Lék í leyfisleysi lausum hala um viðskiptareikning bróður síns - Sveik út vörur 300 sinnum á fimm árum - DV

Lék í leyfisleysi lausum hala um viðskiptareikning bróður síns - Sveik út vörur 300 sinnum á fimm árum - DV

Lék í leyfisleysi lausum hala um viðskiptareikning bróður síns - Sveik út vörur 300 sinnum á fimm árum - DV

Maður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands Vestra til að greiða bróður sínum fyrir óleyfilegar úttektir af viðskiptareikningi hans hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. Alls tók maðurinn út vörur í 302 skipti á fimm ára tímabili hjá þremur fyrirtækjum Kaupfélagsins, að andvirði um 6,3 milljónir króna.

Maðurinn var ákærður fyrir fjársvik með því að hafa í þessi 302 skipti á árunum 2016-2021 tekið út vörur í Skagfirðingabúð, Bifreiðaverkstæði KS og Byggingarvöruversluninni Eyri, en allt eru þetta fyrirtæki í eigu Kaupfélags Skagfirðinga, með því að skuldfæra þær á viðskiptareikning bróður síns hjá Kaupfélaginu og hagnýta sér rangar eða óljósar hugmyndir starfsmanna um heimild hans til
skuldfærslnanna.

Af þessu 6,3 milljónum voru úttektirnar úr Skagfirðingabúð hæstar, um það bil 4,3 milljónir.

Í dómnum segir að mágkona mannsins hafi lagt fram kæru sumarið 2021 eftir að þau hjónin hafi komist að því að maðurinn hefði nýtt sér reikninginn án leyfis. Hann hafi að þeirra sögn lofað að borga upphæðina alla til baka en aðeins greitt 150.000 krónur.

Vildi maðurinn meina við skýrslutöku hjá lögreglu að hann hefði haft fulla heimild til úttektanna og taldi bróður sinn hafa vitað af þeim. Vildi hann enn fremur meina að þeir bræður hefðu gert samkomulag um notkun hans á reikningnum þar sem hann hefði unnið mikið fyrir bróður sinn við sveitastörf. Ekki hefði verið rætt um nein takmörk á þeim úttektum.

Ekki svona mikið

Bróðir mannsins sagði við skýrslutöku að hann hefði átt að fá sína heimild í hvert sinn sem hann hefði tekið út vörur með reikningnum og hefði ekki haft neitt leyfi til úttekta án sérstaks leyfis. Aldrei hefði verið nefnt hve mikið hann mætti taka út en hann hefði ekki mátt taka svona mikið út.

Bróðirinn sagði ástæðu þess að hann hefði ekki stöðvað úttektirnar fyrr vera þá að hann hefði ekki vitað af þessu, en hann hefði treyst sinni fjölskyldu. Hann fengi nótur frá Eyrinni og Bifreiðaverkstæðinu en ekki frá Skagfirðingabúð. Bróðir hans hafi aldrei fengið leyfi til að taka út úr Skagfirðingabúð, heldur bara úr Eyrinni og verkstæðinu en aðeins í stökum tilvikum.

Megninu stalstu

Samskipti bræðranna á samfélagsmiðli lágu fyrir í málinu en í dómnum segir meðal annars um þessi sasmkipti:

„Þá getur ákærði þess að vegna allrar þeirrar vinnu sem hann hafi unnið fyrir brotaþola í gegnum árin og vegna þess innskatts sem brotaþoli hafi fengið vegna úttektanna fari ákærði fram á að „upphæðin verði lækkuð um 4,4 milljónir“. Ákærði kveðst ekki geta greitt meira en 50.000 krónur á mánuði, svo það sé tilgangslaust að tala um hækkanir. Svör brotaþola voru á þá leið að hann fengi ekki endurgreiddan virðisaukaskatt af matvöru eða bílaviðgerðum. Síðan segir: „Og megninu stalst þú.“ Í framhaldi af því skrifaði brotaþoli að „utan þessarar upphæðar“ séu 1.100.000 krónur sem brotaþoli hafi millifært til ákærða og litið á sem laun fyrir aðstoð. Þetta hafi ekki verið „endilega um upphæðir“ heldur að
ákærði „sýndi manndóm“ og horfðist í augu við gerðir sínar.“

