Samfélag gyðinga á Íslandi hyggst opna menningarhús sitt fyrir gestum og gangandi á næstunni. Menningarhúsið, sem um árabil var þekkt sem Framsóknarhúsið, stendur við Hverfisgötu.
Að sögn Avrahams Feldmans rabbína hefur söfnuðurinn haft húsið á leigu í nær tvö ár og unnið að umfangsmiklum endurbótum á því. Þegar hefur verið klippt á borða sem markar opnun hússins en Avraham segir að í næsta mánuði verði einstakir hlutar þess opnaðir í áföngum.
„Við hyggjumst opna sýningu þar sem gerð verða skil lífi gyðinga á Íslandi en saga þeirra hér á landi spannar meira en hundrað ár. Þar verða sögulegar ljósmyndir og gögn sem varpa ljósi á líf gyðinga á Íslandi. Við teljum að þetta sé frábært tækifæri til að kynnast menningu gyðinga,“ segir Avraham.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.