Þetta er stefna flokkanna í sam­göngu­málum í Reykja­vík - Vísir

Þetta er stefna flokkanna í sam­göngu­málum í Reykja­vík - Vísir

Þetta er stefna flokkanna í sam­göngu­málum í Reykja­vík - Vísir

Tilefnið eru kosningar til sveitarstjórna þann 16. maí næstkomandi. Samgöngumál hafa verið fyrirferðarmikil í aðdraganda þessara kosninga þvert á sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og er því þjónusta við lesendur Vísis að taka saman stefnu flokkanna á einum stað. Í Reykjavík eru ellefu framboð í boði á kjörseðli, þessi umfjöllun er unninn upp úr vefsíðum þeirra.

Flokkur fólksins - Endurskoðunarákvæði samgöngusáttmála og fjölgun bílastæða

Flokkur fólksins leggur til að endurskoðunarákvæði í samgöngusáttmálanum verði nýtt til að stöðva þrengingu að einkabílnum á stofnæðum. Þá vill flokkurinn fjölga bílastæðum í stað þess að fækka þeim. „Það sækja ekki allir þjónustu í strætó eða á hjóli.“

Þá vill flokkurinn fjölga göngubrúm og undirgöngum í stað gönguljósa við fjölfarnar götur. Þannig sé hægt að greiða fyrir umferð og stórauka öryggi gangandi og hjólandi.

„Innleiðum snjallstýrð umferðarljós um alla borg til að bæta umferðarflæði. Bílaraðir eiga ekki að myndast við rauð ljós á auðum gatnamótum.“

Guðmundur Ingi Þóroddsson er oddviti Flokks fólksins.Vísir/Vilhelm

Þá vill flokkurinn vinda ofan af því sem hann kallar græðgisvæðingu og flækjustigi bílastæðakerfisins. Leggur hann til að tekið verði til „í app-frumskóginum, lækkum óhófleg gjöld og styttum gjaldskyldutímann.“

Flokkurinn vill auk þess draga úr umferðarteppum með því að ljúka viðræðum við stóra vinnustaði og skóla um breytingu á upphafstíma vinnu og vaktaskipta. Götur borgarinnar eigi að sópa og hreinsa oftar og draga þannig úr svifryki. Flokkurinn vill auk þess fjölga stæðum fyrir rafskútur svo þær liggi ekki um borgarlandið líkt og hráviði.

„Tryggjum Reykjavíkurflugvöll áfram í Vatnsmýrinni. Við styðjum byggingu nýrrar og betri flugstöðvar þar til og ef nýr innanlandsflugvöllur verður byggður.“

Stefnu flokksins má lesa í heild hér.

Framsóknarflokkurinn - Gjaldskylda felld niður eftir 18:00

Framsóknarflokkurinn leggur til tólf punkta í stefnuskrá sinni í samgöngumálum. Flokkurinn segist vilja að samgöngur í borginni séu skilvirkar og öruggar og að fólk hafi valfrelsi um ferðamáta.

Flokkurinn vill tryggja framgang samgöngusáttmálans en tekur sérstaklega fram að hann vilji breyta útfærslu vegna borgarlínu við Suðurlandsbraut. Þá vill flokkurinn hraða uppbyggingu Sundabrautar.

Flokkurinn vill bæta umferðarflæði og umferðarljósastýringu, knýja á um hröðun mislægra gatnamóta við Bústaðaveg og Reykjanesbraut, efla almenningssamgöngur með sérakreinum, bættu leiðarkerfi, góðum strætóskýlum og tíðari ferðum.

Einar Þorsteinsson er oddviti Framsóknar í Reykjavík. Vísir/Vilhelm

Þá segist Framsóknarflokkurinn vilja byggja upp örugga göngu- og hjólastíga, tryggja bílastæði við nýjar íbúðir og gott aðgengi að P-stæðum í borginni. Flokkurinn vill auk þess fella niður gjaldskyldu við bílastæði í miðborginni eftir klukkan 18:00 og fjölga rafhleðslustöðvum við bílastæði borgarinnar svo sem við grunnskóla.

Þá vill flokkurinn standa við samkomulag um rekstur Reykjavíkurflugvallar sem kveður á um að völlurinn verði í Vatnsmýri þar til annar jafn góður eða betri staður hefur verið fundinn. Flokkurinn vill auk þess lækka gjöld almenningssamgangna fyrir háskólanema og tengja Gufunesbyggð við almenningssamgöngur.

Stefnu flokksins má lesa í heild hér.

Góðan daginn - Vilja róa umræðuna

„Mikill ágreiningur er um leiðir í samgöngum og viljum við róa umræðuna og ræða okkur niður á bestu lausnina með öll gögn fyrir framan okkur. En það vantar ýtarlegri upplýsingar varðandi skipulag umferðamála á höfuðborgarsvæðinu. Án þeirra er erfitt að taka upplýsta ákvörðun,“ segir í stefnu Góðan daginn.

Ingimar Þór Friðriksson oddviti Góðan daginn.Vísir/Anton Brink

Þar segir ennfremur að áríðandi sé að bæta samgönguvandamál bæði fyrir bíla og almenningssamgöngur. Framboðið vilji að íbúar geti valið sér raunhæfa samgöngumáta. Framboðið vilji auk þess einfalda og bæta fyrirkomulag bílastæðagjalda.

„Við viljum tryggja raunhæft skipulag hverfa með að lágmarki 1,5 bílastæði á hverja íbúð, nema í undatekningartilvikum og heimila einnig uppbyggingu bílastæðahúsa þar sem það á við.“

Stefnu flokksins má lesa í heild hér.

Miðflokkurinn - Núverandi ástand óviðunandi

„Ástand samgöngumála í Reykjavík er algjörlega óviðunandi og hefur versnað til muna á undanförnum árum með auknum töfum og tilheyrandi kostnaði fyrir borgarbúa. Ráðandi stefna hefur gengið út á að þrengja að fjölskyldubílnum og því haldið fram að án slíkra þvingana fáist ekki fleiri til að nota almenningssamgöngur. Þetta er röng nálgun og ómanneskjuleg,“ segir í stefnuskrá Miðflokksins.

Þar segir ennfremur að hugmyndir um borgarlínu séu byggðar á þessari hugmyndafræði og því leggist flokkurinn gegn þeim. Samgöngukerfið þurfi að taka mið af þeirri staðreynd að bíllinn sé nauðsynlegur hluti af daglegu lífi flestra og verði áfram. Því þurfi að greiða fyrir umferð hans um leið og almenningssamgöngur séu bættar, með mun hagkvæmari hætti en gert sé ráð fyrir með borgarlínu.

Ari Edwald er oddviti Miðflokksins í Reykjavík. Vísir/Anton Brink

„Kyrrstaðan rofin. Langflestir borgarbúar vilja reka sinn eigin bíl. Samgöngumál í borginni verða aðeins leyst með því að rjúfa algjöra kyrrstöðu og hefja á ný gatnaframkvæmdir til að greiða fyrir umferð, en slíkar framkvæmdir hafa nánast legið niðri í tvo áratugi, sem hluti af herferð borgaryfirvalda gegn bílnotendum. Jafnframt verði umferðarstýring nútímavædd með snjallljósastýringu og annarri tækni, en slíkar breytingar munu stórbæta afkastagetu umferðarkerfa.“

Þá segir flokkurinn að stórefla þurfi almenningssamgöngur með raunhæfum hætti án þess að tefja fyrir bílaumferð. Með hraðvagnakerfi, aukinni tíðni ferða, betri vögnum og bættu leiðakerfi sé unnt að ná sambærilegum árangri og stefnt sé að með borgarlínu, á mun hagkvæmari hátt. Þá segist flokkurinn vilja gera tilraun með gjaldfrjálsan strætó til að hvetja fleiri til að nýta sér þann kost og draga þannig úr álagi á almenna umferð.

„Miðflokkurinn vill fjölga bílastæðum og tryggja eðlilegt aðgengi að þeim. Undanfarin ár hefur markvisst verið dregið úr framboði bílastæða og gjaldtaka hækkuð úr hófi, sem bitnar bæði á íbúum og atvinnulífi. Slík stefna hefur aukið álag inn í nærliggjandi hverfi þannig að ökumenn leita að stæðum og aka um oftar en hitt. Bílastæði eru grunnþjónusta í borgarsamfélagi, ekki lúxusvara, og skipulag borgarinnar þarf að endurspegla þann veruleika. Í nýbyggingum er almennt gengið út frá fullkomlega óraunhæfum áætlunum um fjölda bílastæða. Slá þarf nýjan tón í áætlanagerð, en einnig vinna að endurheimt bílastæða þar sem það er unnt.“

Þá segist Miðflokkurinn vilja horfa til framtíðar á tímum örra tæknibreytinga. Flokkurinn vill hefja samstarf við viðeigandi erlenda aðila um tilraunir með sjálfakandi bíla og minni strætisvagna á völdum svæðum og vera í forystu um nýjar tæknilausnir.

Stefnu flokksins má lesa í heild sinni hér.

Okkar borg - Stæði í bílakjallara, mislæg gatnamót og hafna borgarlínu

Okkar borg tiltekur stuðning við tvö bílastæði með hverri íbúð, annað í bílakjallara og hinu þar sem því sé viðkomið. Þá er borgarlínu og tilheyrandi vegatollum alfarið hafnað.

