Já, ráðherra!

Já, ráðherra!

Já, ráðherra!

Já, ráðherra!

FréttinAðsend grein, Erlent, Evrópusambandið, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment

Júlíus Valsson skrifar:

Já-ið sem áróðurstækni

Vorið 1934 gátu Rómarbúar hvorki keypt brauð né látið klippa sig án þess að yfirvöld héldu yfir þeim ræðu. Utan á Palazzo Braschi, höfuðstöðvum fasista, hékk andlitsmynd af Benito Mussolini á stærð við meðalstórt fjölbýlishús. Umhverfis hana blasti við sama orðið margendurtekið: SÌ.

Kjósandanum var réttur einn listi, saminn af stórráði fasista. Jáseðillinn var skreyttur fánalitunum og flokksmerkinu, en neiseðillinn autt, hvítt blað; leyndin fólst í voninni um að enginn greindi hann frá þeim þrílita. Daginn fyrir kjördag tók foringinn af öll tvímæli: „Vér fyrirlítum atkvæði greidd með einhverjum fyrirvörum í huga.“ Úrslitin urðu 99,84 prósent já. Fimmtán þúsund Ítalir völdu hvíta blaðið og þótti það hraustlega gert.

Viðreisn er ekki fasistaflokkur

Það skal tekið fram strax: Viðreisn er ekki fasistaflokkur. Ísland árið 2026 er ekki Ítalía árið 1934 og engum hefur hugkvæmst að strengja mynd af formanni Viðreisnar utan á Hörpu, enda er húsið úr gleri og ekki hannað til að bera veggspjöld. Samanburðurinn tekur því aðeins til auglýsingatækninnar. Snjallar brellur lifa höfunda sína og birtast áratugum síðar í nýjum fötum, með hreint sakavottorð.

Eitt orð fær alla athyglina

Mussolini skildi mátt einfaldleikans. Flókin spurning um stjórnskipan heillar þjóðar var soðin niður í eitt „rétt“ orð. Níutíu árum síðar kveður við kunnuglegt stef. „Veljum að vita meira,“ ritar dómsmálaráðherra Viðreisnar. „Skoðum fyrst og ákveðum svo.“ Þjóðin skal velja „samning fram yfir samningsleysi, upplýsingar fram yfir upplýsingaóreiðu“, enda kaupir enginn óskoðaða íbúð. Loks birtist aftur gamall kunninginn eftir þrettán ára hvíld: „Kíkjum í pakkann.“

Hver vill vita minna? Hvaða heilvita maður óskar sér upplýsingaóreiðu? Á meðan hefur aðalspurningin þ.e. hvort stefna beri að aðild Íslands að Evrópusambandinu, verið borin út af sviðinu og einhvers konar persónuleika– eða manngildispróf sett í hennar stað. Sá sem segir já er forvitinn og víðsýnn; hinn sem segir nei hlýtur að eiga í einhverjum vandræðum með upplýsingar.

Bandarísk rannsóknarstofnun um áróðurstækni, Institute for Propaganda Analysis (IPA), setti árið 1937 tvær auglýsingabrellur efst á blað: „glittering generalities“, orð svo skær að merkingin hverfur, og „bandwagon“, vagninn sem sagður er farinn með alla hina. Báðar prýddu múrveggi Rómar. Þær prýða nú greinasafn Viðreisnar.

Orðfæri utanríkisráðherra

Utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hefur fágað aðferðina enn frekar. „Verði niðurstaðan já, opnast dyr að samningaborði,“ ritaði hún í sumar. „Ekkert annað.“ Orðið „aðild“ hefur þarna gufað upp úr orðinu „aðildarviðræður“ og eftir stendur samningaborð með hreinum köflóttum dúk, eins og íslensku þjóðinni sé boðinn kaffisopi í Brussel.

Í þennan pakka kíkti launuð sendinefnd árin 2009 til 2013. Innihaldið reyndist regluverk sambandsins í 35 köflum. Íbúðinni fylgir húsfélag og reglur þess eru ekki til umræðu á skoðunardeginum. Innganga í ESB fylgir í öllu reglum Lissabonsáttmálans. Hann er í pakkanum.

