Ákæran öll: Slóð umsáturseineltis rakin

Ákæran öll: Slóð umsáturseineltis rakin

Ákæran öll: Slóð umsáturseineltis rakin

Ákæran öll: Slóð umsáturseineltis rakin

Ákær­an gegn Ír­isi Helgu sýn­ir hvernig hún reyndi að hrella fólk og eyði­leggja mann­orð þess fyr­ir að þýð­ast henni ekki.

Lögreglan á Suðurnesjum hefur gefið út ákæru á hendur Írisi Helgu Jónatansdóttur vegna umsáturseineltis, ásamt öðrum aðila sem er talinn eiga aðild að einstaka málsatvikum. 

Í ákærunni eru málsatvik rakin aftur til ársins 2022 og beinast gegn fjórum fullorðnum aðilum, þremur karlmönnum og maka eins þeirra, sem og börnum þeirra, fjölskyldum og tengdum aðilum. 

Listuð eru upp alls 68 málsatvik í ákærunni gegn Írisi Helgu sem varða ýmis brot á hegningarlögum, svo sem umsáturseinelti, rangar sakargiftir, skjalafals, hótanir, ærumeiðandi aðdróttanir og barnaverndarlagabrot. 

Hér á neðan má lesa ákæruna í heild sinni, en þar birtist mynd af áralangri hegðun sem er til þess fallin að meiða, særa og skaða aðra. 

Ákæran gegn Írisi Helgu

A

Gegn Írisi Helgu, fyrir umsáturseinelti, sem einnig fól í sér rangar sakargiftir, skjalafals, ærumeiðandi aðdróttanir og barnaverndarlagabrot, með því að hafa á tímabilinu frá 10. febrúar 2022 til 10. febrúar 2024, endurtekið sett sig í samband við, fylgst með, hótað og á annan sambærilegan hátt setið um a, fyrrverandi kærasta ákærðu, og b, kærustu og sambýliskonu a, og með þeirri háttsemi sinni valdið þeim hræðslu og kvíða, en ákærða beitti meðal annars eftirfarandi aðferðum við umsáturseineltið: 

A.I. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, endurtekið komið að og fylgst með heimili a, heimili b, og svo að sameiginlegu heimili a og b, meðal annars í eftirtöldum tilvikum; 

A.I.1. 

Með því að hafa, þann 26. febrúar 2022, komið að þáverandi heimili a, með krukku sem hún sagði að innihéldi fóstur sem hún hefði misst. 

A.I.2. 

Með því að hafa, þann 27. febrúar 2022, komið að þáverandi heimili a, og brotið þar blómavasa fyrir framan útihurð hússins, en blómavasann hafði a áður gefið ákærðu.

A.I.3. 

Með því að hafa, þann 1. mars 2022, komið að þáverandi heimili a, og sparkað í bifreið hans.

A.I.4. 

Með því að hafa, þann 17. janúar 2023, ekið framhjá þáverandi heimili a, og á meðan tekið myndband sem sýndi húsið og nýja bifreið a og b, en myndbandið sendi ákærða til a á Facebook Messenger frá falsreikningi, sem ákærða notaði til að villa á sér heimildir. Strax eftir að ákærða sendi a myndbandið sendi hún honum, frá sama reikningi, skilaboð um að hann gæti ekki falið sig, hún myndi muna bílnúmerið og að hann gæti ekki verndað b. 

A.II. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, endurtekið sent a skilaboð af mismunandi samfélagsmiðlareikningum sem ákærða notaði til að villa á sér heimildir, en skilaboð ákærðu fólu meðal annars í sér hótanir í garð a, s.s. því að spreyja bílinn hans, eitra fyrir hundinum hans, að hann fengi aldrei aftur frið og að hann gæti ekki falið sig, ásakanir um að nauðga og brjóta kynferðislega gegn konum, skilaboðin fólu í sér niðrandi ummæli um a og niðrandi ummæli um b, auk þess sem ákærða lét a ítrekað vita að það væri fylgst náið með honum og heimili hans. 