„Samgönguúrbætur fyrir alla ferðamáta og mislæg gatnamót þar sem hægt er. Sundabraut í göngum frá Lauganesi að Geldingarnesi. Reykjavíkurborg haldi áfram rekstri bílastæðahúsa og götustæða með hófstilltu gjaldi.“

Stefnu​ flokksins má lesa í heild sinni hér.

Sigfús Aðalsteinsson er oddviti Okkar borgar. Vísir/Lýður Valberg

Píratar - Hraða borgarlínu og efla hjólastíga

Píratar segja að eina raunhæfa leiðin til að bregðast við fólksfjölgun og tilheyrandi fjölgun bíla sé að búa til þannig kerfi að hærra hlutfall ferða geti verið hjólandi, gangandi eða í almenningssamgöngum.

„Áhrifaríkasta leiðin til þess að efla almenningssamgöngur og hækka hlutfall ferða í þeim er að auka tíðni svo fólk þurfi ekki að bíða, eða mæta á ákveðnum tíma, helst þurfa vagnar að fara á 7-10 mínútna fresti. Bestum umferðarflæðið í borginni með að hraða fyrir borgarlínunni: markmiðið er 70% íbúa búi í innan við 400 metra fjarlægð frá stoppistöð leiðar á að minnsta kosti 10 mínútna tíðni á annatíma eigi síðar en árið 2040.“

Kristinn Jón Ólafsson er oddviti Pírata.Vísir

Píratar segjast hafa stóreflt hjólastíga á síðustu tveimur kjörtímabilum. Framboðið vilji halda því áfram. Öflugar hjólreiðar séu lýðheilsumál og líka umferðarmál, ferðir sem farnar séu hjólandi séu ekki ferðir sem bæti á umferðarþungann.

„Með stefnu um gönguvæna borg tókum við stórt skref í rétta átt. Tryggjum fleiri göngugötur og stóreflum öruggari og betri gönguleiðir og stíga um borgina okkar allra. Með þessum aðferðum búum við til alvöru valkosti fyrir fólk til þess að ferðast eins og það kýs, og með því að fjölga ferðum sem farnar eru gangandi, hjólandi og í almenningssamgöngum erum við líka að bæta umferðarflæði fyrir þau sem nota bíl.“

Stefnu​ flokksins má lesa í heild sinni hér.

Samfylkingin - Flýta Miklubrautargöngum og standa með samgöngusáttmála

Samfylkingin segist í stefnuskrá sinni vilja byggja upp samgöngukerfi í Reykjavík sem mætir þörfum fólks og daglegu lífi þess. Flokkurinn tekur fram að hann standi með samgöngusáttmálanum.

„Samfylkingin vill bæta samgöngur, stytta ferðatíma, minnka tafir og auka öryggi með því að hrinda samgöngusáttmálanum í heild sinni í framkvæmd, þar á meðal Sæbrautarstokki, Miklubrautargöngum og Borgarlínu.“

Flokkurinn vilji byggja upp öflugar almenningssamgöngur sem veiti fleirum raunhæfan valkost við einkabílinn þannig að dregið sé úr álagi á vegakerfið fyrir þau sem vilji keyra. Þá vill flokkurinn flýta undirbúningi á Miklubrautargöngum til að tryggja að þau komist í framkvæmd sem fyrst auk þess sem flokkurinn vill setja Sæbrautarstokkinn í forgang til að bæta umferðarflæði.

Pétur Marteinsson er oddviti Samfylkingarinnar. Vísir/Lýður Valberg

„Tryggjum metnaðarfulla uppbyggingu Borgarlínu svo hún verði áreiðanlegur valkostur. Við styðjum ekki hálfkák eða málamiðlanir á kostnað gæða. Tryggjum gott umferðarflæði allra ferðamáta um framkvæmdasvæði og lágmarks rask fyrir íbúa og atvinnulíf á framkvæmdatíma.“

Þá segist flokkurinn vilja fjölbreytta ferðamáta, gera Reykjavík að gönguvænni borg með göngustígum, byggja áfram upp örugga og samfellda hjólastíga með áherslu á að tengja hverfi borgarinnar betur saman. Á meðan borgarlína byggist upp vill flokkurinn halda áfram að bæta þjónustu strætó með fleiri forgangsakreinum, betra aðgengi, bættu leiðakerfi og aukinni tíðni um helgar.

Þá minnist flokkurinn sérstaklega á Sundabraut og segir hana lyklilframkvæmd í því að tengja höfuðborgarsvæðið og Vesturland betur saman, í ljósi þeirrar þróunar að suðvesturhorn sé hægt og rólega að verða eitt samverkandi þéttbýlissvæði. Flokkurinn segist vilja gæta að samráði við íbúa um útfærslu Sundabrautar.