Hræðilegar afleiðingar, nánar útskýrðar síðar

Athyglisverðust er þó úthlutun ljóss og skugga á svörin tvö. Jáið er greitt „fyrir framtíðina og börnin okkar“, segir ráðherrann; neiið hefði „hræðilegar afleiðingar“. Hverjar þær yrðu fæst þó ekki upplýst, fremur en þau rúmlega eitthundrað leyniskjöl sem hún felur í skjalaskápnum. Ráðherrann hlífir þjóðinni við smáatriðum sem gætu haldið fyrir henni vöku. Mussolini þurfti andlit á stærð við fjölbýlishús og eitt orð, en nútíminn kemst af með val á milli tveggja orða. Aðferðin er þó hin sama: hræðslan er seld í áskrift og skilmálarnir sendir eftir á.

Það kórónar allt saman að sami ráðherra sakar nú efasemdarmenn um hræðsluáróður að hætti Brexit-manna og kallar öll andmæli „upplýsingaóreiðu“. Eini skjalfesti hræðsluáróðurinn kemur þannig úr ráðuneytinu sjálfu. Ráðherrann hefur einkaleyfið og kærir eftirlíkingar. Um leið afþakkar hún kappræður og synjar Alþingi og almenningi um gögn um eigin samskipti við ESB. „Veljum að vita meira“, er þar með komið til framkvæmda: ráðherrann veit meira og hyggst halda því þannig.

Síðasta orðið

Munurinn á Reykjavík og Róm er sem betur fer afar skýr þegar inni í kjörklefann er komið. Já og nei standa á sama seðli, í sama lit, og enginn gægist yfir öxlina á þér. Auða blaðið hans Mussolinis er ekki í boði nema þá hest í ógnvekjandi ræðum ráðherranna.

Laugardaginn 29. ágúst getur þjóðin því leyft sér að hugsa málið til enda án veggspjalda.

„Þjóðin á fyrsta orðið, en líka það síðasta,“ segir utanríkisráðherra og hittir þar naglann á höfuðið. Mussolini fékk sitt síðasta orð samþykkt með 99,84 prósentum atvæða. Viðreisn verður að una lakari heimtum, því Íslendingar kunna þá list sem aldrei náði fótfestu þar suður frá sem er að svara „já, já“ við langlokum og kjósa síðan eins og þeim sjálfum sýnist.

