Markaðsvæðing menntunar og fall Jason Arday

Markaðsvæðing menntunar og fall Jason Arday

Markaðsvæðing menntunar og fall Jason Arday

Markaðsvæðing menntunar og fall Jason Arday

Mennt­un er orð­in vara sem þarf að mark­aðs­setja og nem­end­ur neyt­end­ur sem velja á milli sam­keppn­is­að­ila. Með því fjár­festa há­skól­ar í tákn­rænni fram­setn­ingu.

Er menntun orðin hluti af markaðsvæðingu samtímans? Þessi spurning hefur oft leitað á mig undanfarin misseri, en hvílt sérstaklega þungt á mér síðustu daga í kjölfar þess sem kalla mætti krossfestingu fræðimannsins Jasons Arday. 

Við lifum og hrærumst í svokölluðu hvítu-gagnkynhneigðu-feðraveldiskapítalisku samfélagi (e. white heteropatriarchal capitalism), þar sem upplýsingatækni hefur marktæk og afgerandi áhrif á samfélagslega umræðu. Stór hluti mannkyns mótast af neysluhyggju þar sem upplýsingum er miðlað og stýrt af altumlykjandi samfélagsmiðlum. Ákveðin viðmið er lúta að faglegum vinnubrögðum í fjölmiðlun; hlutleysi, sanngirni og upplýsingaöflun hafa verið á undanhaldi og ný sviðsmynd litið dagsins ljós er mótast fremur af magni en gæðum. Óheft upplýsingaflæði hefur opnað flóðgáttir fyrir öfgafullar skoðanir sem hafa óneitanlega ýtt undir skaðlega, hugmyndafræðilega skautun þar sem rökhyggju og almennri skynsemi er gjarnan fórnað á altari falsfrétta og innihaldslausra fullyrðinga. Eftir situr tilgangslaust samtal öfgahyggju sjónarmiða sem ná aldrei sáttum, fallast sjaldan eða aldrei á málamiðlanir en nærast þó á skaðlegri tilveru hvor annarar. Það ætti því kannski ekki að koma á óvart hve hart breskir fjölmiðlar gengu fram gegn Arday, né þau rasísku ummæli sem látin voru falla í kjölfarið. Veruleikinn er hins vegar sá að dæmin um fræðimenn sem hafa falsað gögn eða gerst sekir um ritstuld eru ótalmörg, en fá okkar þekkja nöfnin; hvað þá andlit og baksögu. Um þetta tiltekna Cambridge-mál voru aftur á móti skrifaðar yfir 250 greinar, og athyglinni var beint að einstaklingnum þótt vandinn sé í raun rótgróinn, stofnana-og menningarbundinn. 

„Athyglinni var beint að einstaklingnum þótt vandinn sé í raun rótgróinn, stofnana-og menningarbundinn“

Til að veita lesendum frekari innsýn er rétt að rekja málið í stuttu máli. Jason Atta Kwei Arday varð yngsti svarti prófessorinn í sögu Cambridge-háskóla þegar hann var ráðinn prófessor í félagsfræði menntunar við menntavísindadeild skólans (e. Faculty of Education) árið 2023. Rannsóknir hans snerust fyrst og fremst um kynþátt, ójöfnuð og menntun, með áherslu á að auka sýnileika minnihlutahópa í æðri menntun. Lofið sem hann hlaut byggðist þó ekki einungis á verðleikum hans, heldur ekki síður á bakgrunni: einhverfur drengur úr lágstétt Bretlands sem talaði ekki fyrr en ellefu ára og lærði hvorki að lesa né skrifa fyrr en átján ára, en braust engu að síður alla leið inn í eina virtustu menntastofnun heims. Sú saga var óspart nýtt í kynningarefni og fyrirsagnir háskólans. Fyrr í sumar komu síðan fram ásakanir um ritstuld í doktorsritgerð hans, fyrst frá heimspekingnum Nathan Cofnas, fyrrverandi samstarfsmanni Ardays í Cambridge. Cofnas hefur sjálfur verið bendlaður við rasískar rannsóknir þar sem hann hefur haldið því fram að í „litblindu“ kerfi myndu svartir fræðimenn hverfa úr nær öllum áberandi stöðum fyrir utan íþróttir og dægurmenningu. Ásakanirnar á hendur Arday voru teknar alvarlega og hlutu fljótt mikla umfjöllun; er leiddi til þess að hann sagði starfi sínu lausu og fannst hann látinn rúmri viku eftir að harkaleg fjölmiðlaherferð gegn honum hófst. 

