Alexus Grynkewich, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins og yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, segir að staðsetning Íslands sé stratiskt mikilvæg og það væru hagsmunir Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins að hér yrði herlið til lengri tíma.
„Þess vegna tel ég raunveruleg tækifæri í þessari úttekt á stöðu okkar, til að hugsa um hvað við getum sameiginlega lagt af mörkum til varnarmála báðum megin við Atlantshafið. Ég tel ljóst að Bandaríkin hafi áhuga á að halda áfram að gera út héðan til varnar Norður-Ameríku og til varnar bandalaginu. Ýmislegt þarf að skoða til skemmri tíma en til lengri tíma þarf virkilega að huga að norðurslóðum og öryggismálum þar. Það verður æ mikilvægara fyrir okkur öll næstu áratugi.“
Ræddu langtímafjárfestingar og uppbyggingu
Grynkewich sagði að hann og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefðu rætt hvernig hægt sé að skipuleggja til framtíðar með fjárveitingar í huga og þá innviði sem þarf fyrir þessa sviðsmynd eftir um 20 ár. Hann segir að NATO og Bandaríkin hafi í raun vanrækt Norðurslóðir og í ljósi breyttra aðstæðna, og breytts öryggis- og varnarlandslags, sé einfaldlega þörf á langtímafjárfestingu og langtímauppbyggingu.
„Við höfum haft nær stöðuga nærveru kafbátavarnatækja okkar, P-8 flugvéla okkar, nokkuð lengi á herstöðinni í Keflavík. Önnur NATO-ríki leggja einnig sitt af mörkum til þess verkefnis og það fer sífellt vaxandi. Ég held að þó að nærveran sé ekki varanleg og hermenn verði ekki með varanlega búsetu hér, verði stöðugar víxlvaktir NATO-hermanna úr öllu bandalaginu, m.a. frá Bandaríkjunum, um ókomna tíð. Ísland er á svo hernaðarlega mikilvægum stað að það er óumflýjanlegt að hafa þessa hermenn hér áfram, bæði vegna æfinga og aðgerða,“ segir Grynkewich.
Ísland standi við allar skuldbindingar sínar
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að margt hafi verið sagt um hernaðarmátt NATO en augljóslega standi Ísland við allar skuldbindingar sínar og Ísland sé í góðu samstarfi við NATO og Bandaríkin. „Við stöndum við þessi 1,5 % því við erum sammála um að 3,5% sé vegna strategískrar stöðu okkar og landfræðilegrar legu og allir eru sammála um það. En það þýðir auðvitað að það verða frekari fjárfestingar, það verður meira á seyði í þessum heimshluta vegna þess að við leggjum okkar af mörkum og við gerum það í góðu samstarfi við NATO og Bandaríkin,“ segir Kristrún.
Ekki liggur fyrir hvað fyrirhuguð fjárfesting í innviðum felur nákvæmlega í sér, en hugsanlega yrðu ratsjár, kafbátaleit og fjarskipti hluti af einhvers konar fjárfestingaráætlun.
Norður-Víkingur hefst í dag
Norður-Víkingur, tvíhliða heræfing Íslands og Bandaríkjanna, hefst í dag. Æfingin fer fram á tveggja ára fresti en auk Íslendinga og Bandaríkjamanna taka Norðmenn, Svíar, Danir, Finnar, Þjóðverjar, Frakkar, Belgar og Kanadamenn þátt í æfingunni, meðal annarra.