„Þessa van­líðan þekkir enginn nema að hafa upp­lifað hana“ - Vísir

„Þessa van­líðan þekkir enginn nema að hafa upp­lifað hana“ - Vísir

„Þessa van­líðan þekkir enginn nema að hafa upp­lifað hana“ - Vísir

Sesselja segir Þorlák Inga hafa verið afskaplega vinamargan og hún hafi fengið að kynnast mörgum þeirra eftir andlát hans.

„Ég vissi alveg að hann ætti mikið af vinum og kunningjum en þegar hann dó tókum við á móti mörgum vinahópum,“ segir hún og að það hafi verið gott að upplifa eftir andlátið hversu mörgum hann hafi tengst.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.

Eftir að hann lést hafi vinir hans svo leitað til hennar og spurt hvort þeir mættu nefna nýstofnað knattspyrnulið sitt í höfuðið á honum. Fjallað var um liðið og sigur þess á Boladeildinni á Vísi árið 2022 á afmælisdegi Þorláks Inga en sigurmarkið var skorað á nánast sömu mínútu og hann kom í heiminn árið 1999.

„Mér hefur alltaf þótt þetta svo svakalega fallegt af því að þetta var alltaf hans draumur að geta búið til fótboltalið og það var alltaf á dagskrá. Þeir voru búnir að hittast einu sinni og farið yfir þessi mál og ætluðu að stofna fótboltafélag, sem varð svo auðvitað aldrei úr, en þetta er ótrúlega falleg saga,“ segir hún og að henni þyki alltaf mjög vænt um að vinir hans haldi minningu hans á lofti með þessum hætti.

„Þetta er falleg hugsun og þeir ákváðu í ár að framleiða nýja búninga og hafa Sorgarmiðstöðina fremst á búningnum og þess vegna ákvað ég að hlaupa fyrir Sorgarmiðstöðina í Reykjavíkurmaraþoninu ár, til að sýna þeim samstöðu af því þeir eru búnir að gera svo fallega hluti.“

Hún er skráð í hálfmaraþon og segist hafa góðan stuðning fjölskyldu sinnar á hliðarlínunni. Hún hefur tekið þátt áður og þá hlaupið fyrir Píeta. Bæði hún og Þorlákur Ingi hafi fengið mikla aðstoð þar og sjálf hafi hún líka leitað til Birtu, landssamtaka foreldra og forráðamanna sem misst hafa barn skyndilega.

„Við leituðum mikið til Píeta, við saman og hann einn, og það er ofsalega gott að það sé svona þjónusta fyrir ungt fólk sem ekki kostar hálfan handlegg,“ segir hún og að eftir að Þorlákur Ingi dó hafi fjölskyldan öll getað sótt þjónustu þar.

„Þess vegna hljóp ég fyrir þau síðast en í ár breyti ég til og ætla að hlaupa fyrir Sorgarmiðstöðina af því að við fengum líka mjög góða aðstoð, aðstandendur og vinir hans, frá Sorgarmiðstöðinni.“

Sesselja og Þorlákur Ingi. Hann var alltaf mikill gleðigjafi. Aðsend

Sesselja segist sjálf hafa nýtt sér þjónustu Sorgarmiðstöðvarinnar fyrir syrgjendur en í boði hjá miðstöðinni er til dæmis stuðningshópastarf fyrir ólíka hópa syrgjenda. Til dæmis eru hópar fyrir fólk sem hefur upplifað barnsmissi, makamissi, systkinamissi, fólk sem hefur misst úr fíkn og fyrir fólk sem hefur misst úr sjálfsvígi, eins og Sesselja.

Mikilvægt að hitta aðra í sömu sporum

Einnig er í boði jafningjastuðningur þar sem fólki er boðið að hitta einhvern í sömu sporum og Sesselja hefur tekið að sér, fyrir hönd miðstöðvarinnar, að hitta fólk í sömu sporum og hún var í fyrir fimm og hálfu ári.

