Fraktflugi Icelandair frá Keflavík til Belgíu var aflýst í kvöld því ekki tókst að manna áhöfn flugvélarinnar, samkvæmt því sem Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi segir í við mbl.is í kvöld.
Félagið hefur því þrisvar þurft að aflýsa ferðum síðustu daga vegna þessa og hefur einnig hefur þurft að fresta ferðum.
Icelandair hefur sagt það benda til óformlegra verkfallsaðgerða flugmanna sem eiga í kjaraviðræðum, eins og flugvirkjar og flugfreyjur. Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur sagt slíkt vera af og frá.
„Ég veit ekki hvernig menn vilja túlka það hvort það sé verkfallsaðgerð að vinna eftir kjarasamningi. Ég held að það sé ansi langsótt,“ sagði Jón Þór Þorvaldsson, formaður félagsins, við RÚV á þriðjudag.
Í yfirlýsingu Icelandair fyrir fáum dögum kom fram að óvenjulegt væri að ekki næðist að manna flug þegar forföll verða og að vísbendingar væru um samantekin ráð og þrýsting að sýna ekki sveigjanleika við þær aðstæður.
Kjaraviðræður við flugmenn eru á borði ríkissáttasemjara en samningar FÍA við Icelandair runnu sitt skeið í september.
Jón Þór gerði í vikunni athugasemd við að forstjóri Icelandair boðaði flugmenn félagsins til fundar um kjaramál á morgun, föstudag, án aðkomu stéttarfélagsins. „Kjaraviðræður eiga að eiga sér stað við stéttarfélög,“ sagði Jón Þór.