Íbúðarverð, greiðslumat og ESB

Jón Magnússon skrifar:
Því er haldið fram í áróðri þeirra sem vilja ánetjast ESB, að einfaldara sé fyrir ungt fólk að fá greiðslumat á ESB svæðinu en hér á landi og því séu það hagsmunir unga fólksins að segja já því þá opnist lánamöguleikar sem nú séu ekki í boði.
Þetta er alrangt. Ísland er með sömu reglur og viðmið og ESB löndin varðandi greiðslumat skv. tilskipunum ESB um neytendalán (Consumer Credit directive) og fasteignalán (Mortgage Credit Directive)
Við höfum þó ákveðna möguleika á að gera breytingar sjálf, en það er Kristrúnu Frostadóttur og ríkisstjórnar hennar að ganga í það mál og breyta greiðslumatinu til hagsbóta fyrir neytendur. Því fer fjarri að íslenskir neytendur fái betri stöðu varðandi greiðslumat en nú er,ef við göngum í ESB. Sá áróður já samtakanna er alrangur.
Þá er því haldið fram að íbúðarverð sé hér hærra en í ESB ríkjunum. Það er líka rangt, en fer að sjálfsögðu eftir þjóðlöndum og staðsetningu eigna. Því fer fjarri að það séu samræmd verð íbúða í ESB lægri en á Íslandi. Í dag eru t.d. sambærilegar 3. herbergja íbúðir dýrari í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi en í Reykjavík.
Niðurstaðan er því sú, að það er erfiðara að fjárfesta í þriggja herbergja íbúð fyrir ungt fólk í Svíþjóð eða Danmörku en á Íslandi. Hagsmunir unga fólksins eru ekki af þessum ástæðum að ganga í ESB.
Þeir sem hafa slæman málstað grípa iðulega til að skrökva eða segja hálfsannleika sem stundum er verri en lygi. Já samtökin virðast vera í þeim ham hvað þetta varðar.
Svarið við svona upplýsingaóreiðu,rangfærslana og lygi er að koma í veg fyrir að ættjarðarlausa fólkið nái að selja landið dýrt. Við höfnum allri landssölu.
Þess vegna segjum við NEI á laugardaginn kemur.