„Ég hef verið að hitta fólk sem hefur misst einhvern í sjálfsvígi. Þeir hafa hringt í mig og spurt hvort ég treysti mér til að hitta þá manneskju sem þarf að tala við einhvern, því að jafningjastuðningur er, myndi ég segja, mikilvægasti hlekkurinn í sorgarúrvinnslu. Að tala við einhvern annan sem hefur upplifað það sama.“

Sorgarmiðstöðin hafi algjörlega gripið fjölskylduna.

„Eftir fráfall Þorláks okkar var það frábært fólk á vegum Sorgarmiðstöðvarinnar sem greip okkur fjölskylduna, ásamt mörgum öðrum sem Þorlákur Ingi hafði snert með nærveru sinni,“ segir Sesselja.

„Ég segi stundum að það sé lán í óláni að ég hafi verið að vinna með Guðrúnu Jónu Guðlaugsdóttur, sem er nú ein af þeim sem komu að stofnun Sorgarmiðstöðvarinnar,“ segir hún og að eftir fráfall Þorláks hafi hún bent henni, og dætrum hennar, systrum Þorláks, á starf Sorgarmiðstöðvarinnar.

Betra að tala um hlutina

Hún segir hvern og einn þó þurfa að finna sinn takt og sín bjargráð.

„Mér finnst mjög gott að geta talað um þetta, mér finnst það betra en að við tölum alltaf um Þorlák eins og hann sé bara einhvers staðar. Hann er og verður alltaf hluti af okkur. Þannig að mér finnst mjög gott að geta talað um þetta og einmitt, að geta hjálpað öðrum sem eru í þessari stöðu, því að þetta er ekki auðvelt og maður gerir þetta ekki einn.“

Sesselja hleypur hálfmaraþon í minningu sonar síns. Vísir/Birta Rán

Sesselja segir það hennar upplifun að maður verði að hafa eitthvað til að koma sér í gegnum svona reynslu og til að halda lífi.

„Mér finnst mjög mikilvægt að geta gefið af sér, því að maður sjálfur fann hversu mikilvægt það var þegar maður sjálfur var brotinn og algjörlega í molum.“

Hún segir fjölskylduna reyna að verja sem mestum tíma saman til að sýna hvert öðru stuðning. Til dæmis hafi þau hist í kirkjugarðinum hjá Þorláki Inga meðan á sólmyrkvanum stóð.

„Mér fannst það svo lýsandi dæmi um að vera í myrkrinu. Ég var alltaf að segja við Þorlák að þetta myndi verða betra, að það yrði aftur betra. Í sólmyrkvanum, þótt hann færi yfir og það yrði allt svart og engin von, þá kemur alltaf aftur sólin, birtan inn í líf manns. Þannig að mér fannst þetta svo táknrænt,“ segir hún og heldur áfram:

„Svo hafa náttúrulega litlu barnabörnin mín stækkað í hópnum og við tölum um Þorlák við þau þannig að þau kynnist honum, þótt hann sé ekki hér. Mér finnst það mjög mikilvægt,“ segir hún og að eftir því sem þau eldist séu þau farin að spyrja meira um hann.

Flókið en mikilvægt að skýra fyrir börnum

Frændi hans hafi einmitt byrjað að spyrja í kirkjugarðinum hvað Þorlákur hafi verið gamall þegar hann dó og af hverju hann dó.

„Maður reynir auðvitað að segja sex ára barni á nærgætinn hátt að hann hafi verið veikur. Börn eru svo opin og heiðarleg og þau eru ekkert að fara eitthvað í kringum hlutina, þau vaða í það sem kemur upp í huganum og spyrja mann. Við höfum sagt honum að hann hafi verið veikur í höfðinu, honum hafi liðið mjög illa og hann hafi ekki getað verið hjá okkur. Maður reynir að fara fínt í það, en ég vil á sama tíma ekki fela neitt.“

Þorlákur var opinn og vinamargur strákur. Aðsend

Sesselja segist í eðli sínu opin manneskja og að hún hafi frá upphafi viljað vera opin um fráfall Þorláks.

„Ég fer ekkert í kringum þetta. Svona er þetta bara, svona er lífið. Það er ekki alltaf með manni. Það er svo margt með hann Þorlák minn sem ég er búin að sjá núna. Hann er búinn að snerta við svo mörgum og hann var líka svo opin manneskja og rosalega viðkvæm sál. Hann tók mikið inn á sig, en ég sé núna hversu margt hann gaf öðrum á þessari stuttu ævi sinni,“ segir hún og að hún sé enn að hitta fólk sem segi henni sögur af honum sem hún hefur ekki áður heyrt.