A.III. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, endurtekið sent b skilaboð af mismunandi samfélagsmiðlareikningum sem ákærða notaði til að villa á sér heimildir, en skilaboð ákærðu fólu meðal annars í sér hótanir í garð b, svo sem að hún fengi aldrei aftur frið í lífinu og að það myndi kvikna í húsinu hennar, skilaboðin fólu í sér niðrandi ummæli um b, niðrandi ummæli um a, auk þess sem ákærða lét b ítrekað vita að það væri fylgst náið með henni og heimili hennar. 

A.IV. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, endurtekið sent vinum og ættingjum b, skilaboð af mismunandi samfélagsmiðlareikningum sem ákærða notaði til að villa á sér heimildir, en skilaboð ákærðu fólu meðal annars í sér niðrandi ummæli um b og a. 

A.V. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, endurtekið sent syni a, þ.e. c, skilaboð af mismunandi samfélagsmiðlareikningum sem ákærða notaði til að villa á sér heimildir, en skilaboð ákærðu fólu meðal annars í sér niðrandi ummæli um a, auk þess sem ákærða lét c vita að það væri fylgst náið með honum og heimili hans. 

A.VI. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, endurtekið hringt í b og sent henni sms skilaboð úr mismunandi símanúmerum, sem og leyninúmerum, en ákærða sendi meðal annars b 27 sinnum skilaboðin  [nafn a] þann 30. september 2022. 

A.VII. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, farið þess á leit við þrjá einstaklinga, að a yrði beittur líkamlegu ofbeldi. 

A.VIII. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, stofnað Tinder reikning í nafni a, sett mynd af a á reikninginn og ítrekað látið senda Tinder staðfestingarkóða í farsíma a af reikningnum. 

A.IX. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, stofnað Tinder reikning í nafni b og ítrekað látið senda Tinder staðfestingarkóða í farsíma b, meðal annars á tímabilinu 12. september 2022 til 13. febrúar 2023, alls 64 kóða, en einnig á tímabilinu frá 12. september 2022 til 26. október 2022, alls 8 Facebook- og Instagram kóða.

A.X. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, útbúið og dreift miðum í póstlúgur og póstkassa í  [bæjarfélag], þar sem varað var við manni sem dveldi að [heimili b], sem áreitti ungar konur, hefði mikið magn barnaníðsefnis í tölvu sinni og tæki myndbönd af börnum í leik í götunni. 

A.XI. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, útbúið og dreift miðum í póstlúgur og póstkassa í [bæjarfélagi] , þar sem varað var við manni sem byggi að  [heimili a] , sem áreitti ungar konur, hefði mikið magn barnaníðsefnis í tölvu sinni og tæki myndbönd af börnum í leik í götunni.

A.XII. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, útbúið og hengt upp miða við verslun Bónus, [bæjarfélag], þar sem fram kom að a væri að auglýsa eftir börnum til að koma á heimili sitt til að passa hundinn hans á meðan hann væri að sinna kærustu sinni, en einnig kom fram að hann gæti sótt börnin. Þá var nafn og símanúmer b gefið upp á miðanum. 

A.XIII. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, útbúið og dreift miðum í [bæjarfélagi], þar sem fram kom á ensku að b tæki að sér að þrífa hús frítt, að hún væri einskis virði og að hún væri góð í að veita kynferðislegt nudd, en bæði nafn og símanúmer b var tilgreint á miðunum. 

A.XIV. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, skráð a á íslenskunámskeið hjá miðstöð símenntunnar á [bæjarfélag], án hans vitneskju og í hans óþökk.

A.XV. 

Með því að hafa, á fyrrgreindu tímabili, skráð b á námskeið hjá miðstöð símenntunnar á [bæjarfélag], án hennar vitneskju og í hennar óþökk.

A.XVI. 

Með því að hafa, þann 10. febrúar 2022, staðið að því að sírópi væri hellt yfir póstkassa og bréfalúgu á heimili b. 

A.XVII. 

Með því að hafa, þann 17. febrúar 2022, birt mynd af a á Instagram reikningi ákærðu, ásamt texta þar sem fram kom meðal annars: „[nafn a] er virkilega veikur maður.“ 

A.XVIII. 

Með því að hafa, þann 26. febrúar 2022, sent a sms, þar sem fram kom:„Aldrei aldrei aldrei tala við mig aftur ógeðið þitt!“ 

A.XIX. 