Í dómnum er einnig vitnað til skilaboða dóttur brotaþolans til föðurbróður síns sem sagði að hann yrði að:

„Koma hingað, setjast niður með okkur og ræða við okkur.“

Sagði hún einnig við föðurbróður sinn að hann hefði lifað eins og greifi á þeirra kostnað. Hvatti hún hann til þess að leggja fram raunhæfa áætlun um endurgreiðslu annars yrði kæra lögð fram en áður hafði faðir hennar lýst því yfir við bróður sinn að hann vildi síður kæra hann.

Illa staddur

Fyrir dómi stóð hinn ákærði við þá fullyrðingu að bróðir hans hefði veitt honum fulla heimild til úttekta af viðskiptareikningnum. Hann hefði verið illa staddur fjárhagslega og spurt bróður sinn hvort hann mætti aðstoða hann gegn því að fá að taka út af reikningnum. Þetta hafi bróðir hans samþykkt. Umfang úttektarheimilda hafi ekki verið sérstaklega rætt, en ekki hafi verið ætlunin að taka út fyrir mörg hundruð þúsund krónur.

Maðurinn neitaði því aðspurður að hafa talið úttektirnar fram til skatts þar sem um styrk hafi verið að ræða. Hann taldi sig ekki hafa stofnað til neinnar skuldar við bróður sinn vegna úttektanna og hann hefði aldrei leynt þeim.

Bróðirinn sagði fyrir dómi að grunsemdir hefðu farið að vakna þegar hann hafi í auknum mæli verið farinn að beina viðskiptum sínum annað en til Kaupfélags Skagfirðinga en samt hafi fjárhæð reikninga þaðan ekki lækkað. Hann kvaðst ekkki hafa skoðað það nánar, sem megi segja að hafi verið kæruleysi en hann hafi treyst sínu fólki. Ítrekaði hann að hafa ekki veitt neinar heimildir til úttektanna og sagðist hafa greitt bróður sínum með peningum fyrir þá aðstoð sem hann veitti honum við bústörf.

Fimm ár

Aðspurður um hvort hann hefði aldrei áður orðið þess áskynja, á þessu fimm ára tímabil að reikningar frá Kaupfélaginu væru óeðlilega háir kvað bróðirinn reikningana að jafnaði einungis hafa haft að geyma heildartölur frá hverri deild. Þó hafi einhverjir reikningar frá Eyrinni verið sundurliðaðir en ekki frá Skagfirðingabúð. Jafnframt kvaðst hann ekki hafa skoðað úttektarmiða sem komið hafi frá Kaupfélaginu heldur hafi þeir farið til bókara hans.

Starfsmaður Kaupfélagsins bar fyrir dómi að á þessum tíma, 2016-2021, hafi almennt verið hægt að skuldfæra vörur á viðskiptareikninga með þeim hætti að gefa þar upp kennitölu viðkomandi reikningseiganda og skrifa svo undir strimil vegna úttektarinnar. Upplýsingar um úttektir hafi síðan mánaðarlega verið sendar til reikningseigenda sem hafi getað gert athugasemdir innan 15 daga. Hann kvað reikningseigendur ekki hafa tilkynnt sérstaklega um hverjir hefðu heimildir til úttekta af viðskiptareikningunum.