„Mér þykir alltaf ótrúlega vænt um það og það hefur margt fallegt komið út frá hans dauða. Það er ekki eins og hann hafi dáið til einskis. Eins og allt sem við höfum upplifað, vegna þess að hann dó, er fallegt og við hefðum ekki upplifað það. Þannig ég held að það sé ástæða fyrir þessu öllu. Það er allavega mín sýn á þetta.“

En finnst þér ekki magnað að geta litið á þetta svona núna?

„Jú, guð minn góður, fyrsta hálfa árið man ég ekki. Maður er gjörsamlega dofinn. Fyrstu tvö, þrjú árin, ég var alveg frá vinnu í eitt og hálft ár næstum því. Bara það að reyna að reyna að ná fótunum aftur undir sig og auðvitað vera til staðar fyrir hin börnin sín og fólkið í kringum sig. Það er val hvernig maður ætlar að takast á við svona mikla sorg, og maður þurfti að velja þetta. Ég hef alveg séð hina hliðina líka,“ segir hún ögn meyr.

Ekki auðvelt val

„Það er ekkert auðvelt en þetta er val, og við verðum að velja lífið. Hann hefði viljað það. Ég veit það því við áttum þetta samtal nokkrum sinnum áður en hann dó. Hann var opinn um líðan sína og um það hversu illa honum leið. Hann sagði mér að hann gæti ekki lifað lengur en honum langaði samt ekki til að deyja. Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana. Við áttum allskonar samræður, svakalega djúpar, þannig að ég veit alveg að hann vildi að við myndum halda áfram með lífið. Ég veit að hann er ánægður með það. En ég þekki alveg fólk mjög nærri mér sem lokar sig af og lifir ekki lífinu. Það er eitthvað sem ég gat ekki hugsað mér og mér fannst það ekki í hans anda.“

Þorlákur Ingi hafi, þrátt fyrir mikla vanlíðan sína, verið afar lífsglaður drengur allt sitt líf.

„Hann var mjög opinn, hress, alltaf gleðipinninn alls staðar og allir töluðu um það. Hann hafi einhvern veginn tekið að sér fólk sem leið illa og reynt að láta þeim líða betur. Þá held ég að honum hafi liðið betur. Þegar maður hugsar til baka er svo margt sem maður sér núna öðruvísi, og hvernig þetta fór.“

Þorlákur Ingi var aðeins 21 árs þegar hann lést.Aðsend

Sesselja er spennt að hlaupa í minningu Þorláks Inga í maraþoninu í ár. Hún ætlaði að hlaupa með manninum sínum, Eyjólfi Þór Jónassyni, en hann er meiddur þannig að hann verður í stuðningsteyminu með dætrum Sesselju, systrum Þorláks, Ástrós Elmu og Þorbjörgu Lilju.

„Ég á mikið stuðningslið og hef líka verið í hlaupahópi FH og þau ætla að hlaupa líka,“ segir hún og að þau hafi líka veitt henni mikinn stuðning og hlaupið með henni til stuðnings Píeta.

„Maður finnur svo mikinn stuðning frá fólkinu sínu og vinum, og eins og ég segi, maður gerir þetta ekki einn.“

Hún segir jafningjastuðninginn geta gefið mikla von.

„Ég man að ég horfði á Guðrúnu Jónu, sem missti son sinn í sjálfsvígi 2010, og sá bara glæsilega konu á fullu í öllu og ég var bara svona: „Í alvöru, hvernig getur hún þetta?“ Ég hugsaði að ég gæti ekki lífið. Á þessum tímapunkti heldur maður auðvitað að maður muni ekki lifa þetta af. En svo sér maður annað fólk og þess vegna er þessi jafningjastuðningur svo gríðarlega mikilvægur. Að einmitt að heyra í fólki og sjá að það er „þarna“ á meðan ég er „hér“,“ segir Sesselja og að hún hugsi mikið um þetta þegar hún tekur að sér jafningjastuðning.

