Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum en þar segir að verið sé að kanna orsök rafmagnsleysisins. Það geti einnig haft áhrif á netsamband og afhendingu heits vatns, sér í lagi ofarlega í hæðum.
„Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningunni.