Þýska lands­liðið spegli land stöðnunar - Vísir

Þýska lands­liðið spegli land stöðnunar - Vísir

Þýska lands­liðið spegli land stöðnunar - Vísir

Þýskaland er úr leik á HM eftir tap gegn Paragvæ í vítaspyrnukeppni. Fallið er stórt áfall fyrir fjórfalda heimsmeistara en í Þýskalandi hefur umræðan ekki aðeins snúist um vítaspyrnur, leikskipulag eða framtíð Julian Nagelsmann. Sumir þýskir miðlar hafa gert ósigurinn að stærri spurningu: hvort landsliðið endurspegli ástand lands sem glímir við stöðnun, slitna innviði og þrýsting á gamla efnahagsmódelið.

Það er túlkun sem ýmsir eru sammála um en ekki allir.  

Landsliðið sem þjóðfélags myndlíking

Þýska liðið féll úr leik í 32-liða úrslitum á mánudag eftir 1-1 jafntefli og tap í vítaspyrnukeppni. Þrír þýskir leikmenn brenndu af og Paragvæ tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum. Þetta er þriðja heimsmeistaramótið í röð þar sem Þýskaland veldur miklum vonbrigðum. Liðið féll úr leik í riðlakeppni 2018 og 2022 og er nú aftur farið snemma heim.

Þýsku leikmennirnir voru niðurlútir eftir tapið gegn Paragvæ. Í þýskum miðlum hefur frammistaða liðsins verið sögð hikandi og hugmyndasnauð og ósigurinn notaður sem tilefni til stærri umræðu um stöðu Þýskalands.Vísir/Getty

Þýska frétta- og vikuritið FOCUS gerði ósigurinn að þjóðfélagslegri myndlíkingu. Í grein Thomas Tuma, „Wo Deutschland und das DFB-Team sich leider ähneln“, er spurt hvað fótbolti segi um ástand þjóðar. Þar er þýska liðinu lýst sem hikandi, óöruggu og hugmyndasnauðu og því velt upp hvort það minni á Þýskaland sjálft: land í doða, með ótta við mistök, minningar um stórveldistíma og velferðarsamfélag sem hafi staðnað.

BILD fór aðra leið en með svipuðum undirtóni. Miðillinn tók saman alþjóðleg viðbrögð við tapinu og vísaði meðal annars í erlenda pressu sem sagði Þýskaland ekki lengur vera Þýskaland í fótboltaskilningi. Þar var ekki aðeins verið að lýsa einu tapi heldur þeirri tilfinningu að ásýndin um þýsku seigluna, liðið sem alltaf finnur leið til að vinna, sé ekki lengur sjálfgefin.

Kanslarinn sakaður um að vera úr takti

Viðbrögð Friedrich Merz kanslara urðu svo að sérstöku máli. Á opinberum X-aðgangi kanslarans birtist jákvæð færsla eftir leikinn þar sem hann sagði meðal annars: „Auch wenn das Ausscheiden schmerzt: Was für ein Spiel,“ eða að þótt brotthvarfið væri sárt hefði þetta verið góður leikur. Þar var liðinu hrósað fyrir baráttuanda og sagt að Þjóðverjar væru stoltir.

Færslan mæltist ekki vel fyrir. Þýskir miðlar höfðu lýst frammistöðunni sem vonbrigðum og margir spurðu á samfélagsmiðlum hvaða leik kanslarinn hefði horft á. Orðasambandið „Welches Spiel?“ fór á flug á X. Stjórnmálamenn úr öðrum flokkum notuðu færsluna líka til að gagnrýna Merz fyrir að vera úr takti við raunveruleikann. Síðar var haft eftir stjórnarherbúðum að færslan hefði verið „Abstimmungsfehler“, eða samhæfingarmistök.

Merz svaraði gagnrýninni með annarri færslu. Þar sagði hann að Þjóðverjar fögnuðu saman í sigri og stæðu saman í ósigri. Sá sem bæri örninn á bringunni ætti skilið stuðning, ekki háð. Þannig varð jafnvel viðbragð kanslarans hluti af stærri umræðu: hvort þýsk forysta væri að reyna að hvetja þjóðina áfram eða fegra stöðu sem almenningur upplifði öðruvísi.

