Sóttvarnastofnun Afríku hefur lýst yfir ebólufaraldri í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Grunur leikur á að 246 hafi smitast af ebólu í landinu og að veiran hafi dregið 65 til dauða. Nú þegar hefur greining staðfest að ebóla var dánarorsök fjögurra þeirra, að því er segir í tilkynningu sóttvarnastofnunarinnar. Af 20 sýnum sem búið er að greina reyndust 13 þeirra jákvæð.
Í tilkynningunni segir að faraldur sé staðfestur í Ituri-héraði í austurhluta landsins.
Sóttvarnastofnun Afríku hefur boðað til skyndifundar með stjórnvöldum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, Úganda, Suður-Súdan og alþjóðlegum samstarfsaðilum til að efla viðbragð við faraldrinum og hefta útbreiðslu veirunnar.
Nærri 2.300 létust í síðasta faraldri
Veirufaraldrar hafa leikið lönd álfunnar grátt á síðustu áratugum. Í vesturhluta Afríku létust um 11 þúsund af völdum ebólu á árunum 2014 til 2016. Skæðasti faraldur ebólu í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó geisaði þar milli 2018 og 2020. Þá létust nærri 2.300 manns af völdum veirunnar.
Ebóla er veirusjúkdómur sem getur smitast manna á milli með sýktu blóði eða öðrum líkamsvessum. Í alvarlegustu tilfellum veldur veiran bilunum í mikilvægum líffærum á borð við nýru og lifur sem geta dregið fólk til dauða. Á vef Lyfjastofnunar segir að sjúkdómurinn geti leitt til dauða í 25% til að allt að 90% tilvika. Fyrsta bóluefnið sem veitir vörn gegn ebólu rataði á markað 2019.