Samfylkingin segist auk þess vilja efla almenningssamgöngur milli Suðurnesja og Reykjavíkur. Þá vill flokkurinn draga úr óþarfa flugumferð um Reykjavíkurflugvöll með takmörkun á einkaþotum, þyrluflugi og kennsluflugi til að verja öryggi, heilsu og lífsgæði íbúa í grennd.

Stefnu​ flokksins má lesa í heild sinni hér.

Sjálfstæðisflokkurinn - Endurskoðun sáttmála og vinda ofan af þrengingum

Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn sem lætur fylgja með tímaramma með sínum tillögum. Þær eru 27 talsins og ná frá hundrað dögum og til fjögurra ára. Þannig segist flokkurinn ætla innan hundrað daga að fara fram á endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og kalla eftir skýrleika hvað varðar fjármögnun.

Þá ætlar flokkurinn að veita níutíu prósenta afslátt af gatnagerðargjaldi við gerð bílakjallara og stytta gjaldskyldutíma á bílastæðum í miðborginni svo ekki verði rukkað eftir klukkan 18:00, fjarlægja aðskotahluti úr bílastæðum í miðborg og afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. Þá ætlar flokkurinn að hafna fyrirhuguðu deiluskipulagi við Suðurlandsbraut.

Hildur Björnsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokks í Reykjavík. Vísir/Einar

Fyrsta tillaga flokksins sem ráðast á í innan tólf mánaða varðar þrengingar við gatnamót við Höfðabakka, en flokkurinn ætlar að vinda ofan af þeim. Þá ætlar flokkurinn að flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa um alla borg, hefja rannsóknir á tækifærum til að koma nýjum stofnvegum í jarðgöng í Reykjavík og vinna með Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og LSH að betri álagsdreifingu umferðar með breytilegu upphafi vinnudags.

Þá vill flokkurinn innleiða skilvirkara greiðslukerfi fyrir Strætó innan tólf mánaða, nota tæknilausnir og gervigreind til að kortleggja notkun Strætó og bæta þjónustuna, bæta lýsingu við göngustíga í borginni, sér í lagi gönguleiðir barna, undirbúa innviði fyrir sjálfkeyrandi bíla og stórbæta aðgengi í borgarlandinu að hreinni íslenskri orku fyrir rafbílanotendur í samstarfi við aðila á markaði.

Aðgerðir flokksins sem miða við fjögur ár er uppbygging Sundabrautar með áherslu á gangalausnir. Þá ætlar flokkurinn að hefja framkvæmdir við Miklubrautargöng í einkaframkvæmd, og við mislæg gatnamót við Reykjanesbraut og Bústaðarveg auk þess sem flokkurinn ætlar að ráðast í viðhaldsátak á gangstéttum borgarinnar og fjölga upphituðum göngustígum í borginni.

„Við ætlum að endurskoða Borgarlínu frá grunni og innleiða nýtt hraðvagnakerfi á sérakreinum sem ekki þrengir að umferð,“ segir ennfremur í stefnu flokksins. Flokkurinn ætli að koma undirgöngum og göngubrúm fyrir á gönguleiðum barna sem þveri fjölfarna vegi. Þá ætli flokkurinn að klára uppbyggingu hjólastíga í samræmi við hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar. Flokkurinn muni tryggja rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar á meðan betri staður hefur ekki fundist, tryggja að Sundahöfn verði áfram stærsta inn- og útflutningshöfn þjóðarinnar og stækka hafnarsvæðið með landfyllingum.

Eina loforð flokksins sem nær lengra en til fjögurra ára, er merkt framtíðinni. Þar segir: „Við ætlum að tryggja fjölbreytta valkosti um greiðar samgöngur og koma fólki hraðar á milli staða.“

Stefnu​ flokksins má lesa í heild sinni hér.

Sósíalistaflokkur Íslands - Stöðva einkavæðingu og lækka gjöld

Sósíalistaflokkurinn leggur fram stefnu í sjö liðum. Sá fyrsti snýr að öflugum strætó sem rekinn sé af borginni fyrir borgarbúa og leggur flokkurinn áherslu á lækkun gjalda samhliða aukinni þjónustu sem tryggi velgengni strætó og borgarlínu.

