar kom meðal annars fram að hugsanleg ESB- aðild væri kerfisbreyting sem hefði mikil áhrif á landbúnað. Þá kom fram að með aðild færi stór hluti ákvörðunarvalds í landbúnaðarmálum til Evrópusambandsins.
Skýrslan var til umræðu á Búnaðarþingi í dag og í kjölfarið greiddu fulltrúar bænda atkvæði um afstöðu Bændasamtakanna til málsins. Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtakanna segir næstum alla bændur á sama máli.
„Bændasamtök Íslands leggjast gegn aðild að Evrópusambandinu og áframhaldi aðildarviðræðna. Yfir 90 prósent þeirra sem kusu samþykktu þessa ályktun,“ segir Trausti.
Trausti segir að afstaðan byggist fyrst og fremst á skýrslu Bændasamtakanna og nú fari í gang fundarherferð til að kynna hana um land allt.
„Við byrjum á sunnudaginn á Akureyri þar sem við hyggjumst fræða fólk um afstöðu okkar. Á mánudaginn erum við á Egilsstöðum og á þriðjudag á Selfossi. Við ætlum að halda áfram að dýpka umræðuna um landbúnaðinn og segja frá því sem við höfum áhyggjur af,“ segir hann.
Baráttuhugur í bændum
Afstaða Búnaðarþings kemur ekki á óvart en undanfarnar vikur hefur mátt sjá letra nei á heyrúlluböggum víða um land. Eyjólfur Ingvi Bjarnason formaður sauðfjárbænda segir það lýsandi fyrir afstöðu bænda.
„Það sem gerist ef það verður farið í þetta ferli er að það skapast óvissa og óvissan er versti óvinur bænda sem þurfa að sjá vel fram í tímann til að geta skipulagt búskapinn. Það er mikill baráttuhugur gegn aðild meðal bænda,“ segir Eyjólfur.
Verði niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið önnur en bændur kjósa sé nauðsynlegt að hafa þá við samningaborðið.
„Segi þjóðin já 29. ágúst ætlast Bændasamtökin til þess að verða hluti af því samtali sem þá fer af stað,“ segir hann.