Gögn

Í niðurstöðu Héraðsdóms Norðulands Vestra segir að engin skrifleg gögn liggi fyrir um að maðurinn hafi haft heimild bróður síns til allra þessara úttekta. Fyrir liggi enn fremur gögn um millifærslur bróðurins til mannsins sem dragi úr trúverðugleika framburðar þess síðarnefnda um að úttektirnar hafi verið greiðsla fyrir veitta aðstoð við bústörf. Það lægi heldur ekkert fyrir um að umfang aðstoðarinnar hefði verið slíkt að það samsvaraði þeirri upphæð sem maðurinn tók samtals út fyrir. Samskipti mannsins við bróður sinn og mágkonu á samfélagsmiðlum bendi einnig til að hann hafi gengist við skuldinni. Sú staðreynd að maðurinn hafi skrifað sitt eigið nafn á úttektarseðlana bendi ekki til að hann hafi haft heimild fyrir úttektunum enda hefðu starfsmenn Kaupfélagsins vitað full vel hver hann væri og því hafi ekki gengið að skrifa undir með fölsku nafni.

Telur dómurinn að framferði og orð mannsins sanni að hann hafi ekki haft heimild bróður síns til úttektanna og hafi því framið fjársvik í skilningi hegningarlaga.

Í ljósi þess að maðurinn hafði ekki áður gerst sekur um refisvert athæfi, sá dráttar sem varð á meðferð málsins og þess að um 302 úttektir á fimm ára tímabili, fyrir á um sjöundu milljón króna, var að ræða þótti við hæfi að dæma hann í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þar að auki þarf hann að greiða bróður sínum 6,3 milljónir króna auk vaxta og málskostnaðar.

 

#hala #lausum #leyfisleysi #lék #viðskiptareikning


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/5/13/lek-leyfisleysi-lausum-hala-um-vidskiptareikning-brodur-sins-sveik-ut-vorur-300-sinnum-fimm-arum/

