Mikið kapp er lagt á að Akureyrarkirkja skarti sínum allra besta búningi árið 2040 þegar hún verður 100 ára. Mikið viðhald er á döfinni sem gæti reynst kostnaðarsamt.
„Það þarf nú meðal annars að skipta um gólfið hérna í kirkjunni. Það þarf að laga glugga, það þarf að gera við orgelið og það þarf að laga loftræstinguna í kirkjunni,“ segir Hildur Eir Bolladóttir, sóknarprestur á Akureyri. Hún segir einnig tímabært að skipta um eldhús í safnaðarheimilinu en það er mikið notað undir erfidrykkjur og annað slíkt. Þá þarf einnig að gera við gluggana sem einkenna kirkjuna og mögulega flytja þá úr landi til þess.
Gróflega áætlað gæti kostnaður verið um 500 milljónir við öll verkin sem fram undan eru í kirkjunni. Búið er að stofna hollvinasamtök, vini Akureyrarkirkju, til þess að aðstoða með kostnaðinn við framkvæmdirnar. Gera má ráð fyrir að eitthvað rask verði á starfi kirkjunnar þegar stærstu framkvæmdirnar fara af stað. Hildur segir kirkjuna þýðingarmikla og táknræna fyrir Akureyringa.
„Svo er hún náttúrulega tákn bæjarins. Það eru ekki fluttar fréttir, hvorki af einhverjum gleðilegum atburði á Akureyri eða fíkniefnafundi, að mynd af Akureyrarkirkju fylgi með,“ segir Hildur. Hún segir að velja verði tímann vel þegar farið verður í viðhald, m.a. á gólfinu. Best sé að gera það þegar rólegt er um að vera í kirkjunni: „Það er kannski ekki gáfulegt að byrja að rífa upp gólfið á aðfangadag þegar við eigum von á 500 gestum.“
Viðgerð á orgelinu flókin og kostnaðarsöm
Orgelið í Akureyrarkirkju var upphaflega smíðað 1961. Kirkjan er í samstarfi við ungverskan orgelsmið til þess að sinna viðhaldinu. Kostnaðurinn við lagfæringuna gæti numið 50 milljónum króna og verkið er ekki einfalt.
„Hérna sjáum við hluta af rafmagnsstýringu orgelsins. Þetta er bara því miður kerfi sem er komið til ára sinna og farið að bila sem getur auðvitað verið mjög hvimleitt í helgihaldi og tónleikahaldi kirkjunnar,“ segir Þorvaldur Örn Davíðsson, organisti í Akureyrarkirkju.
Fyrir utan miklar viðgerðir þarf líka að þrífa orgelið, sem er ekki einfalt verk.
„Þið sjáið hérna hvernig það er farið að gefa sig hérna málmurinn, þær síga með tímanum. Það er hægt að gera við þetta en þá til hversu langs tíma. Þá mun líka nýtt gólf í kirkjunni bæta hljómburðinn og hljóðvistina hérna innandyra, sem er mjög spennandi.“