Með því að hafa, þann 1. mars 2022, sent a sms, þar sem fram kom: „Þú heyrir aldrei frá mér aftur...nema frá lögreglunni því ég slæst bara í hópinn með stelpunum sem kölluðu þig fyrir kynferðisáreitni. Ég mun vara kvenfólk við þér og vonandi deyrð einn vara og vansæll.“ 

A.XX. 

Með því að hafa, þann 26. júlí 2022, skilið eftir gulan miða á dyrabjöllu b, en á miðanum var b kölluð „tussa“. 

A.XXI. 

Með því að hafa, þann 1. október 2022, sent tölvupóst til vinnuveitanda a, í því skyni að ógna starfsöryggi hans, en í tölvupóstinum sakaði ákærða a um að hafa brotið ítrekað gegn konum, meðal annars að hafa áreitt 5 konur á síðasta vinnustað. 

A.XXII. 

Með því að hafa, í janúar 2023, sent tvær tilkynningar til vinnuveitanda b í því skyni að ógna starfsöryggi hennar, en í tilkynningunum var hún ranglega ásökuð um aðild að innflutningi og sölu fíkniefna, en tilkynningarnar sendi hún í nafni a.

#rakin #slóð #umsáturseineltis #ákæran #öll


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26606/akaeran-oll/

📰 Aðrar fréttir

„Það er að verða fólki ofviða að kaupa sér íbúð í Reykjavík“
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Það er að verða fólki ofviða að kaupa sér íbúð í Reykjavík“
„Það er að verða fólki ofviða að kaupa sér íbúð í Reykjavík,“ segir Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, í samtali við Morgunblaðið í dag. Ari hef...
Pétur gagnrýnir milljónakaup í borgarstjórnarsalinn: „Hér fær kerfið meira og hverfin minna“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Pétur gagnrýnir milljónakaup í borgarstjórnarsalinn: „Hér fær kerfið meira og hverfin minna“
Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, gagnrýnir meirihlutann í borginni fyrir að kaupa stóla og skjái í borgarstjórnarsalinn á sam...
Ný­sköpun frá Icewear fyrir ís­lenskt veður­far - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ný­sköpun frá Icewear fyrir ís­lenskt veður­far - Vísir
„Íslenska ullin hefur varið kindurnar okkar fyrir veðri í meira en þúsund ár. Ullin er tvískipt: mjúka þelið fangar loft og heldur hita, á meðan togið...
„Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
„Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ - Vísir
Helena Líndal, forstöðumaður eitrunarmiðstöðvar Landspítalans, ræddi málin í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Töluverð aukning verður alltaf á símtölum í ...
Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi
📅 01.10.2026 👁️ 0
Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi
Þverárfellsvegur lokaðist fyrir allri umferð rétt fyrir ofan Sauðárkrók, til móts við bæinn Skarð, þegar flutningabíll valt á veginum. Bíllinn og vagn...
Flutninga­bíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Flutninga­bíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður - Vísir
Þar segir að flutningabíll hafi oltið og þverar bíllinn ásamt vagni veginn. Vegfarendum er bent á að fara þjóðveg 1 um Vatnsskarð.  Að sögn lögreglu e...
Sviss­neskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Sviss­neskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum - Vísir
 Talið er að loftslagsbreytingar hafi þar mest áhrif. Breyting hefur orðið á ásýnd alpasvæðisins þar sem stórar hvítar snjóbreiður víkja fyrir grýttum...
Vill sérstaka umræðu á þingi um lyfjagjafir á hjúkrunarheimilum
📅 01.10.2026 👁️ 0
Vill sérstaka umræðu á þingi um lyfjagjafir á hjúkrunarheimilum
Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir sérstakri umræðu á Alþingi um umfang og þarfir fyrir lyfjagjöf á hjúkrunarhei...
Gera ó­háða rann­sókn á hóp­nauðgun við há­skólann - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Gera ó­háða rann­sókn á hóp­nauðgun við há­skólann - Vísir
Í færslu á samfélagsmiðlum á miðvikudag sagði hún að hún hefði rætt við Kotlikoff og að hann hefði „samþykkt að fá utanaðkomandi lögmann til að framkv...
Þrjú lögðust gegn sniðgöngu Eurovision
📅 01.10.2026 👁️ 1