Ekki lið í fremstu röð

Innan fótboltans var sjálfsgagnrýnin skýrari. Joshua Kimmich, fyrirliði Þýskalands, sagði að liðið gæti ekki kennt dómaranum eða vítaspyrnukeppninni um. Lið sem gæti ekki unnið Paragvæ á 120 mínútum ætti skilið að falla úr leik. Nagelsmann sagði sjálfur að ef Þýskaland félli úr leik gegn Paragvæ væri það einfaldlega ekki lið í fremstu röð.

Joshua Kimmich, fyrirliði Þýskalands, sagði eftir tapið gegn Paragvæ að liðið gæti ekki falið sig á bak við dómgæslu eða vítaspyrnukeppni. Lið sem næði ekki að vinna Paragvæ á 120 mínútum ætti skilið að falla úr leik.

Það er slík setning sem gerir umræðuna stærri en fótboltann. Þýska landsliðið var lengi tákn um aga, skipulag, seiglu og sigurvilja. Nú er spurt hvort sú sjálfsmynd hafi sprungið og hvort það sama eigi við um landið utan vallar.

Stöðnun frekar en hrun

Það má þó ekki skilja sem svo að Þýskaland sé að hruni komið. Það er enn stærsta hagkerfi Evrópu og eitt öflugasta iðnríki heims og mætti frekar líkja ástandinu við stöðnun. Eftir tvö ár samdráttar óx þýska hagkerfið aðeins um 0,2 prósent í fyrra.Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins spáir 0,6 prósenta hagvexti í ár og 0,9 prósenta vexti á næsta ári. Samkvæmt nýjustu spá Seðlabanka Íslands er spáð 1,6% hagvexti á Íslandi í ár og 1,8% á því næsta. 

Lestarkerfið undir álagi

Sama gildir um innviðina. Þeir eru undir miklu álagi en ekki ónýtir. Deutsche Bahn, járnbrautarfyrirtæki Þýskalands sem er að fullu í eigu ríkisins, hefur glímt við langvarandi tafir og uppsafnaða viðhaldsskuld. Fyrirtækið stefnir nú að því að 80 prósent langferðalesta verði á réttum tíma árið 2035. Til samanburðar voru aðeins 60,1 prósent langferðalesta Deutsche Bahn stundvísar árið 2025, 62,5 prósent árið 2024 og 64 prósent árið 2023. 

Farþegar á lestarstöð í Þýskalandi. Deutsche Bahn hefur glímt við langvarandi tafir og uppsafnaða viðhaldsskuld; aðeins um 60 prósent langferðalesta voru á réttum tíma í fyrra.

Það er langt undir eldri markmiðum fyrirtækisins og þeirri ímynd sem þýska lestarkerfið hafði lengi. Reuters segir áratuga vanfjárfestingu hafa skilið eftir slitna teina, skipta og merkjabúnað, og að Deutsche Bahn og þýska ríkið ætli að verja yfir um 3.400 milljörðum króna í járnbrautafjárfestingar á þessu ári.

Samkeppnisvandi þýsks iðnaðs

Orkumálin sýna sömu togstreitu. Endurnýjanleg orka stóð undir metháu hlutfalli raforkunotkunar í Þýskalandi á fyrri hluta ársins, eða 58 prósentum, og orkuskiptin hafa því skilað mælanlegum árangri. En það þýðir ekki að málin séu komin í höfn. Alþjóðaorkumálastofnunin segir raforkuverð til orkufreks iðnaðar í Evrópusambandinu hafa verið áfram hátt árið 2025, meira en tvöfalt hærra en í Bandaríkjunum og nærri 50 prósentum hærra en í Kína. Það er stórt samkeppnisvandamál fyrir þýskan iðnað.

Endurnýjanleg orka stendur undir sífellt stærri hluta raforkunotkunar landsins en orkuskiptin hafa líka skapað nýjan vanda: hátt raforkuverð, flöskuhálsa í kerfinu og þrýsting á orkufrekan iðnað.