„Þá hugsa ég: vá, ég var líka þarna,“ og að það hjálpi henni líka til að sjá hversu langt hún hefur náð.

Hægt að vera sorgmæddur og glaður á sama tíma

„Það er svo gott að geta talað við manneskju sem er búin að ganga í gegnum það sama og sjá hvert hún er komin og að þetta er hægt, að það sé hægt að lifa lífinu og muna að það má alveg vera glaður og sorgmæddur í einu.“

Hún upplifi það oft.

„Manni kannski líður ekkert sérstaklega vel en ég hef samt reynt að drífa mig inn í ákveðnar aðstæður og reyni það, oft er það mjög gott, en samt er ég kannski rosalega leið inni í mér, en get verið glöð á sama tíma. Það er svo skrítið þetta líf. Ég er búin að upplifa svo mikið af fallegum mómentum. Hans dauði er auðvitað það hræðilegasta sem að nokkur manneskja þarf að díla við en það hefur kennt manni svo margt. Mér finnst ég vera miklu sterkari heldur en ég var áður en hann dó. Stundum hef ég komið sjálfri mér á óvart hverju ég hef náð að áorka.“

Sex ár verða næstu jól frá því að Þorlákur Ingi lést. Frænka Þorláks Inga, Jóhanna Jörgensen, samdi þetta ljóð eftir að hann féll frá. Þorlákur og Jóhanna voru systkinabörn. Vísir/Birta Rán

Hún segir fimm ár í raun ekki mikinn tíma og það sé magnað að hugsa til þess hvar hún og fjölskyldan eru í dag.

„Það er ótrúlegt hvað maður hefur einhvern veginn náð fótunum niður á jörðina. Auðvitað koma tímar þar sem það þyrmir yfir mann, upp úr þurru, maður er einhvers staðar og sorgin skellir á manni. En svo kemst maður í gegnum það. Það er mómentið og maður fer í gegnum það og svo er það búið. Svo birtir aftur, eins og á sólmyrkvanum, það var ótrúlega táknrænt.“

Sesselja ólst upp fyrir vestan, við sjóinn, og hefur í sinni sorg leitað mikið í hann.

„Ég elska sjóinn og leita mikið einmitt í það að fara í sjóinn þegar mér líður illa. Að synda í sjónum hefur hjálpað mér mjög mikið í minni úrvinnslu. Þetta er svona öldurót, stundum er sjórinn lygn og stundum er hann aðeins meira, og svo er hann stundum alveg kreisí. Þetta er svolítið þannig hjá manni, lífið.“

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.

#enginn #nema #vanlíðan #þekkir #þessa


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262921063d/-thessa-vanlidan-thekkir-enginn-nema-ad-hafa-upplifad-hana-