Þrjú lögðust gegn sniðgöngu Eurovision
Stjórn RÚV klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort fjölmiðillinn ætti áfram að sniðganga Eurovision-söngvakeppnina eða ekki. Meirihluti stjórnar greid...
Dæmd í Dan­mörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 2
Dæmd í Dan­mörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila - Vísir
Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins kemur fram að um hafi verið að ræða karl og konu á vesturhluta Sjálands. Konan var dæmd fyrir að hafa selt spilin o...
„Hann var ekkert voðalega samvinnuþýður í fyrstu“
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Hann var ekkert voðalega samvinnuþýður í fyrstu“
Næturvaktin var róleg hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en dagarnir geta boðið upp á fjölbreytt verkefni. Það sannaðist í Fossvogi í Reykjavík í fy...
Skýrar vís­bendingar að Íranir eigi hlut að máli - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skýrar vís­bendingar að Íranir eigi hlut að máli - Vísir
Þetta er haft eftir Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands á BBC, sem veitti þó ekki frekari upplýsingar. Íranir hafa vísað þessum ásökunum á bug og...
Lægðin grynnist í dag en von á annarri - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Lægðin grynnist í dag en von á annarri - Vísir
Þetta er meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Gular viðvaranir eru í gildi á Norðurlandi eystra, Austurlandi a...
50 miljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal
📅 01.10.2026 👁️ 1
50 miljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal
50 miljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal Odd­viti Sam­fylk­ing­ar­inn­ar gagn­rýn­ir for­gagns­röð­un meiri­hlut­ans sem ætl­ar a...
Stormur á norðaustanverðu landinu og miðhálendinu
📅 01.10.2026 👁️ 2
Stormur á norðaustanverðu landinu og miðhálendinu
Stormur geisar á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og miðhálendinu. Vindur er á bilinu 15-25 metrar á sekúndu og getur farið yfir 35 metra ...
Tvær sómalskar stúlkur dæmdar eftir hópárásir á 13 ára stúlku – Börn ítrekað niðurlægð og upptökum dreift
📅 01.10.2026 👁️ 3
Tvær sómalskar stúlkur dæmdar eftir hópárásir á 13 ára stúlku – Börn ítrekað niðurlægð og upptökum dreift
Tvær stúlkur af sómölskum uppruna hafa verið dæmdar eftir að 13 ára stúlka var barin tvisvar sama dag í Osló. Árásirnar voru teknar upp og upptökunum ...
Á spítala eftir mis­heppnaða af­töku - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 2
Á spítala eftir mis­heppnaða af­töku - Vísir
Christa Pike var átján ára þegar hún, ásamt kærasta sínum, misþyrmdi og drap hina 19 ára Colleen Slemmer árið 1995. Hún hefur setið í fangelsi síðan o...
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and charity founder
📅 01.10.2026 👁️ 2
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and charity founder
Dame Esther Rantzen was "an inspirational individual", the director of her Childline helpline says.
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and Childline founder
📅 01.10.2026 👁️ 2
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and Childline founder
Dame Esther Rantzen was "an inspirational individual", the director of her Childline helpline says.
TUI: Strong winter ahead for the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 3
TUI: Strong winter ahead for the Canary Islands
The Canary Islands will account for almost half of TUI's airline capacity to its main winter-sun destinations this coming season. The travel giant has...
Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi - Vísir
Dagur aldraðra er haldinn í dag. Er um að ræða framtak á vegum Sameinuðu þjóðanna. Deginum er ætlað að bæta stöðu eldra fólks. Ólíklegt er þó að ræður...
Þorsteinn Pálsson skrifar: Vísitöludansinn hefur aldrei leyst verðbólguvandann
📅 01.10.2026 👁️ 2
Þorsteinn Pálsson skrifar: Vísitöludansinn hefur aldrei leyst verðbólguvandann