Reuters hefur jafnframt greint frá því að þýsk stjórnvöld hafi samþykkt niðurgreitt raforkuverð fyrir orkufrekan iðnað til ársins 2028, auk þess sem gjöld fyrir raforkukerfið verði lækkuð til að létta undir með heimilum og fyrirtækjum.

Orkufrek framleiðsla í Þýskalandi hefur dregist verulega saman frá því fyrir orkukreppuna og raforkukerfið glímir við flöskuhálsa, þar sem uppbygging flutningskerfis og geymslu hefur ekki haldið að fullu í við hraða fjölgun vind- og sólarorkuvera.

Bílaiðnaðurinn undir þrýstingi

Eitt skýrasta táknið er þó bíliðnaðurinn. Þýskaland er land Volkswagen, Mercedes-Benz, BMW, Audi og Porsche, og fáar greinar eru jafn nátengdar ímynd landsins sem verkfræði- og iðnríkis. Bíllinn er ekki aðeins útflutningsvara heldur hluti af þýsku efnahagsmódeli og alþjóðlegu orðspori landsins. Nú er greinin undir miklum þrýstingi: rafbílavæðingu, kínverskri samkeppni, tollum og viðskiptahindrunum, hærri kostnaði og veikari eftirspurn í Evrópu.

Bíliðnaðurinn er eitt helsta tákn þýska efnahagsmódelsins en stendur nú frammi fyrir auknum þrýstingi vegna rafbílavæðingar, kínverskrar samkeppni, tolla og veikari eftirspurnar í Evrópu.

Volkswagen er dæmi um þessa spennu. Reuters hefur fjallað um að fyrirtækið glími við minnkandi hagnað, tap á stöðu í Kína, veikari eftirspurn í Evrópu og aukinn kostnað. Á móti kemur að Volkswagen er enn einn stærsti bílaframleiðandi heims. Vandinn er því ekki dauðadómur heldur erfið aðlögun að nýjum veruleika.

Ekki úr lausu lofti gripið

Myndlíkingin er því ekki úr lausu lofti gripin þó að hún sé svolítið dramatísk viðbrögð við einum fótboltaleik. Þýskaland er að glíma við raunveruleg vandamál: hægan hagvöxt, erfiða orkuskiptingu, slitna innviði og bíliðnað í sögulegri umbreytingu. Landsliðið tapaði ekki vegna þess að lestirnar voru seinar eða Volkswagen var undir þrýstingi en í þýskri umræðu hefur tapið orðið að táknmynd hjá sumum um að gamla forskotið sé ekki lengur sjálfgefið.

#land #landsliðið #spegli #stöðnunar #þýska


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262904197d/thyska-landslidid-spegli-land-stodnunar