📰 Aðrar fréttir

Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
📅 03.10.2026 👁️ 1
Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
Tveir umsjónarmenn eins vinsælasta fréttaskýringarþáttar í heimi um sönn sakamál líkja rannsóknarlögreglumanni sem leysti morðmál, þar sem maður var m...
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir Hvarf lít­ils hjarnskafls í Esj­unni er smá­vægi­leg­ur at­burð­ur í sam­an­burði við h...
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
New York Times greinir frá því að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum hafi upplýst strandgæsluna um að samskipti við flugvélina hefðu rofnað um klukkan s...
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
📅 03.10.2026 👁️ 1
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
Frank Strada, fangelsismálastjóri í Tennessee í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér. Það gerir hann í kjölfar þess að aftaka Christu Pike mistókst á miðv...
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
📅 03.10.2026 👁️ 2
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
Umboðsmaður Alþingis hefur upplýst atvinnuvegaráðuneytið um að til skoðunar sé að embættið taki upp frumkvæðisathugun vegna ítrekaðra kvartana yfir þe...
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
Gunna Dís og Fannar Sveinsson, sem stýrðu skemmtidagskrá í söfnunarþætti fyrir endurbætur á Reykjalundi slógu á létta strengi í viðtali við Svein Guðm...
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
Pike survived two lethal injections on Wednesday and is currently in critical condition in hospital.
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
Þremenningarnir Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Steindi Jr. hafa gert það að árlegri hefð að halda bingó á haustin og í ár verður engin breyting á....
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
📅 03.10.2026 👁️ 2
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
Aðeins um 2% bandarískra heimila greiddu fyrir gervigreindarþjónustu í apríl síðastliðnum, samkvæmt nýrri samantekt fjárfestingarfélagsins Andreessen ...
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
📅 03.10.2026 👁️ 2
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
Fréttastofa RÚV hlýtur töluverða gagnrýni á Facebook-síðu sinni fyrir að birta mynd frá Jökuldal þar sem alvarlegt umferðarslys átti sér stað fyrr í d...
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega Alma Möller heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur rætt við Ingu Sæ­land fé­lags­mála­ráð­herra um óljós mörk á ...
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
Samkvæmt greiningu sem sambandið fékk hagfræðing frá Context til að gera eru tekjur ríkissjóðs sem rekja má til Austurlands 54,2 milljarðar á ári en ú...
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Mótmælendur kalla eftir betri löggjöf fyrir leigjendur en tillögur ríkisstjórnarinnar gegn húsnæðiskre...
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
Gul viðvörun er í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum. Á vef Veðurstofu Íslands segir að síðustu dagar hafi verið mjög úrkomusamir víða...
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
📅 03.10.2026 👁️ 1
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
„Sumir segja að hún hafi bara þjónað vel. Ég held að það sé hægt að breyta. Ég hef bent á það að ég vilji sjá eina löggjöf,“ segir Gylfi Dalmann Aðals...
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
📅 03.10.2026 👁️ 2
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
Ökukennari í Rangárvallasýslu furðar sig á þeirri ákvörðun Samgöngustofu og Frumherja að hætta að leyfa þeim sem eru að læra á bíl að taka ökupróf, ve...
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
Greint var frá rannsókninni á Vísi en hún er unnin af alþjóðlegri hugveitu að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og er sú fyrsta sinnar tegundar. Um ...
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
📅 03.10.2026 👁️ 2
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
Mynd Það skiptir máli hvort stjórnað er af félagshyggju eða frjá
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
Nanna er rafmagnsverkfræðingur og stofnaði Knittable til að hjálpa prjónurum að vera sjálfstæðari í sköpun sinni með hjálp tækni. Thelma er fatahönnuð...
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
📅 03.10.2026 👁️ 2
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
Um klukkan hálf tólf í dag barst lögreglu á Austurlandi tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Þetta kemur fram í tilky...
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út að Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi vegna alvarlegs hópslyss. Hópslysaáætlun var virkjuð.Átt...
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
Langtímaatvinnuleysi er að aukast, segir forseti ASÍ sem telur stýrivexti Seðlabankans koma niður á samfélaginu öllu. Formaður efnahags- og viðskiptan...
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
📅 03.10.2026 👁️ 2
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
Shoko Kawata vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar hún tilkynnti að hún hygðist taka sér fæðingarorlof, fyrst allra bæjarstjóra í Japan. Fyrir ákvörð...
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
Kristrún miðlæg í starfsaftökum Fréttin3. október 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Starfsaftökur í stjórnarráð...
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
📅 03.10.2026 👁️ 2
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
The This Morning presenter said she believes she experienced a panic attack on Friday's show.
