Fimm íslensk handrit úr sænskum söfnum komu til landsins í dag en þau verða til sýnis næstu mánuði á handritasýningunni í Eddu, húsi íslenskunnar. Handritin, sem eru fengin að láni frá Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi annars vegar og Háskólabókasafninu í Uppsölum hins vegar, eru:
- Uppsala-Edda, eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu.
- Grettis sögu handrit frá 15. öld.
- Íslenska hómilíubókin, eitt elsta handrit sem varðveist hefur frá Íslandi.
- Bergsbók, sem geymir sögur konunganna Ólafs Tryggvasonar og Ólafs helga auk kveðskapar.
- Codex Sparfvenfeldianus, frá 17. öld.
Í tilefni af handritaskiptunum verður dagskrá í Eddu á morgun, 12. maí, klukkan 14. Þar mun Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, halda ávarp auk Louise Calais, sendiherra Svía á Íslandi, og Guðrúnar Nordal, forstöðumanns Árnastofnunar.
Svanhildur Óskarsdóttir rannsóknarprófessor segir frá láni á íslenskum handritum frá Svíþjóð og erindi flytja Mats Malm, prófessor og ritari Sænsku akademíunnar, Emma Hagström Molin dósent og Margrét Eggertsdóttir rannsóknarprófessor.