#ráðherra


Upprunaleg slóð:
https://frettin.is/2026/08/25/ja-radherra/

📰 Aðrar fréttir

Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
📅 10.10.2026 👁️ 0
Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
The storm took direct aim at Florida and is expected to impact Alabama, Georgia, and Louisiana.
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
📅 10.10.2026 👁️ 0
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
Jarðskjálfti af stærðinni 7,7 varð í Panama í gær, um klukkan 18:00 að íslenskum tíma. Skjálftinn átti upptök sín um tíu kílómetra frá litlum bæ, Pita...
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
📅 10.10.2026 👁️ 2
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hann hafi komist að samkomulagi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um afhendingu á 300.000 tonnum af dísilolí...
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 2
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
Hasan, sem myrti þrettán manns í skotárás á Fort Hood-herstöðinni árið 2009, á að verða tekinn af lífi af aftökusveit í desember. Vance ræddi málið vi...
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
📅 09.10.2026 👁️ 2
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
Several trains to Delhi have been cancelled and dozens of metro stations are shut to stop protesters from gathering.
UK weather: a weekend of showers and sunshine ahead of warmer temperatures next week
📅 09.10.2026 👁️ 2
UK weather: a weekend of showers and sunshine ahead of warmer temperatures next week
With sunshine and showers forecast for the weekend, next week could see a return to some warmer temperatures but there will be gales for some.
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“
📅 09.10.2026 👁️ 3
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“
J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna er ekki áhugasamur um fyrirhugaða aftöku á Nidal Malik Hasan sem myrti 13 manns í herstöðinni Fort Hood í Texas á...
Þekkir þú RÚV stefin?
📅 09.10.2026 👁️ 3
Þekkir þú RÚV stefin?
Upphafsstef þáttanna sem sendir hafa verið út á rásum RÚV í gegnum tíðina eru sem greypt inn í minni þjóðarinnar.Trompetleikarinn Tumi Torfason hefur ...
Screams, haunting scenes and deadly hide-and-seek, as Celebrity Traitors heats up
📅 09.10.2026 👁️ 3
Screams, haunting scenes and deadly hide-and-seek, as Celebrity Traitors heats up
Episode four saw another contestant killed off, a ghoulish mission near a graveyard and a spooky twist.
Fréttir Vikunnar: Fimleikaæfingar Dorritar og 40 ára afmæli Stöðvar 2
📅 09.10.2026 👁️ 3
Fréttir Vikunnar: Fimleikaæfingar Dorritar og 40 ára afmæli Stöðvar 2
Bergild Festival fór yfir fréttir vikunnar í Vikunni með Gísla Marteini í kvöld. Ýmislegt bar á góma, til að mynda heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðh...
Trump's shock Russia deal highlights mounting pressure to curb fuel prices
📅 09.10.2026 👁️ 2
Trump's shock Russia deal highlights mounting pressure to curb fuel prices
The US president hopes to ease his party's pain before next month's midterm elections, writes the BBC's North America correspondent.
Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
📅 09.10.2026 👁️ 3
Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
Kolbeinn Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, gagnrýnir harðlega hvernig íslenskir fjölmiðlar fjölluðu um umdeilda rannsókn á ...
Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum
📅 09.10.2026 👁️ 3
Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum
Forspjall: Skálanes, landið, fólkið og fuglarnir
Trump rýfur einangrun Rússlands
📅 09.10.2026 👁️ 3
Trump rýfur einangrun Rússlands
Trump rýfur einangrun Rússlands Banda­ríkja­for­seti af­nem­ur við­skipta­bann Vest­ur­landa á olíu frá Rússlandi, sem átti að þvinga Vla­dimír Pútín ...
Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn
📅 09.10.2026 👁️ 3
Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn
Foreldrar fjórtán ára stúlku í Indlandi hafa verið handteknir eftir hrottalegt kynferðisbrot gagnvart henni. Faðirinn nauðgaði stúlkunni á meðan móðir...
JD Vance ætlar ekki að horfa á aftöku Hasans verði henni streymt
📅 09.10.2026 👁️ 3
JD Vance ætlar ekki að horfa á aftöku Hasans verði henni streymt
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna segist ekki ætla að horfa á aftöku Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, verði hún sýnd í beinni útsen...
Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu - Vísir
Chris Bryant, Norður-Írlandsmálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, greindi frá ákvörðuninni í kvöld. Hún kemur í kjölfar nærri tveggja vikna átakastöð...