Mynd Atvinnulífið og verkalýðsfélögin hafa enn á ný myndað ábyrg
Hryllingur á dauðadeild þegar yfirvöldum mistókst í tvígang að taka Christu Pike af lífi
📅 01.10.2026 👁️ 2
Hryllingur á dauðadeild þegar yfirvöldum mistókst í tvígang að taka Christu Pike af lífi
Hin fimmtudaga Christa Pike, sem dæmd var til dauða fyrir hrottalegt morð á unglingsstúlku árið 1995, er á sjúkrahúsi eftir að aftaka hennar í Tenness...
Þúsundir heimavarnarliða í fjölmennustu æfingu frá lokum kalda stríðsins
📅 01.10.2026 👁️ 3
Þúsundir heimavarnarliða í fjölmennustu æfingu frá lokum kalda stríðsins
Þúsundir sjálfboðaliða í heimavarnarliði Danmerkur taka þessa dagana þátt í einhverri umfangsmestu æfingu sem haldin hefur verið frá lokum kalda stríð...
Réttindalaus ökumaður ók glæfralega um vesturborgina
📅 01.10.2026 👁️ 3
Réttindalaus ökumaður ók glæfralega um vesturborgina
Lögreglumenn eltu uppi og stöðvuðu bílstjóra sem ók glæfralega um vesturhluta Reykjavíkur í gærkvöld og í nótt.Ökumaðurinn reyndist réttindalaus og má...
69-year-old surfer seriously injured in Fuerteventura is airlifted to Gran Canaria
📅 01.10.2026 👁️ 2
69-year-old surfer seriously injured in Fuerteventura is airlifted to Gran Canaria
A 69-year-old surfer has been seriously injured while surfing at Playa del Águila, near El Cotillo in Fuerteventura. The accident happened at around 1...
Bíl ekið á ljósa­staur - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 2
Bíl ekið á ljósa­staur - Vísir
Í dagbók er annars fjallað um nokkurn fjölda ökumanna sem lögreglan hafði afskipti af víða um höfuðborgarsvæðið vegna þess að þeir óku undir áhrifum á...
What we know after Christa Pike survived two lethal injections
📅 01.10.2026 👁️ 3
What we know after Christa Pike survived two lethal injections
Her legal team filed an emergency motion to halt the convicted murderer's execution as it was happening.
Alexander Skarsgård: „Ég hef saknað Íslands“
📅 01.10.2026 👁️ 3
Alexander Skarsgård: „Ég hef saknað Íslands“
Alexander Skarsgård segist verða að leggja reglulega frá sér símann og fara út í náttúruna. Það sé nauðsynlegt mótvægi við umstangið sem fylgir kvikmy...
Nadine og Þór­hildur byrja með nýtt hlaðvarp - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 2
Nadine og Þór­hildur byrja með nýtt hlaðvarp - Vísir
Hlaðvarpsþættirnir Eftirmál komu fyrst út í mars árið 2022 og er eitt allra vinsælasta hlaðvarp landsins með tugþúsundir hlustana á hvern þátt. Hlusta...
THURSDAY WEATHER: A cooler day with showers forecast across parts of the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 2
THURSDAY WEATHER: A cooler day with showers forecast across parts of the Canary Islands
The Canary Islands will experience a cooler and more unsettled day today, Thursday, as the remnants of an Atlantic front move across parts of the arch...
Fimmtug kona lifði af tvær aftökutilraunir í Tennessee
📅 01.10.2026 👁️ 2
Fimmtug kona lifði af tvær aftökutilraunir í Tennessee
Fimmtug bandarísk kona á dauðadeild fangelsis í Tennessee lifði af tvær aftökutilraunir í gærkvöld. Alríkisdómstóll fyrirskipaði að aftökunni skyldi f...
Kínverskum hótelgestum fjölgaði hlutfallslega í ágúst — gistinóttum fækkaði svolítið
📅 01.10.2026 👁️ 3
Kínverskum hótelgestum fjölgaði hlutfallslega í ágúst — gistinóttum fækkaði svolítið
Gistinóttum á íslenskum hótelum fækkaði um 2,5 af hundraði í ágúst samanborið við sama tíma í fyrra.Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferð...
AI boom could trigger market shocks, Bank of England boss warns
📅 01.10.2026 👁️ 3
AI boom could trigger market shocks, Bank of England boss warns
Andrew Bailey says the central bank is watching the waves of cash being invested in artificial intelligence "very carefully".
Musk leikur stórt hlutverk í nýrri áætlun um framtíð hernaðar
📅 01.10.2026 👁️ 3
Musk leikur stórt hlutverk í nýrri áætlun um framtíð hernaðar