Ég hef ávallt séð háskólann fyrir mér sem athvarf gegn fordómum og heimsku; stað sem er varinn af raunverulegum gildum fróðleiks og þekkingar. Auðvitað eru allar skoðanir á lofti þar eins og annars staðar, en það er notaleg tilhugsun að fá að hrærast innan einhverra skynsamlegra marka, þar sem mestu öfgarnar eru vonandi kveðnar í kútinn. Slík ímynd er hins vegar í besta falli draumkennd og í versta falli barnsleg óskhyggja. Því til að kynna sér þetta mál til hlítar þarf að líta út fyrir fréttamiðlana og horfa gagnrýnum augum á menntastofnanir nútímans; stofnanir sem eru fjötraðar af sama markaðslögmáli er stýrir nær öllum þáttum samfélagsins, þ.e. hvað selur best? 

Á síðustu áratugum hafa háskólar smám saman orðið markaðsdrifnir. Útbreiðsla háskólanáms, innleiðing skólagjalda og tilkoma gæðaröðunarlista hafa breytt háskólum í stofnanir sem keppa um nemendur, rannsóknarfé og athygli almennings. Menntun er því orðin vara sem þarf að markaðssetja og nemendur neytendur sem velja á milli samkeppnisaðila. Með því fjárfesta háskólar um of í táknrænni framsetningu. Oftar en ekki er það gert í gegnum svokallaðan tókenisma. Tókenismi er sú tilhneiging stofnana að tefla fram einstaklingi úr jaðarsettum hópi fyrst og fremst til að skapa yfirbragð fjölbreytileika og framsækni, án þess að nokkuð breytist í raun í valdakerfi eða menningu stofnunarinnar. Með þessu, sama hversu góður ásetningurinn kann að vera, eiga háskólar á hættu að gera lítið úr þeim fræðimönnum sem þeir þykjast styðja. Svartir og brúnir fræðimenn verða þá sönnun um dyggð stofnunarinnar fremur en sjálfstæðir hugsuðir sem eiga skilið að verk þeirra séu tekin alvarlega á fræðilegum forsendum. Í þessu samhengi var Arday ekki fenginn til starfa vegna verðleika sinna einna, heldur fyrst og fremst vegna þess að saga hans og ímynd hentaði stofnunni. Vert er að taka fram að hér er höfundur ekki að firra manninn allri ábyrgð en ferilskrá hans var, þegar öllu er á botninn hvolft, þunn í samanburði við það sem alla jafna er krafist fyrir prófessorstöðu við Cambridge, og slík ráðning verður illskiljanleg nema eitthvað fleira hafi vegið inn en fræðilegt framlag eitt og sér. 

„Stofnun sem hampar einu lífi sem tákn um frjálslyndi og gæsku getur, þegar á reynir, fórnað því sama lífi í þágu eigin orðspors“

Franski heimspekingurinn Michel Foucault kom fram með þá hugmynd að vald sé ekki einungis eitthvað sem beitt er að ofan, í formi laga eða kúgunar. Þess í stað sýndi hann fram á hvernig vald getur verið skapandi afl, þ.e. mótað hvað telst líf, hverjir teljast gild viðföng og hvaða tilveruform fá að blómstra. Í þessu valdaformi, sem hann nefndi lífvald (e. biopower), stjórnar valdið ekki lengur fyrst og fremst með því að drepa, heldur með því að viðhalda lífi, stýra mannfjöldanum og aga líkama. Ég tek kenningu Foucaults sérstaklega fyrir hér vegna þess að hún glímir við mótsögnina sem felst í því að nútímaríki sem hefur það hlutverk að vernda líf, réttlæti engu að síður eyðingu lífs. Foucault hélt því fram að kynþáttahyggjan væri lykillinn að þessari mótsögn. Með því að kljúfa mannkynið í „okkur“ og „hina“ umbreytir valdið drápinu í verndun. Dauði hins „óæskilega“ er endurskilgreindur sem forsenda lífsgæða heildarinnar. Foucault notaði nasistaríkið sem ýktasta dæmið, en taldi sömu rökfræði finnast víða í nútímastofnunum. Að mínu mati birtist hún nú í smækkaðri mynd innan veggja háskólans. Því stofnun sem hampar einu lífi sem tákn um frjálslyndi og gæsku getur, þegar á reynir, fórnað því sama lífi í þágu eigin orðspors og reynist það auðveldara þegar sá sem víkur er ekki hvítur. 