Gengur ekki að fjöldaframleiða framandi ágenga tegund
📅 09.10.2026 👁️ 3
Gengur ekki að fjöldaframleiða framandi ágenga tegund
Minkar og menn eru til umræðu á ráðstefnu sem er haldin í Norræna húsinu og er á vegum Samtaka um dýravelferð. Samtökin vilja Ísland án loðdýraræktar ...
Three men found guilty of murdering two Australian surfer brothers and US friend
📅 09.10.2026 👁️ 3
Three men found guilty of murdering two Australian surfer brothers and US friend
The bodies of Jake and Callum Robinson and their friend Carter Rhoad were found at the bottom of a well.
Reynir Valgeirsson skrifar: Selstaðavík – landið, hafsbotninn, byggðin og versta hamfarasviðsmyndin
📅 09.10.2026 👁️ 3
Reynir Valgeirsson skrifar: Selstaðavík – landið, hafsbotninn, byggðin og versta hamfarasviðsmyndin
Forspjall: Selstaðavík, landið, hafsbotninn og byggðin:Áður en sjálf hamfarasviðsmyndin er rakin þarf að sjá staðinn fyrir sér sem eina heild. Selstað...
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins
📅 09.10.2026 👁️ 3
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins
Umboðsmaður alþingis telur ekki tilefni til að halda áfram meðferð kvörtunar sem maður nokkur lagði fram vegna andláts dóttur hans á sjúkrahúsi í ónef...
Trump samdi við Pútín um dísel - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Trump samdi við Pútín um dísel - Vísir
Bandaríkjastjórn hefur samhliða þessu slakað tímabundið á höftum á rússneskum orkufyrirtækjum svo olían komist á markað. Trump greindi frá samkomulagi...
Sóttvarnarráðstöfunum aflétt í Rússlandi
📅 09.10.2026 👁️ 3
Sóttvarnarráðstöfunum aflétt í Rússlandi
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin kallar eftir því að rússnesk stjórnvöld deili gögnum um andlát starfsmanns á rannsóknastofu. Grunur vaknaði um að hún hefð...
Aukin heilsuefling eldra fólks gæti sparað 20 milljarða á ári
📅 09.10.2026 👁️ 3
Aukin heilsuefling eldra fólks gæti sparað 20 milljarða á ári
Hægt væri að spara ríkissjóði 20 milljarða á ári með því að seinka vistun þúsund manns á hjúkrunarheimili um eitt ár.Þetta segir Janus Guðlaugsson íþr...
„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“ - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“ - Vísir
Í framsögu Magnúsar Þórs Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands, á fundinum kom fram að skólakerfið verði ekki byggt með skyndilausnum frá einu k...
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum
📅 09.10.2026 👁️ 3
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum
Fjölbragðaglímukappi í Mexíkó hefur verið handtekinn eftir að hafa tekið 75 ára gamlan dómara ólöglegu glímutaki. Dómarinn lést í kjölfarið.Miðillinn ...
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu
📅 09.10.2026 👁️ 3
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu
Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, í morgun vegna gruns um að Ölgerðin hefði gerst sek um misnotkun á markaðsrá...
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant to ban the Drumcree parade
📅 09.10.2026 👁️ 3
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant to ban the Drumcree parade
The parade has led to a stand-off between Orangemen and nationalist residents of the Garvaghy Road in Portadown lasting almost two weeks.
Vance biðlar til ungra reiðra manna - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Vance biðlar til ungra reiðra manna - Vísir
Miklu púðri hefur að undanförnu verið varið í að ná til ungra bandarískra manna og hefur JD Vance varaforseti verið fenginn sérstaklega í það verkefni...
Fordæma það að Pillay hafi fengið friðarverðlaun Nóbels
📅 09.10.2026 👁️ 3
Fordæma það að Pillay hafi fengið friðarverðlaun Nóbels
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sakar Navi Pillay, friðarverðlaunahafa Nóbels í ár, um gyðingafordóma. Pillay hefur kallað stríðsrekstur Í...
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky criticises 'gift to Putin'
📅 09.10.2026 👁️ 3
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky criticises 'gift to Putin'
Ukraine's president said allowing Russia to sell petroleum products would prolong a war that must be ended.
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky calls it a 'gift to Putin'
📅 09.10.2026 👁️ 2
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky calls it a 'gift to Putin'
Ukraine's president sharply criticised the move, calling it an "investment in war that must be ended, not prolonged".
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki
📅 09.10.2026 👁️ 4
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki
Arion banki hefur stefnt fyrirtæki, sem lítið fer fyrir og ekki virðast finnast merki um á skráðu heimilisfangi þess, til greiðslu um 83 milljóna krón...