„Hagstæð árskort og mánaðarkort eru forsenda þess að Strætó sé vænlegur kostur fyrir borgarbúa. Við ætlum að byrja á því að vinda ofan af þessum stöðugu gjaldhækkunum og lækka árskortið í fyrra ástand – með það sem endanlegt markmið okkar skrúfa niður fargjöldin þar til almenningssamgöngur verða með öllu gjaldfrjálsar. Ef Akureyri getur haft gjaldfrjálsan Strætó getur Reykjavík það. Með betri þjónustu og lægri gjöldum mun Strætó öðlast traust sem góður ferðamáti sem er lykil forsenda til frekari uppbyggingu almenningssamgangna.“

Þá segir flokkurinn að áætlun yfirvalda sé að selja allar eignir Strætó Bs. og útvista rekstrinum í heild á næstu þremur árum. Þannig eigi einkafyrirtæki að sjá um allan akstur og eignarhald á vögnunum, en flokkurinn segir meintan sparnað með því byggjast á því að gefa einkafyrirtækjum leyfi til að níðast á aðfluttu vinnuafli á lágmarkslaunum með ekkert starfsöryggi, flokkurinn segir skilvirkni útvistunar vera blekkingu. Flokkurinn vilji að vagnstjórar séu opinberir starfsmenn, Reykjavík þurfi að verja almenningssamgöngur með kjafti og klóm og borgin þurfi að vera undirbúin undir að stofna eigið akstursfélag.

Silja Sóley Birgisdóttir er oddviti Sósíalistaflokksins.

Flokkurinn segir að hugsa þurfi almenningssamgöngur sem heildrænt kerfi, raunin sé sú að mörg hverfi séu illa tengd grunnþjónustu og öðrum borgarhlutum nema með einkabíl og nefnir flokkurinn Gufuneshverfi þar sem loforð um bíllausan lífsstíl hafi verið svikin. Eins séu þjónustukjarnar eins og úti á Granda með veikar tengingar við strætókerfið og segir flokkurinn það ekki ganga.

Þá segir í stefnu flokksins að framkvæmd borgarlínu og þróun hennar sé dæmi um rörsýn sem einkenni flest stærri verkefni borgarinnar, verkefni festast í nefndum og erlend ráðgjafafyrirtæki fái óeðlilega mikið vægi við framgang þeirra. Bendir flokkurinn á að á þeim ellefu árum sem borgarlínan hafi verið í þróun hafi hún verið í sífelldri endurskoðun án þess að til framkvæmda komi. Fullyrðir flokkurinn að bættar almenningssamgöngur muni laga umferðarteppuna, mikilvægasti liðurinn sé að almenningssamgöngur festist ekki sjálfar í teppunum.

Flokkurinn segist auk þess vilja öll smáforrit tengd bílastæðum í burt og vill að bílastæðasjóður sjái um innheimtu gjalds fyrir bílastæði í eigu borgarinnar án milliliða. Íbúakort á gjaldskyldum svæðum í miðborginni eigi ekki að vera gjaldskyld og segir flokkurinn ekki réttlætanlegt að heimta hærra gjald fyrir bíla sem ganga fyrir bensíni heldur en fyrir rafmagn líkt og gert sé í dag.

„Við lifum í raunveruleikanum og nýbyggðar íbúðir verða að vera skipulagðar með fullnægjandi bílastæðafjölda sem endurspeglar raunhæfar ferðavenjur Reykvíkinga. Allt annað er fantasía sem mun skapa fleiri vandamál fyrir borgarbúa.“

Þá vill flokkurinn spýta í lófana í uppbyggingu hjóla-og göngustíga, snúa við útvistun á snjómokstri, hálkuvörnum, vegahreinsun, malbikun, viðhaldi vega og hraðahindrunum. Flokkurinn er á móti gjaldtöku á stofnbrautum úr borginni og krefst samráðs vegna Sundabrautar.

Stefnu​ flokksins má lesa í heild sinni hér.

Viðreisn - Kortershverfi og bönd á gjaldskyldufrumskóg

„Góðar samgöngur eru lykilatriði fyrir Reykvíkinga. Viðreisn vill að fólk hafi frelsi til að velja á milli góðra ferðamáta sem virka vel um borgina. Að hafa fjölbreyttari valkosti en einkabílinn er gott fyrir budduna, til dæmis þegar fjölskyldur sjá fram á að geta losað sig við bíl númer tvö eða þrjú þegar aðrir samgöngumátar virka vel,“ segir í stefnuskrá Viðreisnar.

Þar eru fjórir punktar dregnir upp. Að tryggðir verði sterkir og fjölbreyttir samgöngumátar sem fólk hafi frelsi til að velja um, að Viðreisn styðji samgöngusáttmálann fyrir framtíð Reykjavíkur, vilji hraða vegaframkvæmdum við Bústaðaveg og Miklubrat og koma böndum á gjaldskyldufrumskóg bílastæða.