Við lifum á tímum upplýsingaóreiðu, þar sem sannleikurinn er á hröðu undanhaldi og öfgafullar skoðanir virðast þær einu sem eiga upp á pallborðið. Í þessu ástandi hafa háskólar verið álitnir eins konar griðastaður, þar sem mismunun líðst ekki og enginn þarf að óttast um heilsu sína vegna kynþáttar, kynvitundar eða kynhneigðar. Þessi ímynd er hins vegar sköpuð og henni haldið uppi af forréttindahópi samfélagsins, þ.e. hvítu sís-fólki. Þau fjölbreyttu vandamál sem minnihlutahópar standa enn frammi fyrir eru ekki tekin með í myndina heldur hulin eftir bestu getu. Ég hef sjálf gerst sek um að halda uppi þessari upphöfnu ímynd en mér er til efs að nokkurn tímann í mannkynssögunni hafi verið jafn rík þörf fyrir fræðigreinar á borð við félagsfræði sem veita gagnrýna og faglega nálgun á vandamál samtímans. Félagsfræðingar, sem og aðrir, verða að leggja sitt af mörkum í að magna raddir þeirra sem þaggaðar hafa verið niður, og standa vörð um háskólasamfélagið. Því eins og Foucault minnir okkur á: valdið lifir aðeins svo lengi sem það felur sig. Okkar hlutverk er að afhjúpa það. 


Höfundur er doktorsnemi í félagsfræði við University of Chicago.
#arday #fall #jason #markaðsvæðing #menntunar


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27115/markadsvaeding-menntunar-og-fall-jason-arday/