Commentator Katie Zacharia picked as new White House press secretary
📅 09.10.2026 👁️ 4
Commentator Katie Zacharia picked as new White House press secretary
The conservative commentator currently works as a communications adviser at Trump Media & Technology Group.
Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir - Vísir
Greint er frá því í dagbók lögreglunnar að þetta hafi gerst í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi.  ...
Man arrested for allegedly setting fire to a dog in south Tenerife
📅 09.10.2026 👁️ 4
Man arrested for allegedly setting fire to a dog in south Tenerife
A man has been arrested in Adeje, south Tenerife, on suspicion of burning a dog alive, in a disturbing case that has also exposed wider concerns about...
JD Vance casts doubt on firing squad execution and says he won't watch it
📅 09.10.2026 👁️ 4
JD Vance casts doubt on firing squad execution and says he won't watch it
The planned execution of Nidal Hasan by firing squad would be the first military execution in more than 60 years.
Sigurveig I. Jónsdóttir er látin
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sigurveig I. Jónsdóttir er látin
Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, er látin 83 ára að aldri.Þetta kemur fram ...
Seldu ó­vart hjól við­skipta­vinar - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Seldu ó­vart hjól við­skipta­vinar - Vísir
Nytjamarkaðurinn lýsti eftir kaupandanum á samfélagsmiðlum í dag. Um rautt reiðhjól hafi verið að ræða sem selt hafi verið fyrir slysni enda nóg af öð...
Sigur­veig I. Jóns­dóttir er látin - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sigur­veig I. Jóns­dóttir er látin - Vísir
Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrum fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka lést í dag, 9. október. Sigurveig fæddist í Reyk...
Þing­menn laumuðust í laugina eftir lokun - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Þing­menn laumuðust í laugina eftir lokun - Vísir
Þingmenn Norðausturkjördæmis fóru í sund í Selárlaug í Vopnafirði eftir lokun í kjördæmaviku. Sveitarstjórnarfulltrúi er sagður hafa gefið leyfi fyrir...
„Skemmtilegt hvernig okkar bókmenntaflóra hefur orðið ríkari með fólki sem hefur hingað flutt“
📅 09.10.2026 👁️ 4
„Skemmtilegt hvernig okkar bókmenntaflóra hefur orðið ríkari með fólki sem hefur hingað flutt“
„Þau eru auðvitað stórkostleg og ég byrja á því að óska henni til hamingju,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, inntur ...
Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing - Vísir
„Ég get staðfest að ég heyrði í nokkrum félögum úr verkalýðshreyfingunni um þetta og sömuleiðis að ég er ekki að fara fram,“ segir Katrín í skriflegu ...
Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg
Kareem M. M. Abufarah hefur hlotið fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps með því að hafa ekið á mann á miklum hraða í bílakjallaranum við ...
Ert þú með puttann á púlsinum? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
📅 09.10.2026 👁️ 4
Ert þú með puttann á púlsinum? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
Hér eru tíu spurningar úr fréttum vikunnar. Veistu hvaða bandaríski ráðherra kom í heimsókn til Íslands, hvaða land ætlar ekki að taka þátt í Eurovisi...
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 gengur út á að Íslendingar séu jafnsettir öðrum borgurum EES
📅 09.10.2026 👁️ 4
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 gengur út á að Íslendingar séu jafnsettir öðrum borgurum EES
Það er alveg ljóst að bókun 35 tekur aðeins til jafnsettra laga, þ.e.
Hrafnhildur hafði ekki áhyggjur af fæðingarblettinum en svo kom annað í ljós
📅 09.10.2026 👁️ 4
Hrafnhildur hafði ekki áhyggjur af fæðingarblettinum en svo kom annað í ljós
„Ég var í rauninni bara mjög heppin,“ segir Hrafnhildur sem greindist með sortuæxli.
Bein út­sending: Af minkum og mönnum - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Bein út­sending: Af minkum og mönnum - Vísir
Málþingið hefst klukkan 17 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan. „Á dagskrá verða erindi íslenskra og erlendra sérfræð...
Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar - Vísir
Þátturinn hefst klukkan 19:20 á Sýn og Vísi. Það verður nóg um að vera í þættinum þar sem margar af ástsælustu sjónvarpsstjörnum landsins rifja upp gó...
Þingmenn stálust í sund eftir lokun í kjördæmaviku
📅 09.10.2026 👁️ 4
Þingmenn stálust í sund eftir lokun í kjördæmaviku
Nokkrir þingmenn Norðausturkjördæmis skelltu sér í sund eftir lokun í Selárlaug í Vopnafirði í kjördæmaviku Alþingis í síðustu viku. Einn þeirra segir...