„Viðreisn styður Samgöngusáttmálann og við viljum halda áfram með Borgarlínu sem er grundvallaratriði fyrir framtíð Reykjavíkur. Að sama skapi verðum við að hraða sem mest framkvæmdum sem gagnast bílum, til dæmis mislægum gatnamótum Bústaðavegar og Sæbrautar, Miklubraut í jarðgöng og lagningu Sundabrautar.“

Björg Magnúsdóttir er oddviti Viðreisnar.Vísir/Anton Brink

Flokkurinn vilji bæta flæði umferðar með snjallri stýringu umferðarljósa og markvissum aðgerðum þar sem tafir eru mestar. Þá vill flokkurinn efla áfram þjónustu Strætó, framlengja metnaðarfulla hjólreiðaáætlun Reykjavíkur og aðlaga að nýjum hverfum og auknum fjölda hjólreiðamanna.

„Kortershverfi og góð þjónusta inni í hverfunum er lykilbreyta í því að draga úr skutli sem er fastur liður í lífi Reykvíkinga í dag. Börn þurfa að geta gengið örugga og vel upplýsta leið í skólann og það á að vera auðvelt fyrir börn og ungmenni að nýta almenningssamgöngur. Öflug vetrarþjónusta á gangstéttum og hjólastígum gerir það að raunhæfum möguleika að nýta hjól og aðra virka ferðamáta allan ársins hring.“

Viðreisn segist áfram munu beita sér fyrir frelsi og samkeppni á rafskútumarkaði. Halda áfram að styðja nýsköpun og nýjungar í samgöngumálum.

„Kortershverfi og góð þjónusta inni í hverfunum er lykilbreyta í því að draga úr skutli sem er fastur liður í lífi Reykvíkinga í dag. Börn þurfa að geta gengið örugga og vel upplýsta leið í skólann og það á að vera auðvelt fyrir börn og ungmenni að nýta almenningssamgöngur. Öflug vetrarþjónusta á gangstéttum og hjólastígum gerir það að raunhæfum möguleika að nýta hjól og aðra virka ferðamáta allan ársins hring.“

Þá segist flokkurinn ætla að standa vörð um hagsmuni borgarbúa við framkvæmd Sundabrautar. Hann vilji Sundabraut í göng og segist flokkurinn ætla að þrýsta á Vegagerðina að fara í viðeigandi mótvægisaðgerðir þegar komi að umhverfisáhrifum og öryggi allra vegfarenda.

„Viðreisn styður að Reykjavíkurflugvöllur sé til langs tíma litið víkjandi. Á meðan hann er á núverandi stað sé flugöryggi og notagildi flugvallarins tryggt. Í samræmi við samþykkta tillögu Viðreisnar í borgarstjórn viljum við að einka-, þyrlu-, kennslu- og æfingaflug færist frá flugvelli borgarinnar sem fyrst.“

Stefnu​ flokksins má lesa í heild sinni hér.

Vinstrið - Almenningssamgöngur kjaramál

Vinstrið segir í stefnuskrá sinni að almenningssamgöngur séu kjaramál. Gott flæði samgangna sé umhverfismál og að það eigi að vera greiðfært um borgina og auðvelt að komast á milli staða. vinstrið vilji að Reykvíkingar hafi raunverulegt val um hvernig þeir fari á milli staða. Lagt er upp með fimm punkta í stefnuskrá Vinstrisins í samgöngumálum.

Sanna Magdalena Mörtudóttir er oddviti Vinstrisins.Vísir/Ívar Fannar

„Gönguleiðir og gangstéttir eiga að vera öruggar. Almenningssamgöngur eiga að vera skilvirkar, áreiðanlegar og þægilegar,“ segir meðal annars í stefnunni. Þar segir að Reykvíkingar eigi að geta reitt sig á öflugan Strætó á meðan beðið er eftir Borgarlínu. Vinstrið vilji bæta leiðakerfi innan og á milli hverfa og gera almenningssamgöngur að raunverulegum valkosti strax.

„Aukin ferðatíðni strætó auk gjaldfrelsis fyrir grunnskólabörn setur tóninn fyrir framtíðina.Góðar almenningssamgöngur leysa umferðarhnúta, draga úr mengun og bæta bæði loftgæði og lífsgæði. Við stöndum með Borgarlínu.“

Stefnu​ flokksins má lesa í heild sinni hér.

