Maðurinn sem féll út í Jöklu við Stuðlagil í gær fannst látinn í ánni á tíunda tímanum í gærkvöldi. Frá þessu er greint í tilkynningu Lögreglustjórans á Austurlandi.Fjölmennt lið björgunaraðila kom að leitinni, eða um 100 manns. Maðurinn sem lést er erlendur ferðamaður á fertugsaldri.Aðstandendur hafa verið upplýstir um slysið og er hugur viðbragðsaðila hjá þeim sem eiga núna um sárt að binda. Frekari upplýsingar er ekki hægt að gefa að svo stöddu.
Banaslys í Stuðlagili