Eldur kom upp í ruslageymslu í fjölbýlishúsi í Kópavogi í kvöld. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um reyk frá ruslageymslu skömmu fyrir miðnætti, segir varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Eldurinn var minniháttar og greiðlega gekk að slökkva hann. Aðgerðum á vettvangi er lokið.