„Mean girls“-stemning í munn­legu prófi við HÍ - Vísir

„Mean girls“-stemning í munn­legu prófi við HÍ - Vísir

„Mean girls“-stemning í munn­legu prófi við HÍ - Vísir

Af þeim 45 nem­endum sem þreyttu munn­legt próf í áfanganum Inn­gangur að for­eldrafræðslu og upp­eldis­ráðgjöf féllu 23 á haustönn 2025. „Mér hefur verið heitt í hamsi yfir þessu máli lengi, get ekki setið á þessu og bara verð að koma þessu í um­ræðuna,“ segir Kristrún sem féll í áfanganum sem kenndur er í upp­eldis- og menntunar­fræði við Háskóla Ís­lands.

Hún furðar sig á því að jafn hátt fall­hlut­fall skuli ekki vekja upp spurningar auk þess sem hún og fleiri hafi upp­lifað fram­komu kennara og próf­dómara niður­lægjandi og hafi jafn­vel haft á til­finningunni að verið væri að reyna að bregða fyrir þau fæti. 

Kristrún segist hafa fengið mun meiri viðbrögð en hún átti von á eftir að hún hellti úr skálum reiði sinnar á Face­book og þá ekki síst frá fólki sem hafi setið þennan áfanga í gegnum tíðina og tengi við upp­lifun hennar.

„Þetta eru allt konur sem hafa skrifað at­huga­semdir eða sent mér persónu­leg skila­boð um að þær deili þessari reynslu. Nokkrar lýstu síðan sér­stak­lega ánægju með að ég væri að tala um þetta. Ég væri að lýsa þeirra upp­lifun en ein­hvern veginn hefði aldrei neinn látið í sér heyra.

Sú sem fer lengst aftur í tíma upp­lifði þetta 2009 og önnur sem fór í þennan áfanga 2015 hafði nákvæm­lega sömu sögu að segja. Þannig að maður hugsar bara: Ókei, hún er bara búin að fá að kenna þetta svona í mörg ár og enginn hefur sagt eða gert neitt.“

Kristrún telur því ljóst að um rót­gróin vanda sé að ræða þótt hún sé lík­lega sú fyrsta sem stigi fram opin­ber­lega. „Þannig að á sama tíma og mér finnst þetta mjög leiðin­legt þá er ég ánægð með að hafa komið þessu í um­ræðuna.“

Munn­legt ung­linga­drama

Þegar Kristrún lýsir upp­lifun sinni af prófinu segist hún hafa mætt viðmóti, augn­gotum og svip­brigðum, sem henni fannst niðrandi og hefði mátt upp­lifa eins og persónu­leg óvild lægi þar undir.

„Mér leið svona svolítið eins og ég væri að reyna að koma mér inn í ein­hvern vina­hóp í ung­linga­deildinni, eða eitt­hvað,“ segir hún. Eins og hún væri lúða­lega stelpan að reyna að komast í „mean girls“-gengið.

„Þetta var bara nákvæm­lega þannig. Væbið var ekki gott, eins og maður segir á góðri ís­lensku. Mér fannst ég alveg geggjuð þegar ég var búin að fara með mitt mál í prófinu en svo runnu bara á mig tvær grímur þegar ég tók eftir viðbrögðum þeirra. Þannig að mín upp­lifun er bara að þær hafi verið að reyna að fella okkur.

Kristrún segir upplifunina í munnlega prófinu hafa verið svipaða því þegar Lindsay Lohan reyndi að hljóta náð fyrir augum stelpugengisins í kvikmyndinni Mean Girls frá 2004.

Mér leið í al­vörunni eins og þær væru að reyna að rugla mig með spurningu sem ég taldi mig hafa svarað áður og ef ekki þá sagðist ég ekki vera með svar við þessari spurningu. Þá lá bara við að þær flissuðu og sendu mig svo bara út eftir það.“

Söng og talaði við sjálfa sig

Kristrún segist eiga erfitt með utan­bókarlær­dóm og hún hafi því brugðið á það ráð að semja lög upp úr náms­efninu og festi það í minni með því að syngja lögin fyrir sjálfa sig.