Auðkýfingnum Elon Musk er ætlað stórt hlutverk í nýrri áætlun um framtíðarhernað á vegum bandaríska varnarmálaráðuneytisins.Ráðherrann Pete Hegseth ti...
Plummeting Israel flight like 'rollercoaster', says passenger
📅 01.10.2026 👁️ 2
Plummeting Israel flight like 'rollercoaster', says passenger
An aeroplane flying to Israel fell 17,000ft (5,200m) in less than two minutes before it was diverted.
Fimmta dauðsfallið í versta mislingafaraldri síðustu áratuga
📅 01.10.2026 👁️ 3
Fimmta dauðsfallið í versta mislingafaraldri síðustu áratuga
Heilbrigðisyfirvöld í Lancaster-sýslu í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum staðfestu í gær fimmta andlátið þar í landi tengt mislingum. Alls hafa verið skrá...
Svissneskir jöklar skroppið saman um 20% á fimm árum
📅 01.10.2026 👁️ 3
Svissneskir jöklar skroppið saman um 20% á fimm árum
Á aðeins fimm árum hafa svissneskir jöklar skroppið saman um næstum því tuttugu prósent. Til samanburðar má benda á að jöklarnir minnkuðu um tíu próse...
Trump segir flugmanninn annaðhvort brjálaðan eða hryðjuverkamann
📅 01.10.2026 👁️ 3
Trump segir flugmanninn annaðhvort brjálaðan eða hryðjuverkamann
Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst hafa rætt tilræði um borð í farþegaþotu FlyDubai í hörgul við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Fles...
BBC paying to air shows like Suits and Schitt's Creek is illogical, MPs say
📅 01.10.2026 👁️ 3
BBC paying to air shows like Suits and Schitt's Creek is illogical, MPs say
The issue is one of several raised by an influential committee as debate about the BBC's future continues.
Celebrity Traitors: What you need to know ahead of the first show
📅 01.10.2026 👁️ 4
Celebrity Traitors: What you need to know ahead of the first show
Maya Jama, Michael Sheen and Bella Ramsey are among this year's celebrities taking part in the show.
Söknuðu nær­gætni og um­hyggju eftir háska á Ibiza - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
Söknuðu nær­gætni og um­hyggju eftir háska á Ibiza - Vísir
Þetta segja Nína Dögg Hilmarsdóttir, Natalía Nótt Helgadóttir, Matthildur Bolladóttir og Nadía Hólm Elísdóttir sem allar voru um borð í bátnum en þær ...
Swiss glaciers suffer 'disastrous' year of ice loss
📅 01.10.2026 👁️ 3
Swiss glaciers suffer 'disastrous' year of ice loss
Scientists say such rapid melting is no longer surprising given the pace of climate change.
China has cracked down on AI relationships. Is it ahead of the game?
📅 30.09.2026 👁️ 4
China has cracked down on AI relationships. Is it ahead of the game?
Beijing has cracked down on AI chatbots that can replicate human relationships. Experts are asking if this is the right thing to do.
US Supreme Court allows execution of Christa Pike to go ahead
📅 30.09.2026 👁️ 3
US Supreme Court allows execution of Christa Pike to go ahead
The death by lethal injection was scheduled to happen earlier on Wednesday before a lower court paused the execution.
Tennessee death row inmate Christa Pike taken to hospital after attempted execution, lawyer says
📅 30.09.2026 👁️ 3
Tennessee death row inmate Christa Pike taken to hospital after attempted execution, lawyer says
One of her attorneys told the BBC that Pike, 50, was in hospital after two syringes of pentobarbital had been administered.
Tennessee death row inmate Christa Pike survives execution attempt after two injections
📅 30.09.2026 👁️ 3
Tennessee death row inmate Christa Pike survives execution attempt after two injections
Killer Christa Pike's lawyer says she is being given "life-saving measures" in hospital after two syringes of pentobarbital.
Tiny image sparks big backlash in Nikon photo contest
📅 30.09.2026 👁️ 3
Tiny image sparks big backlash in Nikon photo contest
Dr Ning Xu denies he broke the rules of Nikon's annual Small World In Motion contest.
Vape tax comes into force with prices set to rise
📅 30.09.2026 👁️ 3
Vape tax comes into force with prices set to rise
Vaping is about to becoming more expensive due to a new tax on products.