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
Truflun veldur því að ekki virkar að uppfæra stafræn ökuskírteini í Ísland.is smáforritinu um þessar mundir. Stafrænu ökuskírteinin eru því ekki nothæ...
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
Skipulögð mótmæli fara fram í meira en 50 borgum og bæjum á Spáni í dag. Mótmælin snúa að húsnæðismálum, ekki síst leigumarkaðnum.Mótmælin hófust efti...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
Það eru 20 skipulagðir glæpahópar starfandi á Íslandi, hópar sem í eru bæði Íslendingar og útlendingar og starfa í fleiri en einu landi. Mikilvægt er ...
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
📅 03.10.2026 👁️ 2
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest brottvísun konu frá Namibíu og tveggja ára endurkomubann. Konan sagðist hafa yfirgefið íslenskan eiginmann sin...
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
📅 03.10.2026 👁️ 2
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
Saksóknari í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem rannsakar árás flugmanns á flugstjóra FlyDubai segir að hann hafa ráðist að honum með öxi og hann ha...
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
Ökumennirnir sýna þá ökuhraðann á mælaborðinu og sýna sjálfa sig smella öryggisbeltinu af áður en þeir deila myndefninu á samfélagsmiðlum. Orðið ökuní...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
Hópslysaáætlun hefur verið að virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal.
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi fyrst frá. Tvær þyrlur hafa verið kallaðar út vegna slyssins. Lögregl...
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
Greint verður frá nýjust vendingum í lifandi fréttavakt hér neðst.  Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi f...
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
📅 03.10.2026 👁️ 3
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs furðar sig á viðbrögðum Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæði...
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
📅 03.10.2026 👁️ 3
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu...
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
📅 03.10.2026 👁️ 2
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
Housing protests are taking place across four Canary Islands this weekend as campaigners demand action over rents, evictions and access to affordable ...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 3
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal á Austurlandi. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsin...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal á Austurlandi.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsins...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á ...
Smella af sér bílbeltunum á ógnar­hraða og breytingar í Kerlingar­fjöllum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Smella af sér bílbeltunum á ógnar­hraða og breytingar í Kerlingar­fjöllum - Vísir
Orðið ökuníðingur sé notað í jákvæðri merkingu meðal afmarkaðs hóps.  Við kynnum okkur einnig atvik sem varð á Hólmsheiðinni í gær þar sem að flugvél ...
Electricity blackout affects 70,000 people in Lanzarote and disrupts drinking-water supply
📅 03.10.2026 👁️ 3
Electricity blackout affects 70,000 people in Lanzarote and disrupts drinking-water supply
A major power failure across Lanzarote this morning shut down the island’s desalination plants, interrupting drinking-water production and prompting w...
Protesters across Spain demand action over housing crisis
📅 03.10.2026 👁️ 3
Protesters across Spain demand action over housing crisis
More than 50 protests are planned to take place on Saturday after the government failed to get emergency legislation through parliament.
Bubbi og Kristmundur Axel tóku lagið fyrir Reykjalund
📅 03.10.2026 👁️ 3
Bubbi og Kristmundur Axel tóku lagið fyrir Reykjalund
Bubbi Morthens og Kristmundur Axel tóku saman lagið „Kominn heim“ í söfnunar- og skemmtiþættinum Endurhæfum Reykjalund í gærkvöldi. Meira en 111 millj...
Gul við­vörun eftir stóra skriðu­ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Gul við­vörun eftir stóra skriðu­ - Vísir
Lægð gengur yfir landið í dag. Þrátt fyrir að heildarúrkoman sem fylgi henni sé ekki talin veruleg með tilliti til skriðuhættu getur lítil viðbótarúrk...
Fimleikafélagið Björk órekstrarhæft við óbreyttar aðstæður - Mælt með að Hafnarfjarðarbær stöðvi greiðslur ef ekkert breytist
📅 03.10.2026 👁️ 3
Fimleikafélagið Björk órekstrarhæft við óbreyttar aðstæður - Mælt með að Hafnarfjarðarbær stöðvi greiðslur ef ekkert breytist
Fluttar voru fréttir af því í vikunni að vegna fjárhagserfiðleika hefði Fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði gripið til þess að segja öllum þjálfurum f...
Vikulokin – Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður
📅 03.10.2026 👁️ 3
Vikulokin – Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður
Kjaramál og atvinnuleysi, Landsvirkjun og samtal forseta Íslands og ungs fólks eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Þátturinn er í þremur hlutum.Ingvar...
Illa brugðið en heill á húfi - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Illa brugðið en heill á húfi - Vísir
Þetta staðfestir flugmaður flugvélarinnar í samtali við fréttastofu. Hann er heill á húfi þótt að honum hafi brugðið illa við atvikið. Hann baðst unda...
Ráðast í aðgerðir vegna sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum
📅 03.10.2026 👁️ 3
Ráðast í aðgerðir vegna sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum
Neytendaverndarstofnanir í Evrópu beina spjótum sínum að níu tölvuleikjaframleiðendum í samhæfðum aðgerðum. Markmið aðgerða samstarfsnets stofnananna ...