#flokkanna #reykjavík #samgöngumálum #stefna #þetta


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262879783d/thetta-er-stefna-flokkanna-i-samgongumalum-i-reykjavik

📰 Aðrar fréttir

Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
📅 03.10.2026 👁️ 1
Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
Tveir umsjónarmenn eins vinsælasta fréttaskýringarþáttar í heimi um sönn sakamál líkja rannsóknarlögreglumanni sem leysti morðmál, þar sem maður var m...
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir Hvarf lít­ils hjarnskafls í Esj­unni er smá­vægi­leg­ur at­burð­ur í sam­an­burði við h...
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
New York Times greinir frá því að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum hafi upplýst strandgæsluna um að samskipti við flugvélina hefðu rofnað um klukkan s...
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
📅 03.10.2026 👁️ 1
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
Frank Strada, fangelsismálastjóri í Tennessee í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér. Það gerir hann í kjölfar þess að aftaka Christu Pike mistókst á miðv...
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
📅 03.10.2026 👁️ 2
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
Umboðsmaður Alþingis hefur upplýst atvinnuvegaráðuneytið um að til skoðunar sé að embættið taki upp frumkvæðisathugun vegna ítrekaðra kvartana yfir þe...
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
Gunna Dís og Fannar Sveinsson, sem stýrðu skemmtidagskrá í söfnunarþætti fyrir endurbætur á Reykjalundi slógu á létta strengi í viðtali við Svein Guðm...
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
Pike survived two lethal injections on Wednesday and is currently in critical condition in hospital.
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
Þremenningarnir Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Steindi Jr. hafa gert það að árlegri hefð að halda bingó á haustin og í ár verður engin breyting á....
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
📅 03.10.2026 👁️ 2
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
Aðeins um 2% bandarískra heimila greiddu fyrir gervigreindarþjónustu í apríl síðastliðnum, samkvæmt nýrri samantekt fjárfestingarfélagsins Andreessen ...
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
📅 03.10.2026 👁️ 2
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
Fréttastofa RÚV hlýtur töluverða gagnrýni á Facebook-síðu sinni fyrir að birta mynd frá Jökuldal þar sem alvarlegt umferðarslys átti sér stað fyrr í d...
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega Alma Möller heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur rætt við Ingu Sæ­land fé­lags­mála­ráð­herra um óljós mörk á ...
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
Samkvæmt greiningu sem sambandið fékk hagfræðing frá Context til að gera eru tekjur ríkissjóðs sem rekja má til Austurlands 54,2 milljarðar á ári en ú...
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Mótmælendur kalla eftir betri löggjöf fyrir leigjendur en tillögur ríkisstjórnarinnar gegn húsnæðiskre...
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
Gul viðvörun er í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum. Á vef Veðurstofu Íslands segir að síðustu dagar hafi verið mjög úrkomusamir víða...
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
📅 03.10.2026 👁️ 1
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
„Sumir segja að hún hafi bara þjónað vel. Ég held að það sé hægt að breyta. Ég hef bent á það að ég vilji sjá eina löggjöf,“ segir Gylfi Dalmann Aðals...
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
📅 03.10.2026 👁️ 2
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
Ökukennari í Rangárvallasýslu furðar sig á þeirri ákvörðun Samgöngustofu og Frumherja að hætta að leyfa þeim sem eru að læra á bíl að taka ökupróf, ve...
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
Greint var frá rannsókninni á Vísi en hún er unnin af alþjóðlegri hugveitu að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og er sú fyrsta sinnar tegundar. Um ...
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
📅 03.10.2026 👁️ 2
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
Mynd Það skiptir máli hvort stjórnað er af félagshyggju eða frjá
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
Nanna er rafmagnsverkfræðingur og stofnaði Knittable til að hjálpa prjónurum að vera sjálfstæðari í sköpun sinni með hjálp tækni. Thelma er fatahönnuð...
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
📅 03.10.2026 👁️ 2
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
Um klukkan hálf tólf í dag barst lögreglu á Austurlandi tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Þetta kemur fram í tilky...
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út að Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi vegna alvarlegs hópslyss. Hópslysaáætlun var virkjuð.Átt...
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
Langtímaatvinnuleysi er að aukast, segir forseti ASÍ sem telur stýrivexti Seðlabankans koma niður á samfélaginu öllu. Formaður efnahags- og viðskiptan...
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
📅 03.10.2026 👁️ 2
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
Shoko Kawata vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar hún tilkynnti að hún hygðist taka sér fæðingarorlof, fyrst allra bæjarstjóra í Japan. Fyrir ákvörð...
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
Kristrún miðlæg í starfsaftökum Fréttin3. október 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Starfsaftökur í stjórnarráð...
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
📅 03.10.2026 👁️ 2
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
