Frumvarp allsherjar- og menntamálanefndar um brottvísunarstöð var samþykkt með hraði á Alþingi. Frumvarpið var lagt fram í gær og fór í gegnum þrjár umræður áður en það var samþykkt í gærkvöld.
Þingið samþykkti lög um brottvísunarstöð í fyrra og átti hún að taka til starfa 1. desember. Erfiðlega hefur gengið að finna húsnæði undir stöðina á Suðurnesjum og því þurfti að fresta gildistökunni. Nú gert ráð fyrir að stöðin taki til starfa 1. desember á næsta ári.
Þingmenn Framsóknarflokks sátu hjá við atkvæðagreiðsluna en þingmenn allra annarra flokka greiddu atkvæði með frumvarpinu.