„Ekki það að maður hafi ekki átt von á þessu, hún var orðin 80. En ég fékk bara vá ókei, risi er fallinn.“
Þetta voru fyrstu viðbrögð Arnars Eggerts Thoroddsens tónlistarfræðings við fregnunum af andláti Dolly Parton fyrr í dag. Hún var ein ástsælasta kántrítónlistarkona heims.
„Hún nær að búa til og knýja fram einstaka stöðu í heimi popps og rokks og kántrís sem eru heimar sem eru mjög karllægir og karlrembulegir,“ segir Arnar og bætir við að þrátt fyrir að hún hafi sjálf hafnað því að vera femínískt tákn var hún það engu að síður.
Hafði stjórn á eigin ferli
Beðinn um að setja frægðarsól Dolly Parton í nútímasamhengi segir hann að líkja megi vinsældum hennar við vinsældir Taylor Swift í dag.
„Hún seldi gríðarlega mikið af plötum, samdi gríðarlega mikið af lögum. Fyrir mann af minni kynslóð hefur hún alltaf verið nálæg einhvern veginn. Að syngja, í bíómyndum, keyrandi Dollywood-skemmtigarðinn sinn. Hún er skemmti- og afþreyingarmenningargoðsögn.“
Arnar segir Dolly Parton hafa gert margt sem ekki þekktist áður. Hún hafi meðal annars haldið vel utan um eigin réttindi og haft stjórn á eigin ferli og ímynd. Hún hafi tekið algjört vald á því hvernig hennar kvenleiki birtist.
„Hún var rosalega sterk og gaf ekki þumlung eftir þegar hún var að keyra sinn feril,“ segir Arnar.
Þá hafi hún verið ótrúlegur lagasmiður sem stórstjörnur nútímans líti upp til.
Jolene í uppáhaldi
Arnar er sjálfur fæddur árið 1974, ári eftir að Jolene, frægasta lag Dolly, kom út og sleit því barnskónum á þeim tíma sem frægðarsól hennar reis hvað hæst.
„Ég kynnist henni í gegnum einhverjar jólaplötur með Kenny Rodgers og í gegnum gamanmyndir. Ég kynnist henni þegar hún er orðin meiri poppstjarna.“
Hann segir að uppáhaldsminningar sínar um Dolly Parton hverfist í kringum hennar þekktasta lag, Jolene.
„Þegar maður hlustar á Jolene og textann þar. Þetta er bara stórkostlegt lag og ég fæ alltaf gæsahúð þegar ég heyri það,“ segir Arnar.