„Ég er þannig að ég hef svona tón­listar­greind, ef svo má að orði komast, og á mjög auðvelt með að læra laglínur og texta. Þannig að ég hef notað þessa að­ferð eftir að ég varð full­orðin og bara syng, syng og syng,“ segir Kristrún og bendir á að með til­komu gervi­greindarinnar hafi þessar minnis tónsmíðar hennar orðið enn auðveldari því rödd hennar sé eina hljóðfærið sem hún kann al­menni­lega á.

„Og í þessu til­felli gerði ég ein­mitt lag um hvert einasta þema sem að gæti komið upp á prófinu og setti allt sem ég þurfti að læra í söng­texta.“ Hún segir texta­smíðina ekkert endi­lega hafa verið neitt frábæra enda til­gangurinn fyrst og fremst að auðvelda henni að læra inni­haldið.

„Síðan reyndi ég að hafa smá fjöl­breytni í þessu svo ég fengi ekki ógeð á lögunum,“ segir Kristrún sem valdi þannig efnis­flokkum mis­munandi takt, stíl og tón­tegund og spilaði þau síðan ítrekað af persónu­legum laga­lista á Spoti­fy. „Mér finnst þetta al­gjör snilld vegna þess að ein­hvern veginn kann ég bara texta allra laga sem ég hef ein­hvern tímann heyrt.“

Úreltur páfa­gaukur

Kristrún lét ekki staðar numið þarna því hún tók einnig upp „hlað­varpsþætti“ þar sem hún æfði sig í að út­skýra náms­efnið fyrir sjálfri sér með eigin orðum og festi það síðan betur í minni sem sinn eini en ein­beitti og áhuga­sami hlustandi.

„Ég lærði ekkert eðli­lega mikið fyrir þetta próf og fæ það svo í and­litið í prófinu að það líti út fyrir að ég hafi ekki lesið mikið þegar þær voru nýbúnar að segja hið gagnstæða.

Þá hafi komið flatt upp á hana þegar hún var gagn­rýnd fyrir að gera of mikið af því að endur­segja náms­efnið með eigin orðum. Ekki síst þar sem eitt það helsta sem í náminu hafi al­mennt verið vísað til rannsókna sem sýni fram á gagns­leysi svo­kallaðs páfa­gaukalær­dóms.

Sama svarið bæði rétt og rangt

Þegar nem­endurnir ræddu upp­lifunina af prófinu sín á milli leið ein­hverjum eins og reynt hafi verið að leggja fyrir þau gildrur. „Ég veit til dæmis að það voru stelpur sem fengu sömu spurninguna og svöruðu eins en bara önnur þeirra fékk rétt fyrir svarið.“

Kristrún segir hegðun kennarans og próf­dómarans hafa verið mjög ein­kenni­lega. „En sem betur fer er þetta eina slæma reynslan mín af náminu þarna sem hefur annars bara verið frábært og ein­mitt þess vegna er svo erfitt að sætta sig við að sam­eigin­leg reynsla stórs hóps nem­enda fái ekki þann hljóm­grunn sem hún á skilið.“

Óánægðustu nem­endurnir kærðu fram­kvæmd prófsins form­lega í desember og bentu þá meðal annars á óljósar mat­skröfur, skort á gagnsæi og fyrr­nefnda óásættan­lega fram­komu kennara og próf­dómara. Þá kröfðust nem­endurnir þess að komið yrði til móts við þá í þeirri stöðu sem væri komin upp.

„Við vorum svo bara að fá úr þessu skorið í síðustu viku og niður­staða háskólaráðs verður til þess að nokkrar stelpur sem áttu að út­skrifast með mér núna í júní ná því ekki,“ segir Kristrún og bætir við að háskólaráð haldi þannig niður­lægingunni áfram. Kröfum nem­enda um breytt náms­mat sé hafnað og „ömur­leg fram­koma kennara og próf­dómara í garð nem­enda“ ekki viður­kennd á nokkurn hátt.

„Ein ástæðan fyrir því að ég vil vekja at­hygli á þessu er að ég veit að við erum ekki fyrsti hópurinn sem hefur virki­lega slæma reynslu af þessum áfanga og þessum kennara og það hefur verið bent á það áður og það hefur ekki verið tekið til­lit til þess.“

Al­gjört bull

Kristrún segir að flestar þær sem kærðu vilji meina að þær hafi staðið sig vel í prófinu. „Við áttum ekkert að fá tíu en okkur finnst virki­lega ein­kenni­legt að hafa verið felldar. Þarna eru nem­endur sem eru með um eða yfir 9 í meðal­ein­kunn í náminu þannig að þetta er bara al­gjört bull.

