Íranski byltingarvörðurinn tilkynnti í dag að hægt yrði að opna Hormússund fyrir skipaumferð þar sem ógn af árásarmönnum hefði verið hrundið. Ekki er fyllilega ljóst hvað þar er átt við en getum hefur verið leitt að því að þarna vísi Íranar til þess að Bandaríkjaforseti hætti við herfylgd flutningaskipa í gegnum sundið.
Skipstjórum og eigendum flutningaskipa er þakkað fyrir að virða reglur Írana um siglingar á Hormússundi í færslu íranska byltingarvarðarins á samfélagsmiðlinum X. Þar segir að með því að ógnum árásarmanna hafi verið hrundið og nýtt samkomulag sé í gildi sé hægt að tryggja aftur öruggar og stöðugar siglingar um Hormússund.
Áfram óvissa
Yfirlýsing íranska byltingarvarðarins er talin til marks um að Íranar ætli að hleypa umferð í gegnum sundið. Óvíst er þó hvenær það yrði gert og hvort og þá hvaða takmarkanir giltu. Siglingar þar í gegn hafa verið mikil háskaför síðan árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran hófust og það hefur haldist óbreytt þrátt fyrir vopnahlé. Íranar hafa ráðist að skipum á sundinu.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti yfir á dögunum að flutningaskip fengju fylgd bandaríska flotans um Hormússund. Í gær lýsti hann yfir að ekkert yrði af slíku þar sem reyna ætti á friðarsamninga við Írana.
Olíuverð lækkar
Vonir um frið við Persaflóa urðu til þess að olíuverð lækkaði í viðskiptum í dag. Brent-olían hefur lækkað um ellefu prósent milli daga og í Bandaríkjunum nam lækkunin tólf prósentum. Gasverð í Evrópu lækkaði um ellefu prósent.
Segir hægt að ljúka stríðinu
Trump birti færslu á samfélagsmiðli sínum um stundarfjórðung í tólf að íslenskum tíma. Hann sagði að ef Íranar stæðu við það sem hefði verið samþykkt þá væri stríðinu lokið og hægt að opna Hormússund fyrir allri skipaumferð.
Forsetinn bætti við að ef Íranar gerðu þetta ekki myndi sprengjuárásir á þá hefjast á ný, líkt og hann hefur áður sagt.
Fréttin hefur verið uppfærð.