📰 Aðrar fréttir

Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
📅 03.10.2026 👁️ 1
Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
Tveir umsjónarmenn eins vinsælasta fréttaskýringarþáttar í heimi um sönn sakamál líkja rannsóknarlögreglumanni sem leysti morðmál, þar sem maður var m...
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir Hvarf lít­ils hjarnskafls í Esj­unni er smá­vægi­leg­ur at­burð­ur í sam­an­burði við h...
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
New York Times greinir frá því að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum hafi upplýst strandgæsluna um að samskipti við flugvélina hefðu rofnað um klukkan s...
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
📅 03.10.2026 👁️ 1
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
Frank Strada, fangelsismálastjóri í Tennessee í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér. Það gerir hann í kjölfar þess að aftaka Christu Pike mistókst á miðv...
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
📅 03.10.2026 👁️ 2
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
Umboðsmaður Alþingis hefur upplýst atvinnuvegaráðuneytið um að til skoðunar sé að embættið taki upp frumkvæðisathugun vegna ítrekaðra kvartana yfir þe...
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
Gunna Dís og Fannar Sveinsson, sem stýrðu skemmtidagskrá í söfnunarþætti fyrir endurbætur á Reykjalundi slógu á létta strengi í viðtali við Svein Guðm...
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
Pike survived two lethal injections on Wednesday and is currently in critical condition in hospital.
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
Þremenningarnir Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Steindi Jr. hafa gert það að árlegri hefð að halda bingó á haustin og í ár verður engin breyting á....
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
📅 03.10.2026 👁️ 2
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
Aðeins um 2% bandarískra heimila greiddu fyrir gervigreindarþjónustu í apríl síðastliðnum, samkvæmt nýrri samantekt fjárfestingarfélagsins Andreessen ...
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
📅 03.10.2026 👁️ 2
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
Fréttastofa RÚV hlýtur töluverða gagnrýni á Facebook-síðu sinni fyrir að birta mynd frá Jökuldal þar sem alvarlegt umferðarslys átti sér stað fyrr í d...
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega Alma Möller heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur rætt við Ingu Sæ­land fé­lags­mála­ráð­herra um óljós mörk á ...
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
Samkvæmt greiningu sem sambandið fékk hagfræðing frá Context til að gera eru tekjur ríkissjóðs sem rekja má til Austurlands 54,2 milljarðar á ári en ú...
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Mótmælendur kalla eftir betri löggjöf fyrir leigjendur en tillögur ríkisstjórnarinnar gegn húsnæðiskre...
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
Gul viðvörun er í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum. Á vef Veðurstofu Íslands segir að síðustu dagar hafi verið mjög úrkomusamir víða...
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
📅 03.10.2026 👁️ 1
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
„Sumir segja að hún hafi bara þjónað vel. Ég held að það sé hægt að breyta. Ég hef bent á það að ég vilji sjá eina löggjöf,“ segir Gylfi Dalmann Aðals...
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
📅 03.10.2026 👁️ 2
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
Ökukennari í Rangárvallasýslu furðar sig á þeirri ákvörðun Samgöngustofu og Frumherja að hætta að leyfa þeim sem eru að læra á bíl að taka ökupróf, ve...
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
Greint var frá rannsókninni á Vísi en hún er unnin af alþjóðlegri hugveitu að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og er sú fyrsta sinnar tegundar. Um ...
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
📅 03.10.2026 👁️ 2
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
Mynd Það skiptir máli hvort stjórnað er af félagshyggju eða frjá
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
Nanna er rafmagnsverkfræðingur og stofnaði Knittable til að hjálpa prjónurum að vera sjálfstæðari í sköpun sinni með hjálp tækni. Thelma er fatahönnuð...
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
📅 03.10.2026 👁️ 2
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
Um klukkan hálf tólf í dag barst lögreglu á Austurlandi tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Þetta kemur fram í tilky...
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út að Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi vegna alvarlegs hópslyss. Hópslysaáætlun var virkjuð.Átt...
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
Langtímaatvinnuleysi er að aukast, segir forseti ASÍ sem telur stýrivexti Seðlabankans koma niður á samfélaginu öllu. Formaður efnahags- og viðskiptan...
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
📅 03.10.2026 👁️ 2
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
Shoko Kawata vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar hún tilkynnti að hún hygðist taka sér fæðingarorlof, fyrst allra bæjarstjóra í Japan. Fyrir ákvörð...
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
Kristrún miðlæg í starfsaftökum Fréttin3. október 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Starfsaftökur í stjórnarráð...
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
📅 03.10.2026 👁️ 2
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
The This Morning presenter said she believes she experienced a panic attack on Friday's show.