Ég er, þótt ég segi sjálf frá, fyrir­myndar­nemandi og sinni náminu vel og ég veit að það á við hinar stelpurnar líka. Þannig að þetta er mjög skrítið. Þrátt fyrir að hafa talið upp allar reglurnar, tengt þær við náms­efnið og talið mig sýna fram á skilning á efninu fékk ég ein­kunnina 4,5 og féll þar með í áfanganum.

Þegar ég hóf þriðja námsárið var heildar meðal­ein­kunn mín í náminu yfir 9 og hún er það enn í dag.“ Kristrún segist hafa „tekið fallið á kassann“ og ekki hafa tekið prófið aftur.

„Ég treysti mér ekki í það. Í fyrsta lagi treysti ég því ekki að ég myndi vita meira í annað skiptið. Ég lærði svo mikið fyrir þetta í fyrra skiptið og það var ekki nóg. Í öðru lagi treysti ég því ekki að ég gæti verið mál­efna­leg í sam­skiptum við kennarann og treysti mér ekki í þær aðstæður.

Varað við von­brigðum

Kristrún segist hafa vonast til þess að eitt­hvað myndi koma út úr kærumálinu. „Mér fannst það eigin­lega bara svolítið borð­leggjandi miðað við hvað við erum mörg,“ segir hún og bætir við að málið sé flókið og erfitt því nem­endurnir hafi verið einir inni með kennaranum og próf­dómara. Þetta sé því orð gegn orði og lítið sé um hald­bær gögn máli nem­enda til stuðnings.

„Þannig að ég vil að þetta verði lagað og það fyrsta sem ætti kannski að breyta er bara að ef það eru munn­leg próf þá bara verður að vera upp­taka. Þá væri þetta ekkert vafa­mál.

Kristrún bindur vonir við að í framtíðinni getur nem­endur treyst því að ábendingum þeirra um at­riði sem þau telja ekki samræmast gildum skólans verði teknar al­var­lega og fái við­eig­andi um­fjöllun.

Úr því sem komið er geti hún og sam­nem­endur hennar þó ekkert gert. „Nema bara reyna að vekja at­hygli á þessu og vara nem­endur við því að skrá sig í áfangann Inn­gangur að for­eldrafræðslu og upp­eldis­ráðgjöf FFU101M þangað til það verður tryggt að þetta endur­taki sig ekki.“

#girls #mean #munnlegu #prófi #stemning


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262881900d/-mean-girls-stemning-i-munnlegu-profi-vid-hi