📰 Aðrar fréttir

Tæknifyrirtæki taka aðra dýfu í kauphöllum
📅 25.11.2026 👁️ 1
Tæknifyrirtæki taka aðra dýfu í kauphöllum
Gleði í kringum endurkomu Jensens Huangs virðist hafa verið skammvinn en tæknifyrirtæki tóku dýfu á ný við opnun kauphalla í dag eftir mikla hækkun á ...
„Maður getur í raun gert hvað sem er“ - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
„Maður getur í raun gert hvað sem er“ - Vísir
Þórður Hans Baldursson og Kristján Thorlacius settu nýverið í loftið Midillinn.com sem mætti lýsa sem „falsfréttasíðu“ með ýmsum kúríósum og gríni. Mi...
Sigmundur Davíð deilir skjáskoti af Vísi – Segir öfga vinstrið saka Mette um rasisma
📅 25.11.2026 👁️ 1
Sigmundur Davíð deilir skjáskoti af Vísi – Segir öfga vinstrið saka Mette um rasisma
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kallar Vísi öfga vinstri. Hann birti skjáskot af frétt Vísis um ummæli Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og ...
WEDNESDAY WEATHER: Rain Returns as Temperatures Drop Across the Canary Islands
📅 25.11.2026 👁️ 1
WEDNESDAY WEATHER: Rain Returns as Temperatures Drop Across the Canary Islands
The Canary Islands are facing a noticeable change in the weather today (Wednesday 25th November), with falling temperatures, strengthening winds and r...
Borga auka­lega fyrir sorp­hirðuna þó þau geti ekki stjórnað stað­setningu - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
Borga auka­lega fyrir sorp­hirðuna þó þau geti ekki stjórnað stað­setningu - Vísir
Í úrskurðinum segir að sorptunnur íbúanna séu 21 metra frá götunni og því hafi borgin lagt skrefagjaldið á en það nemur 10 þúsund krónum fyrir tunnu f...
Blæs í dag en hvessir hressilega á morgun
📅 25.11.2026 👁️ 1
Blæs í dag en hvessir hressilega á morgun
Útlit er fyrir nokkuð hvasst veður í dag en á morgun bætir mjög í vind og þá má búast við suðaustan- og austanhvassviðri með vætusömu veðri. Á Suðaust...
„Engan ferðamann að sækja til Tenerife til þess að koma hingað norður“
📅 25.11.2026 👁️ 1
„Engan ferðamann að sækja til Tenerife til þess að koma hingað norður“
Icelandair ætlar að hefja beint flug frá Akureyri til Tenerife næsta haust, vikulega á þriðjudögum frá 19. október til 18. apríl vorið eftir. Ætla mæt...
Fyrsta móðirin til að vera krýnd Ung­frú al­heimur - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
Fyrsta móðirin til að vera krýnd Ung­frú al­heimur - Vísir
Keppnin hófst í síðustu viku og Sigga keppti því á þriðjudag og sunnudag en komst ekki áfram á lokakvöldið í gær. Á þriðjudag fór fram þjóðbúningakepp...
Textílverkamenn fá langþráða launahækkun
📅 25.11.2026 👁️ 1
Textílverkamenn fá langþráða launahækkun
Verkamenn í fataiðnaði í Bangladess fengu í dag samþykkta 36% hækkun á lágmarkslaunum. Starfsfólkið fór í verkfall 15. nóvember og hefur mótmælt vikum...
Spólaði í hringi við verslun í Kópa­vogi - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
Spólaði í hringi við verslun í Kópa­vogi - Vísir
Í dagbók kemur fram að í morgunsárið hafi þrír gist í fangageymslu. Í dagbók segir enn fremur að tilkynnt hafi verið um grunsamlegar mannaferðir í bæð...
Keyptu notaðan sófa á Facebook - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
Keyptu notaðan sófa á Facebook - Vísir
Fréttastofu barst ábending um að endurbætur stæðu yfir á skrifstofu borgarstjóra. Í tilefni af því var skrifstofunni send skrifleg fyrirspurn um endur...
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Geymslan bíður!
📅 25.11.2026 👁️ 3
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Geymslan bíður!
Mynd Það kannast líklega flestir við þá tilfinningu að vera í miðri tiltekt.
UK sent sex offender refugee to African country in undisclosed deal
📅 25.11.2026 👁️ 2
UK sent sex offender refugee to African country in undisclosed deal
The deal is said to be the first known case of the UK government forcibly resettling a refugee permanently overseas.
Hera spacecraft investigates damage at asteroid "crash scene"
📅 25.11.2026 👁️ 1
Hera spacecraft investigates damage at asteroid "crash scene"
The mission is studying an asteroid deliberately knocked off course by a colliding spacecraft.
Racism, misogyny and homophobia remain in Met force, report finds
📅 25.11.2026 👁️ 1
Racism, misogyny and homophobia remain in Met force, report finds
A new report has found institutional racism, misogyny and homophobia still exist in the Metropolitan Police, three years after a damning review.
26 námuverkamenn fastir eftir flóð
📅 25.11.2026 👁️ 1
26 námuverkamenn fastir eftir flóð
26 námuverkamenn eru fastir í ólöglegri gullnámu á eyjunni Jövu í Indónesíu eftir að úrhellisrigning olli því að nálæg á flæddi yfir bakka sína á mánu...
Moment Chinese space mission lifts off with first Pakistan astronaut aboard
📅 25.11.2026 👁️ 3
Moment Chinese space mission lifts off with first Pakistan astronaut aboard