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
Truflun veldur því að ekki virkar að uppfæra stafræn ökuskírteini í Ísland.is smáforritinu um þessar mundir. Stafrænu ökuskírteinin eru því ekki nothæ...
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
Skipulögð mótmæli fara fram í meira en 50 borgum og bæjum á Spáni í dag. Mótmælin snúa að húsnæðismálum, ekki síst leigumarkaðnum.Mótmælin hófust efti...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
Það eru 20 skipulagðir glæpahópar starfandi á Íslandi, hópar sem í eru bæði Íslendingar og útlendingar og starfa í fleiri en einu landi. Mikilvægt er ...
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
📅 03.10.2026 👁️ 2
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest brottvísun konu frá Namibíu og tveggja ára endurkomubann. Konan sagðist hafa yfirgefið íslenskan eiginmann sin...
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
📅 03.10.2026 👁️ 2
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
Saksóknari í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem rannsakar árás flugmanns á flugstjóra FlyDubai segir að hann hafa ráðist að honum með öxi og hann ha...
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
Ökumennirnir sýna þá ökuhraðann á mælaborðinu og sýna sjálfa sig smella öryggisbeltinu af áður en þeir deila myndefninu á samfélagsmiðlum. Orðið ökuní...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
Hópslysaáætlun hefur verið að virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal.
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi fyrst frá. Tvær þyrlur hafa verið kallaðar út vegna slyssins. Lögregl...
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
Greint verður frá nýjust vendingum í lifandi fréttavakt hér neðst.  Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi f...
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
📅 03.10.2026 👁️ 3
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs furðar sig á viðbrögðum Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæði...
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
📅 03.10.2026 👁️ 3
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu...
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
📅 03.10.2026 👁️ 2
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
Housing protests are taking place across four Canary Islands this weekend as campaigners demand action over rents, evictions and access to affordable ...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 3
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal á Austurlandi. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsin...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal á Austurlandi.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsins...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á ...
Smella af sér bílbeltunum á ógnar­hraða og breytingar í Kerlingar­fjöllum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Smella af sér bílbeltunum á ógnar­hraða og breytingar í Kerlingar­fjöllum - Vísir
Orðið ökuníðingur sé notað í jákvæðri merkingu meðal afmarkaðs hóps.  Við kynnum okkur einnig atvik sem varð á Hólmsheiðinni í gær þar sem að flugvél ...
Electricity blackout affects 70,000 people in Lanzarote and disrupts drinking-water supply
📅 03.10.2026 👁️ 3
Electricity blackout affects 70,000 people in Lanzarote and disrupts drinking-water supply
A major power failure across Lanzarote this morning shut down the island’s desalination plants, interrupting drinking-water production and prompting w...
Protesters across Spain demand action over housing crisis
📅 03.10.2026 👁️ 3
Protesters across Spain demand action over housing crisis
More than 50 protests are planned to take place on Saturday after the government failed to get emergency legislation through parliament.
Bubbi og Kristmundur Axel tóku lagið fyrir Reykjalund
📅 03.10.2026 👁️ 3
Bubbi og Kristmundur Axel tóku lagið fyrir Reykjalund
Bubbi Morthens og Kristmundur Axel tóku saman lagið „Kominn heim“ í söfnunar- og skemmtiþættinum Endurhæfum Reykjalund í gærkvöldi. Meira en 111 millj...
Gul við­vörun eftir stóra skriðu­ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Gul við­vörun eftir stóra skriðu­ - Vísir
Lægð gengur yfir landið í dag. Þrátt fyrir að heildarúrkoman sem fylgi henni sé ekki talin veruleg með tilliti til skriðuhættu getur lítil viðbótarúrk...
Fimleikafélagið Björk órekstrarhæft við óbreyttar aðstæður - Mælt með að Hafnarfjarðarbær stöðvi greiðslur ef ekkert breytist
📅 03.10.2026 👁️ 3
Fimleikafélagið Björk órekstrarhæft við óbreyttar aðstæður - Mælt með að Hafnarfjarðarbær stöðvi greiðslur ef ekkert breytist
Fluttar voru fréttir af því í vikunni að vegna fjárhagserfiðleika hefði Fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði gripið til þess að segja öllum þjálfurum f...
Vikulokin – Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður
📅 03.10.2026 👁️ 3
Vikulokin – Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður
Kjaramál og atvinnuleysi, Landsvirkjun og samtal forseta Íslands og ungs fólks eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Þátturinn er í þremur hlutum.Ingvar...
Illa brugðið en heill á húfi - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Illa brugðið en heill á húfi - Vísir
Þetta staðfestir flugmaður flugvélarinnar í samtali við fréttastofu. Hann er heill á húfi þótt að honum hafi brugðið illa við atvikið. Hann baðst unda...
Ráðast í aðgerðir vegna sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum
📅 03.10.2026 👁️ 3
Ráðast í aðgerðir vegna sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum
Neytendaverndarstofnanir í Evrópu beina spjótum sínum að níu tölvuleikjaframleiðendum í samhæfðum aðgerðum. Markmið aðgerða samstarfsnets stofnananna ...