📰 Aðrar fréttir

Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
📅 03.10.2026 👁️ 1
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
Umboðsmaður Alþingis hefur upplýst atvinnuvegaráðuneytið um að til skoðunar sé að embættið taki upp frumkvæðisathugun vegna ítrekaðra kvartana yfir þe...
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
📅 03.10.2026 👁️ 1
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
Gunna Dís og Fannar Sveinsson, sem stýrðu skemmtidagskrá í söfnunarþætti fyrir endurbætur á Reykjalundi slógu á létta strengi í viðtali við Svein Guðm...
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
📅 03.10.2026 👁️ 1
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
Pike survived two lethal injections on Wednesday and is currently in critical condition in hospital.
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
Þremenningarnir Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Steindi Jr. hafa gert það að árlegri hefð að halda bingó á haustin og í ár verður engin breyting á....
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
📅 03.10.2026 👁️ 1
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
Aðeins um 2% bandarískra heimila greiddu fyrir gervigreindarþjónustu í apríl síðastliðnum, samkvæmt nýrri samantekt fjárfestingarfélagsins Andreessen ...
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
📅 03.10.2026 👁️ 1
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
Fréttastofa RÚV hlýtur töluverða gagnrýni á Facebook-síðu sinni fyrir að birta mynd frá Jökuldal þar sem alvarlegt umferðarslys átti sér stað fyrr í d...
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
📅 03.10.2026 👁️ 1
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega Alma Möller heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur rætt við Ingu Sæ­land fé­lags­mála­ráð­herra um óljós mörk á ...
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
Samkvæmt greiningu sem sambandið fékk hagfræðing frá Context til að gera eru tekjur ríkissjóðs sem rekja má til Austurlands 54,2 milljarðar á ári en ú...
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Mótmælendur kalla eftir betri löggjöf fyrir leigjendur en tillögur ríkisstjórnarinnar gegn húsnæðiskre...
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
Gul viðvörun er í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum. Á vef Veðurstofu Íslands segir að síðustu dagar hafi verið mjög úrkomusamir víða...
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
📅 03.10.2026 👁️ 1
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
„Sumir segja að hún hafi bara þjónað vel. Ég held að það sé hægt að breyta. Ég hef bent á það að ég vilji sjá eina löggjöf,“ segir Gylfi Dalmann Aðals...
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
📅 03.10.2026 👁️ 2
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
Ökukennari í Rangárvallasýslu furðar sig á þeirri ákvörðun Samgöngustofu og Frumherja að hætta að leyfa þeim sem eru að læra á bíl að taka ökupróf, ve...
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
Greint var frá rannsókninni á Vísi en hún er unnin af alþjóðlegri hugveitu að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og er sú fyrsta sinnar tegundar. Um ...
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
📅 03.10.2026 👁️ 2
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
Mynd Það skiptir máli hvort stjórnað er af félagshyggju eða frjá
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
Nanna er rafmagnsverkfræðingur og stofnaði Knittable til að hjálpa prjónurum að vera sjálfstæðari í sköpun sinni með hjálp tækni. Thelma er fatahönnuð...
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
📅 03.10.2026 👁️ 2
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
Um klukkan hálf tólf í dag barst lögreglu á Austurlandi tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Þetta kemur fram í tilky...
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út að Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi vegna alvarlegs hópslyss. Hópslysaáætlun var virkjuð.Átt...
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
Langtímaatvinnuleysi er að aukast, segir forseti ASÍ sem telur stýrivexti Seðlabankans koma niður á samfélaginu öllu. Formaður efnahags- og viðskiptan...
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
📅 03.10.2026 👁️ 2
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
Shoko Kawata vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar hún tilkynnti að hún hygðist taka sér fæðingarorlof, fyrst allra bæjarstjóra í Japan. Fyrir ákvörð...
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
Kristrún miðlæg í starfsaftökum Fréttin3. október 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Starfsaftökur í stjórnarráð...
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
📅 03.10.2026 👁️ 2
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
The This Morning presenter said she believes she experienced a panic attack on Friday's show.
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
Truflun veldur því að ekki virkar að uppfæra stafræn ökuskírteini í Ísland.is smáforritinu um þessar mundir. Stafrænu ökuskírteinin eru því ekki nothæ...
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
Skipulögð mótmæli fara fram í meira en 50 borgum og bæjum á Spáni í dag. Mótmælin snúa að húsnæðismálum, ekki síst leigumarkaðnum.Mótmælin hófust efti...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
Það eru 20 skipulagðir glæpahópar starfandi á Íslandi, hópar sem í eru bæði Íslendingar og útlendingar og starfa í fleiri en einu landi. Mikilvægt er ...
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
📅 03.10.2026 👁️ 2
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest brottvísun konu frá Namibíu og tveggja ára endurkomubann. Konan sagðist hafa yfirgefið íslenskan eiginmann sin...
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
📅 03.10.2026 👁️ 2
