Svavar Knútur gerir lítið úr kvörtunum kvenna í frisbígolfi og gefur í skyn að þar skipti líkamlegir yfirburði litlu
Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur hefur sett inn færslu þar sem hann gerir grín að umræðu um trans konur í kvennaflokki í frisbígolfs á Íslandi. Hann segir gagnrýni á þátttöku þeirra byggða á fordómum frekar en raunverulegum áhyggjum af íþróttinni sjálfri.
Í færslunni lýsir Svavar samtali við einstakling sem hafi haldið því fram að trans konur væru að „sölsa undir sig“ kvennaíþróttir hér á landi. Eftir að hafa rætt málin og grafað dýpra, segir Svavar að umræðan á endanum snúist um frisbígolf, sem honum þótti segja sitt um málstaðinn.
Auglýsing„Ekki kúluvarp, ekki glíma, ekki hand-, körfu- eða fótbolti… Frisbígolf,“ skrifar hann og bætir kaldhæðnislega við:
„Frisbígolf. Vissulega íþrótt þar sem líkamlegur styrkur og massi spila gríðarlegt hlutverk… Einmitt..“
Svavar segist sjálfur ekki einu sinni hafa vitað að keppt væri í kynjaflokkum í frisbígolfi og segir umræðuna hafa endað í því sem hann kallaði samskiptalegum botnlanga. Hann heldur því fram að andstaða við trans þátttakendur byggist í raun á vanlíðan eða fordómum gagnvart trans fólki frekar en umhyggju fyrir kvennaíþróttum.
Keppandi í frisbígolfi segir líkamlega burði gífurlega mikilvæga
Færslan vakti nokkur viðbrögð en þegar þetta er skrifað virðist Svavar haf eytt þeim ummælum sem voru honum ósammála.
„Ó, gleymdi að segja að ég er orðinn miskunnarlaus með það að eyða og blokka fávitum,“ skrifar Svavar.
„Líffræðileg kona hafi ekki unnið Íslandsmeistaratitil í kvennaflokki frisbígolfs í um áratug“
Meðal þeirra sem svöruðu var Haukur Bragason sem sagðist vilja útskýra málið frá sjónarhóli manns sem keppir sjálfur í frisbígolfi. Haukur segir Svavar gera of lítið úr líkamlega þættinum í íþróttinni og bendir á að frisbígolf sé mun líkamlegra en hefðbundið golf.
„Þetta er ekki einhver dúllusveifla eins og frisbí á ströndinni, maður setur allan líkamann í sveifluna með tilhlaupi,“ skrifar hann og bætir við að karlar kasti almennt mun lengra en konur í íþróttinni.
Einnig hafnar Haukur því að árangur trans kvenna í íslensku frisbígolfi sé sönnun fyrir kerfisbundnum yfirburðum. Hann segir annan af umræddum trans keppandann hafa verið mjög hæfa á sínum tíma en að nú séu margar „cis“ konur orðnar sterkari leikmenn en hún hafi verið.
Um núverandi ríkjandi Íslandsmeistara segir hann að yfirburðir hans skýrist fyrst og fremst af mikilli æfingu, leikskilningi og metnaði.
„Ég hef aldrei nokkurn tíma kynnst manneskju sem veit jafn mikið um íþróttina, leggur sig eins mikið fram við æfingar eða eyðir eins miklum tíma í að bæta sig,“ skrifar Haukur.
Nútíminn fjallaði áður um málið
Nútíminn hefur áður birt aðsendar greinar þar sem bent var á að líffræðileg kona hafi ekki unnið Íslandsmeistaratitil í kvennaflokki frisbígolfs í um áratug.
Líffræðileg kona ekki unnið Íslandsmeistaratitilinn í frisbígolfi í áratug
Í þeirri grein eftir Helgu Dögg Sverrisdóttur, var bent á að tveir trans keppendur hefðu skipt með sér titlum undanfarin tíu ár og því haldið fram að það hefði áhrif á þátttöku og stöðu kvenna í greininni.
Þar var jafnframt kallað eftir því að Íþróttasamband Íslands og Íslenska frisbígolfssambandið settu skýrari reglur um þátttöku í kvennaflokkum.
Ekki náðist í Svavar við gerð fréttarinnar.
Auglýsing