China launched its Shenzhou-24 space mission to bring three astronauts to its Tiangong space station.
Thomas Markle formlega ákærður fyrir vörslu barnakláms
📅 25.11.2026 👁️ 5
Thomas Markle formlega ákærður fyrir vörslu barnakláms
Thomas Markle var í gær formlega ákærður af kviðdómi í Kaliforníu fyrir tvö brot sem varða vörslu barnakláms. Búist er við því að hann verði leiddur f...
Pattstaða komin upp í gíslatöku í stórmarkaði
📅 25.11.2026 👁️ 4
Pattstaða komin upp í gíslatöku í stórmarkaði
Vopnaðir menn tóku um 30 manns í gíslingu í stórmarkaði í borginni Cartagena í Kólumbíu í gær.Pattstaða hefur staðið yfir í margar klukkustundir en lö...
Trump's Nvidia intervention ties his political fortunes to the AI boom
📅 25.11.2026 👁️ 5
Trump's Nvidia intervention ties his political fortunes to the AI boom
The US president's intercession to reinstate CEO Jensen Huang has inextricably linked their fates.
With Huang rescue, Trump riskily ties his political fortunes to Nvidia
📅 25.11.2026 👁️ 5
With Huang rescue, Trump riskily ties his political fortunes to Nvidia
The US president's intercession to reinstate CEO Jensen Huang has inextricably linked their fates.
Clashing political visions reflect a divided Spain ahead of election
📅 25.11.2026 👁️ 6
Clashing political visions reflect a divided Spain ahead of election
Sunday’s election could see a far-right party enter the Spanish government for first time.
Russia's own figures show almost 500,000 deaths in war in Ukraine
📅 25.11.2026 👁️ 6
Russia's own figures show almost 500,000 deaths in war in Ukraine
Leaked data reveal how the full-scale invasion of Ukraine has fundamentally changed mortality patterns in Russia.
Huawei sakfellt fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum
📅 25.11.2026 👁️ 8
Huawei sakfellt fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum
Bandarískur kviðdómur sakfelldi í dag tæknirisann Huawei fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum.Réttarhöldin yfir Huawei stóðu yfir í þrjá mánuði fyrir al...
US preparing to unveil new tariffs on global trading partners
📅 25.11.2026 👁️ 6
US preparing to unveil new tariffs on global trading partners
The new levies would hit many of America's biggest trading partners, including China and the EU.
US preparing to unveil plan for new tariffs on global trading partners
📅 25.11.2026 👁️ 5
US preparing to unveil plan for new tariffs on global trading partners
The new levies would hit many of America's biggest trading partners, including China and the EU.
Households braced for soaring energy bills with new price cap to be announced
📅 25.11.2026 👁️ 4
Households braced for soaring energy bills with new price cap to be announced
Domestic gas prices will rise significantly in January under regulator Ofgem's new price cap.
Household energy prices to rise by 26% in January as new price cap confirmed
📅 25.11.2026 👁️ 2
Household energy prices to rise by 26% in January as new price cap confirmed
Domestic gas prices will drive the rise which affects millions of people on variable tariffs.
Gæludýr velkomin á gjörgæsludeild
📅 24.11.2026 👁️ 4
Gæludýr velkomin á gjörgæsludeild
Það hefur þekkst á hjúkrunarheimilum í Frakklandi og víðar að fólk geti haft gæludýr hjá sér. Tilraunaverkefni stendur yfir á gjörgæsludeild spítala í...
Nágrannar flugvallar mótmæla: „Við viljum næturfrið“
📅 24.11.2026 👁️ 4
Nágrannar flugvallar mótmæla: „Við viljum næturfrið“
Meira en 200 nágrannar alþjóðaflugvallarins við Kaupmannahöfn mótmæltu fyrirhugaðri stækkun á flugvellinum fyrir utan ráðhúsið í Tårnby í dag. Einhver...
Sigga Ósk keppir á lokakvöldi Miss Universe - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Sigga Ósk keppir á lokakvöldi Miss Universe - Vísir
Keppnin fer fram í borginni San Juan í Puerto Rico þetta árið og fór undankeppni Miss Universe fram aðfaranótt mánudags. Þetta er 75. keppnin sem hald...
One in three 16 to 24-year-olds in Britain have never had sex
📅 24.11.2026 👁️ 6
One in three 16 to 24-year-olds in Britain have never had sex
More young people in Britain have never had sex, but many are sexting and watching porn. 
Thomas Markle indicted by federal grand jury in US for possessing child sex abuse images
📅 24.11.2026 👁️ 3
Thomas Markle indicted by federal grand jury in US for possessing child sex abuse images
The FBI arrested Markle on 6 November after a search of a storage unit he had allegedly rented in Los Angeles uncovered the abuse material.
Thomas Markle indicted in US for possessing child sex abuse images
📅 24.11.2026 👁️ 6
Thomas Markle indicted in US for possessing child sex abuse images
The FBI arrested Markle on 6 November after a search of a storage unit he had allegedly rented in Los Angeles uncovered the abuse material.
