Drangar hafa keypt bakaríið Brauð & Co. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Dröngum en þar segir jafnframt að kaupin séu gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Brauð & Co rekur átta staði á höfuðborgarsvæðinu. Ársvelta er um hálfur annar milljarður og félagið skilaði hagnaði í fyrra.
Í tilkynningunni er haft eftir Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga, að félagið ætli að halda vörumerki Brauðs & Co á sömu braut. Þau sjái tækifæri til að fjölga sölustöðum á næstu misserum, meðal annars við verslanir Nettó, sem eru í eigu Dranga.