Það rignir víða á landsmenn í dag, þó einna síst á Norðaustur- og Austurlandi. Rigningarlegt er um að litast næstu daga, sérstaklega á Suður- og Vesturlandi þar sem er von á talsverðri rigningu á morgun.
Mikið hefur rignt suðaustan- og austantil síðustu daga og er jörð víða blaut. Þórsmerkurvegur og vegurinn um Breiðdalsheiði fóru í sundur í vatnavöxtum.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Sunnan 5-13 metrar á sekúndu og skúrir, en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti 7 til 13 stig, hlýjast norðaustanlands.
Suðaustan 8-13 og rigning á morgun, fyrst suðvestantil. Talsverð rigning á Suður- og Vesturlandi. Hægari annað kvöld og dregur úr vætu, en suðvestan 10-15 syðst. Hiti breytist lítið.