China-linked network using AI fakes to smear Taiwan election candidates, BBC Verify finds
📅 24.11.2026 👁️ 4
China-linked network using AI fakes to smear Taiwan election candidates, BBC Verify finds
The network attacked key figures in the ruling DPP, including President Lai and mayoral candidate Shen.
Vill að þingið þrýsti á Pútín ef Trump geti það ekki - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Vill að þingið þrýsti á Pútín ef Trump geti það ekki - Vísir
„Ef Rússarnir halda áfram að þykjast minnislausir og dæla í okkur sagnfræði í stað þess að ná fram niðurstöðum í viðræðum, mun sá tími koma að það tek...
„Raddir þeirra fá að heyrast“ - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 5
„Raddir þeirra fá að heyrast“ - Vísir
„Markmiðið er þar að stuðla að auknu samræmi, sérþekkingu og jafnræði við meðferð barnaverndarmála óháð því hvar barnið á heima,“ segir Inga Sæland, m...
Ný gögn varpa ljósi á gríðarlegt mannfall Rússa – Yfir 700 þúsund hermenn taldir hafa fallið
📅 24.11.2026 👁️ 5
Ný gögn varpa ljósi á gríðarlegt mannfall Rússa – Yfir 700 þúsund hermenn taldir hafa fallið
Rúmlega 700 þúsund rússneskir hermenn eru taldir hafa fallið í stríðinu í Úkraínu samkvæmt nýrri greiningu tveggja óháðra rússneskra fjölmiðla, Meduza...
Ministers ask public for views on changing age of consent
📅 24.11.2026 👁️ 5
Ministers ask public for views on changing age of consent
Some campaigners have argued that different limits should apply, depending on the age gap between the people involved.
Nuclear test veterans speak to BBC about search for justice
📅 24.11.2026 👁️ 5
Nuclear test veterans speak to BBC about search for justice
Andy Burnham says veterans will get 'the full truth' as he confirmed plans for an investigation into the health legacy of Britain's Cold War-era atomi...
Nuclear test veterans will get full truth, says Burnham, as he confirms independent panel
📅 24.11.2026 👁️ 4
Nuclear test veterans will get full truth, says Burnham, as he confirms independent panel
The prime minister says a Hillsborough-style independent panel will examine the health legacy of Britain's Cold War-era atomic programme.
Áform um djúpsjávarhöfn í Hvalfjarðarsveit
📅 24.11.2026 👁️ 6
Áform um djúpsjávarhöfn í Hvalfjarðarsveit
Ný djúpsjávarhöfn á að rísa í Hvalfjarðarsveit. Galtarhöfn ehf. áformar bygginguna og verkefnastjóri er Gunnar Þór Gunnarsson. Gert er ráð fyrir að hö...
Bonnie Blue heldur áfram að hneyksla – Nú með því að bjóða upp á eigin brjóstamjólk
📅 24.11.2026 👁️ 8
Bonnie Blue heldur áfram að hneyksla – Nú með því að bjóða upp á eigin brjóstamjólk
Breska klámstjarnan Bonnie Blue heldur áfram að valda usla með framgöngu sinni, nú með því bjóða ungum karlmönnum að drekka brjóstamjólkina sína. Hin ...
Íslendingar efstir vestrænna þjóða á lista sem við viljum ekki vera á
📅 24.11.2026 👁️ 7
Íslendingar efstir vestrænna þjóða á lista sem við viljum ekki vera á
Ísland er í efsta sæti vestrænna þjóða og í 20. sæti á heimsvísu í fjölda þeirra sem vinna tvær vinnur eða fleiri. Er það til merkis um að ein vinna d...
Bjóða 90% afslátt af heitu vatni en laugin stendur enn tóm
📅 24.11.2026 👁️ 7
Bjóða 90% afslátt af heitu vatni en laugin stendur enn tóm
Magnús Barðdal, sveitarstjóri Skagafjarðar, segir heilbrigðisráðherra benda á Heilbrigðisstofnun Norðurlands þegar hann leitar svara um hvort endurhæf...
Telja að áhersla á hallalaus fjárlög geti aukið niðursveiflu
📅 24.11.2026 👁️ 6
Telja að áhersla á hallalaus fjárlög geti aukið niðursveiflu
Konráð Guðjónsson hagfræðingur og Már Wolfgang Mixa, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, telja að ekki sé raunveruleg þörf á því að rík...
Augljóst að Frederiksen sé að daðra við samsæriskenningu
📅 24.11.2026 👁️ 6
Augljóst að Frederiksen sé að daðra við samsæriskenningu
„Það blasir alveg við að Mette Frederiksen slær í og úr og daðrar að einhverju leyti við kenninguna um útskiptin miklu eða The great replacement,“ seg...
Netþrjótar komist inn í kerfi CIA - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 7
Netþrjótar komist inn í kerfi CIA - Vísir
AP segir að brotist hafi verið inn í kerfi tileinkað ákveðinni tegund upplýsingaöflunar sem reiði sig á gögn sem eru þegar aðgengileg á opinberum vett...
Kalkúnum stolið í skjóli nætur - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 7
Kalkúnum stolið í skjóli nætur - Vísir
Sandra Björk Ingadóttir og Kristín Einarsdóttir áttu fuglana þrjá og bjuggu þeir í fjárhúsi í nágrenni við Garðinn. Þær eru eins konar áhugabændur og ...
Unnar hrelldi móður og son hennar – „lögga her lögga thar eg kem til thin tík“
📅 24.11.2026 👁️ 6
Unnar hrelldi móður og son hennar – „lögga her lögga thar eg kem til thin tík“
Síbrotamaðurinn Unnar Sigurður Hansen var í dag dæmdur í 2 ára og 8 mánaða fangelsi fyrir rangar sakargiftir, hótanir og ógnanir gegn mæðginum auk ítr...