Eldur kviknaði í bíl á horni Furumels og Víðimels í Vesturbæ Reykjavíkur í morgun. Bíllinn varð alelda og steig mikill svartur reykur til himins. Slökkviliðsmenn voru fljótir á vettvang og slökktu eldinn. Enginn slasaðist.
Reykurinn steig til himins og mátti sjá hann víða að. Eldurinn náði þó ekki að breiðast út.