The This Morning presenter said she believes she experienced a panic attack on Friday's show.
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
Truflun veldur því að ekki virkar að uppfæra stafræn ökuskírteini í Ísland.is smáforritinu um þessar mundir. Stafrænu ökuskírteinin eru því ekki nothæ...
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
Skipulögð mótmæli fara fram í meira en 50 borgum og bæjum á Spáni í dag. Mótmælin snúa að húsnæðismálum, ekki síst leigumarkaðnum.Mótmælin hófust efti...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
Það eru 20 skipulagðir glæpahópar starfandi á Íslandi, hópar sem í eru bæði Íslendingar og útlendingar og starfa í fleiri en einu landi. Mikilvægt er ...
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
📅 03.10.2026 👁️ 2
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest brottvísun konu frá Namibíu og tveggja ára endurkomubann. Konan sagðist hafa yfirgefið íslenskan eiginmann sin...
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
📅 03.10.2026 👁️ 2
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
Saksóknari í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem rannsakar árás flugmanns á flugstjóra FlyDubai segir að hann hafa ráðist að honum með öxi og hann ha...
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
Ökumennirnir sýna þá ökuhraðann á mælaborðinu og sýna sjálfa sig smella öryggisbeltinu af áður en þeir deila myndefninu á samfélagsmiðlum. Orðið ökuní...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
Hópslysaáætlun hefur verið að virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal.
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi fyrst frá. Tvær þyrlur hafa verið kallaðar út vegna slyssins. Lögregl...
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
Greint verður frá nýjust vendingum í lifandi fréttavakt hér neðst.  Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi f...
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
📅 03.10.2026 👁️ 3
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs furðar sig á viðbrögðum Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæði...
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
📅 03.10.2026 👁️ 3
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu...
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
📅 03.10.2026 👁️ 2
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
Housing protests are taking place across four Canary Islands this weekend as campaigners demand action over rents, evictions and access to affordable ...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 3
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal á Austurlandi. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsin...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal á Austurlandi.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsins...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á ...
Smella af sér bílbeltunum á ógnar­hraða og breytingar í Kerlingar­fjöllum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Smella af sér bílbeltunum á ógnar­hraða og breytingar í Kerlingar­fjöllum - Vísir
Orðið ökuníðingur sé notað í jákvæðri merkingu meðal afmarkaðs hóps.  Við kynnum okkur einnig atvik sem varð á Hólmsheiðinni í gær þar sem að flugvél ...
Electricity blackout affects 70,000 people in Lanzarote and disrupts drinking-water supply
📅 03.10.2026 👁️ 3
Electricity blackout affects 70,000 people in Lanzarote and disrupts drinking-water supply
A major power failure across Lanzarote this morning shut down the island’s desalination plants, interrupting drinking-water production and prompting w...
Protesters across Spain demand action over housing crisis
📅 03.10.2026 👁️ 3
Protesters across Spain demand action over housing crisis
More than 50 protests are planned to take place on Saturday after the government failed to get emergency legislation through parliament.
Bubbi og Kristmundur Axel tóku lagið fyrir Reykjalund
📅 03.10.2026 👁️ 3
Bubbi og Kristmundur Axel tóku lagið fyrir Reykjalund
Bubbi Morthens og Kristmundur Axel tóku saman lagið „Kominn heim“ í söfnunar- og skemmtiþættinum Endurhæfum Reykjalund í gærkvöldi. Meira en 111 millj...
Gul við­vörun eftir stóra skriðu­ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Gul við­vörun eftir stóra skriðu­ - Vísir
Lægð gengur yfir landið í dag. Þrátt fyrir að heildarúrkoman sem fylgi henni sé ekki talin veruleg með tilliti til skriðuhættu getur lítil viðbótarúrk...
Fimleikafélagið Björk órekstrarhæft við óbreyttar aðstæður - Mælt með að Hafnarfjarðarbær stöðvi greiðslur ef ekkert breytist
📅 03.10.2026 👁️ 3
Fimleikafélagið Björk órekstrarhæft við óbreyttar aðstæður - Mælt með að Hafnarfjarðarbær stöðvi greiðslur ef ekkert breytist
Fluttar voru fréttir af því í vikunni að vegna fjárhagserfiðleika hefði Fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði gripið til þess að segja öllum þjálfurum f...
Vikulokin – Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður
📅 03.10.2026 👁️ 3
Vikulokin – Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður
Kjaramál og atvinnuleysi, Landsvirkjun og samtal forseta Íslands og ungs fólks eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Þátturinn er í þremur hlutum.Ingvar...
Illa brugðið en heill á húfi - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Illa brugðið en heill á húfi - Vísir
Þetta staðfestir flugmaður flugvélarinnar í samtali við fréttastofu. Hann er heill á húfi þótt að honum hafi brugðið illa við atvikið. Hann baðst unda...
Ráðast í aðgerðir vegna sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum
📅 03.10.2026 👁️ 3
Ráðast í aðgerðir vegna sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum
Neytendaverndarstofnanir í Evrópu beina spjótum sínum að níu tölvuleikjaframleiðendum í samhæfðum aðgerðum. Markmið aðgerða samstarfsnets stofnananna ...