📰 Aðrar fréttir

Allir sem lentu í slysinu á Jökuldal eru erlendir ríkisborgarar
📅 03.10.2026 👁️ 0
Allir sem lentu í slysinu á Jökuldal eru erlendir ríkisborgarar
Lögreglan á Austurlandi hefur sent frá sér nýja tilkynningu vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð í dag á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Í slysinu le...
ASÍ styður áform ráðherra: Au-pair kerfið leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslenskt heimili
📅 03.10.2026 👁️ 1
ASÍ styður áform ráðherra: Au-pair kerfið leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslenskt heimili
Alþýðusamband Íslands styður áform dómsmálaráðherra um að veita fólki utan EES ekki dvalarleyfi til að koma hingað til lands sem au-pair. Sá hluti fru...
Allir í slysi á Austurlandi erlendir ríkisborgarar
📅 03.10.2026 👁️ 1
Allir í slysi á Austurlandi erlendir ríkisborgarar
Aðgerðum lögreglunnar á Austurlandi á Háreksstaðaleið á þjóðvegi 1 á Austurlandi er lokið. Hópslysaáætlun var virkjuð rétt fyrir hádegi í dag eftir fj...
Psilocybin dró úr merkjum um heilaskaða eftir endurtekin höfuðhögg
📅 03.10.2026 👁️ 3
Psilocybin dró úr merkjum um heilaskaða eftir endurtekin höfuðhögg
Ný ritrýnd rannsókn á rottum sýnir minni heilabjúg, minna magn óeðlilegs tau-próteins og breytingar á tengingum heilans eftir gjöf psilocybins. Vísind...
Banna áfengissölu í Kujalleq í Grænlandi
📅 03.10.2026 👁️ 3
Banna áfengissölu í Kujalleq í Grænlandi
Frá og með gærdeginum er bannað að selja og framreiða áfengi í sveitarfélaginu Kujalleq á Grænlandi. Heimastjórn Grænlands barst beiðni frá sveitarstj...
La Gradiva hlaut Gullna lundann - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
La Gradiva hlaut Gullna lundann - Vísir
Stiklu úr La Gradiva má sjá hér að neðan. Í fréttatilkynningu frá hátíðinni er greint frá verðlaunahöfum hátíðarinnar en alls voru veitt sex verðlaun ...
Fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands segir Pútín ekki þora að viðurkenna að stríðið hafi verið mistök
📅 03.10.2026 👁️ 3
Fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands segir Pútín ekki þora að viðurkenna að stríðið hafi verið mistök
Mikhail Kasyanov, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, segir Vladimír Pútín Rússlandsforseta ekki reiðubúinn til að semja um stríðslok í Úkraínu. H...
Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
📅 03.10.2026 👁️ 4
Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
Tveir umsjónarmenn eins vinsælasta fréttaskýringarþáttar í heimi um sönn sakamál líkja rannsóknarlögreglumanni sem leysti morðmál, þar sem maður var m...
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir Hvarf lít­ils hjarnskafls í Esj­unni er smá­vægi­leg­ur at­burð­ur í sam­an­burði við h...
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
New York Times greinir frá því að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum hafi upplýst strandgæsluna um að samskipti við flugvélina hefðu rofnað um klukkan s...
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
📅 03.10.2026 👁️ 4
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
Frank Strada, fangelsismálastjóri í Tennessee í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér. Það gerir hann í kjölfar þess að aftaka Christu Pike mistókst á miðv...
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
📅 03.10.2026 👁️ 4
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
Umboðsmaður Alþingis hefur upplýst atvinnuvegaráðuneytið um að til skoðunar sé að embættið taki upp frumkvæðisathugun vegna ítrekaðra kvartana yfir þe...
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
📅 03.10.2026 👁️ 4
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
Gunna Dís og Fannar Sveinsson, sem stýrðu skemmtidagskrá í söfnunarþætti fyrir endurbætur á Reykjalundi slógu á létta strengi í viðtali við Svein Guðm...
Man shot dead in East Acton as people gather for memorial service
📅 03.10.2026 👁️ 3
Man shot dead in East Acton as people gather for memorial service
The 40-year-old died at the scene in west London from a gunshot wound, the Met Police said.
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
📅 03.10.2026 👁️ 4
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
Pike survived two lethal injections on Wednesday and is currently in critical condition in hospital.
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
Þremenningarnir Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Steindi Jr. hafa gert það að árlegri hefð að halda bingó á haustin og í ár verður engin breyting á....
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
📅 03.10.2026 👁️ 4
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
Aðeins um 2% bandarískra heimila greiddu fyrir gervigreindarþjónustu í apríl síðastliðnum, samkvæmt nýrri samantekt fjárfestingarfélagsins Andreessen ...
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
📅 03.10.2026 👁️ 4
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
Fréttastofa RÚV hlýtur töluverða gagnrýni á Facebook-síðu sinni fyrir að birta mynd frá Jökuldal þar sem alvarlegt umferðarslys átti sér stað fyrr í d...
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
📅 03.10.2026 👁️ 4
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega Alma Möller heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur rætt við Ingu Sæ­land fé­lags­mála­ráð­herra um óljós mörk á ...
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
Samkvæmt greiningu sem sambandið fékk hagfræðing frá Context til að gera eru tekjur ríkissjóðs sem rekja má til Austurlands 54,2 milljarðar á ári en ú...
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Mótmælendur kalla eftir betri löggjöf fyrir leigjendur en tillögur ríkisstjórnarinnar gegn húsnæðiskre...
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
📅 03.10.2026 👁️ 4
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
Gul viðvörun er í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum. Á vef Veðurstofu Íslands segir að síðustu dagar hafi verið mjög úrkomusamir víða...
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
📅 03.10.2026 👁️ 3
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
