Bonnie Tyler haldið sofandi eftir bráðaaðgerð

Bonnie Tyler er haldið sofandi af læknum til að aðstoða við bata hennar eftir bráðaaðgerð á þörmum, að sögn talsmanns söngkonunnar.
Greint var frá því að söngkonan, sem er 74 ára og ættuð frá Wales, hefði verið flutt á sjúkrahús nærri heimili sínu í Faro í Portúgal á miðvikudag þar sem hún gekkst undir aðgerðina.
Í yfirlýsingu á fimmtudagskvöld sagði talsmaður hennar: „Bonnie er haldið sofandi af læknum sínum til að auðvelda bataferlið.“
Hann bætti við: „Við vitum að þið óskið henni alls hins besta og biðjum um næði á þessum erfiða tíma. Við munum senda frá okkur frekari upplýsingar þegar við getum.“
Þúsundir aðdáenda hafa sent henni stuðningskveðjur á Facebook, þar á meðal fólk sem hefur sjálft gengist undir svipaðar aðgerðir.
Einnig hafa margir tónlistarmenn sent henni batakveðjur. Katrina Leskanich úr hljómsveitinni Katrina and the Waves skrifaði: „Kæra Bonnie. Náðu skjótum bata og komdu aftur rokkandi! Við elskum þig.“
Gloria Gaynor skrifaði sömuleiðis: „Óska þér skjóts bata, Bonnie!“
Bonnie Tyler, sem skýrð var Gaynor Hopkins, sló í gegn á alþjóðavísu með laginu Total Eclipse of the Heart árið 1983. Lagið fór nýlega yfir einn milljarð spilana á Spotify.
Hún hóf feril sinn eftir að hæfileikaveiðarinn Roger Bell uppgötvaði hana á skemmtistað í Swansea og gaf hún út fyrsta lag sitt, Lost in France, árið 1977. Hún á það sameiginleg með Meat Loaf heitnum að hafa átt í áratuga samstarfi við tónskáldið Jim Steinman, sem, eins og hjá Meat, kom að flestum stærstu smellum söngkonunnar. Hér fyrir neðan má sjá eitt þeirra.