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
Saksóknari í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem rannsakar árás flugmanns á flugstjóra FlyDubai segir að hann hafa ráðist að honum með öxi og hann ha...
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
Ökumennirnir sýna þá ökuhraðann á mælaborðinu og sýna sjálfa sig smella öryggisbeltinu af áður en þeir deila myndefninu á samfélagsmiðlum. Orðið ökuní...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
Hópslysaáætlun hefur verið að virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal.
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi fyrst frá. Tvær þyrlur hafa verið kallaðar út vegna slyssins. Lögregl...
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
Greint verður frá nýjust vendingum í lifandi fréttavakt hér neðst.  Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi f...
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
📅 03.10.2026 👁️ 3
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs furðar sig á viðbrögðum Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæði...
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
📅 03.10.2026 👁️ 3
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu...
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
📅 03.10.2026 👁️ 2
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
Housing protests are taking place across four Canary Islands this weekend as campaigners demand action over rents, evictions and access to affordable ...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 3
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal á Austurlandi. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsin...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal á Austurlandi.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsins...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 1
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á ...
Smella af sér bílbeltunum á ógnar­hraða og breytingar í Kerlingar­fjöllum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Smella af sér bílbeltunum á ógnar­hraða og breytingar í Kerlingar­fjöllum - Vísir
Orðið ökuníðingur sé notað í jákvæðri merkingu meðal afmarkaðs hóps.  Við kynnum okkur einnig atvik sem varð á Hólmsheiðinni í gær þar sem að flugvél ...
Electricity blackout affects 70,000 people in Lanzarote and disrupts drinking-water supply
📅 03.10.2026 👁️ 3
Electricity blackout affects 70,000 people in Lanzarote and disrupts drinking-water supply
A major power failure across Lanzarote this morning shut down the island’s desalination plants, interrupting drinking-water production and prompting w...
Protesters across Spain demand action over housing crisis
📅 03.10.2026 👁️ 3
Protesters across Spain demand action over housing crisis
More than 50 protests are planned to take place on Saturday after the government failed to get emergency legislation through parliament.
Bubbi og Kristmundur Axel tóku lagið fyrir Reykjalund
📅 03.10.2026 👁️ 3
Bubbi og Kristmundur Axel tóku lagið fyrir Reykjalund
Bubbi Morthens og Kristmundur Axel tóku saman lagið „Kominn heim“ í söfnunar- og skemmtiþættinum Endurhæfum Reykjalund í gærkvöldi. Meira en 111 millj...
Gul við­vörun eftir stóra skriðu­ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Gul við­vörun eftir stóra skriðu­ - Vísir
Lægð gengur yfir landið í dag. Þrátt fyrir að heildarúrkoman sem fylgi henni sé ekki talin veruleg með tilliti til skriðuhættu getur lítil viðbótarúrk...
Fimleikafélagið Björk órekstrarhæft við óbreyttar aðstæður - Mælt með að Hafnarfjarðarbær stöðvi greiðslur ef ekkert breytist
📅 03.10.2026 👁️ 3
Fimleikafélagið Björk órekstrarhæft við óbreyttar aðstæður - Mælt með að Hafnarfjarðarbær stöðvi greiðslur ef ekkert breytist
Fluttar voru fréttir af því í vikunni að vegna fjárhagserfiðleika hefði Fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði gripið til þess að segja öllum þjálfurum f...
Vikulokin – Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður
📅 03.10.2026 👁️ 3
Vikulokin – Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður
Kjaramál og atvinnuleysi, Landsvirkjun og samtal forseta Íslands og ungs fólks eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Þátturinn er í þremur hlutum.Ingvar...
Illa brugðið en heill á húfi - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Illa brugðið en heill á húfi - Vísir
Þetta staðfestir flugmaður flugvélarinnar í samtali við fréttastofu. Hann er heill á húfi þótt að honum hafi brugðið illa við atvikið. Hann baðst unda...
Ráðast í aðgerðir vegna sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum
📅 03.10.2026 👁️ 3
Ráðast í aðgerðir vegna sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum
Neytendaverndarstofnanir í Evrópu beina spjótum sínum að níu tölvuleikjaframleiðendum í samhæfðum aðgerðum. Markmið aðgerða samstarfsnets stofnananna ...
Hefjast handa við endurheimt votlendis á ríkisjörðum
📅 03.10.2026 👁️ 3
Hefjast handa við endurheimt votlendis á ríkisjörðum
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tók fyrstu skóflustunguna vegna átaks ríkisstjórnarinnar við endurheimt votlendis á rí...
Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla - Vísir
Leikararnir Hilmar Guðjónsson og Saga Garðarsdóttir mættu fyrir hönd KR. Andstæðingar þeirra voru þau Guðmundur Emil og Þórunn Antonía sem voru í Hama...
Laura Kuenssberg: Kemi Badenoch has cemented her image. Now she wants to take her party back to its roots
📅 03.10.2026 👁️ 3
Laura Kuenssberg: Kemi Badenoch has cemented her image. Now she wants to take her party back to its roots
The Conservative leader is expected to set out a return to core conservative principles at the party’s annual conference.
UK-Iranian dual national arrested over RAF Fairford investigation bailed
📅 03.10.2026 👁️ 3
UK-Iranian dual national arrested over RAF Fairford investigation bailed
The 25-year-old man was arrested in the London borough of Westminster on Thursday.