„Sumir segja að hún hafi bara þjónað vel. Ég held að það sé hægt að breyta. Ég hef bent á það að ég vilji sjá eina löggjöf,“ segir Gylfi Dalmann Aðals...
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
📅 03.10.2026 👁️ 4
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
Ökukennari í Rangárvallasýslu furðar sig á þeirri ákvörðun Samgöngustofu og Frumherja að hætta að leyfa þeim sem eru að læra á bíl að taka ökupróf, ve...
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
Greint var frá rannsókninni á Vísi en hún er unnin af alþjóðlegri hugveitu að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og er sú fyrsta sinnar tegundar. Um ...
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
📅 03.10.2026 👁️ 4
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
Mynd Það skiptir máli hvort stjórnað er af félagshyggju eða frjá
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
Nanna er rafmagnsverkfræðingur og stofnaði Knittable til að hjálpa prjónurum að vera sjálfstæðari í sköpun sinni með hjálp tækni. Thelma er fatahönnuð...
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
📅 03.10.2026 👁️ 4
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
Um klukkan hálf tólf í dag barst lögreglu á Austurlandi tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Þetta kemur fram í tilky...
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
📅 03.10.2026 👁️ 4
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út að Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi vegna alvarlegs hópslyss. Hópslysaáætlun var virkjuð.Átt...
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Austurlandi: Átta manns í fjórum bílum
📅 03.10.2026 👁️ 3
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Austurlandi: Átta manns í fjórum bílum
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út að Háreksstaðaleið á Austurlandi vegna alvarlegs hópslyss við Hárekstaðakvísl. Hópslysaáætlun var vir...
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
📅 03.10.2026 👁️ 4
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
Langtímaatvinnuleysi er að aukast, segir forseti ASÍ sem telur stýrivexti Seðlabankans koma niður á samfélaginu öllu. Formaður efnahags- og viðskiptan...
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
📅 03.10.2026 👁️ 4
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
Shoko Kawata vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar hún tilkynnti að hún hygðist taka sér fæðingarorlof, fyrst allra bæjarstjóra í Japan. Fyrir ákvörð...
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
📅 03.10.2026 👁️ 4
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
Kristrún miðlæg í starfsaftökum Fréttin3. október 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Starfsaftökur í stjórnarráð...
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
📅 03.10.2026 👁️ 4
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
The This Morning presenter said she believes she experienced a panic attack on Friday's show.
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
📅 03.10.2026 👁️ 4
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
Truflun veldur því að ekki virkar að uppfæra stafræn ökuskírteini í Ísland.is smáforritinu um þessar mundir. Stafrænu ökuskírteinin eru því ekki nothæ...
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
📅 03.10.2026 👁️ 4
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
Skipulögð mótmæli fara fram í meira en 50 borgum og bæjum á Spáni í dag. Mótmælin snúa að húsnæðismálum, ekki síst leigumarkaðnum.Mótmælin hófust efti...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
📅 03.10.2026 👁️ 4
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
Það eru 20 skipulagðir glæpahópar starfandi á Íslandi, hópar sem í eru bæði Íslendingar og útlendingar og starfa í fleiri en einu landi. Mikilvægt er ...
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
📅 03.10.2026 👁️ 4
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest brottvísun konu frá Namibíu og tveggja ára endurkomubann. Konan sagðist hafa yfirgefið íslenskan eiginmann sin...
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
📅 03.10.2026 👁️ 4
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
Saksóknari í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem rannsakar árás flugmanns á flugstjóra FlyDubai segir að hann hafa ráðist að honum með öxi og hann ha...
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
Ökumennirnir sýna þá ökuhraðann á mælaborðinu og sýna sjálfa sig smella öryggisbeltinu af áður en þeir deila myndefninu á samfélagsmiðlum. Orðið ökuní...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
Hópslysaáætlun hefur verið að virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal.
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi fyrst frá. Tvær þyrlur hafa verið kallaðar út vegna slyssins. Lögregl...
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
Greint verður frá nýjust vendingum í lifandi fréttavakt hér neðst.  Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi f...
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
📅 03.10.2026 👁️ 5
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs furðar sig á viðbrögðum Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæði...
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
📅 03.10.2026 👁️ 5
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu...
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
📅 03.10.2026 👁️ 4
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
Housing protests are taking place across four Canary Islands this weekend as campaigners demand action over rents, evictions and access to affordable ...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 5
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal á Austurlandi. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsin...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 4
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal á Austurlandi.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsins...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 4
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 4
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á ...