Rannsóknir eru hafnar á bóluefni við bundibugyo-afbrigði ebóluveirunnar. Ebólufaraldur sem geisar í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó er orðinn sá mannskæðasti í sögu landsins. Frá því í maí, þegar Alþjóðaheilbrigðisstofnunin lýsti yfir faraldri, hafa 2.325 látist af völdum veirunnar.
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir að Oxford-háskóli í samstarfi við aðra sé byrjaður á tilraunum á nýju bóluefni. Þar á meðal séu klínískar rannsóknir á ungu heilbrigðu fólki. Þær séu gerðar til að kanna öryggi bóluefnisins og mæla mótefnamyndun áður en viðameiri rannsóknir eru gerðar. Það geti tekið nokkurn tíma að þróa bóluefnið.
„Það tekur örugglega einhverja mánuði en það er reynt að flýta því sem hægt er, ekki með því að sleppa því sem er nauðsynlegt eða taka einhverjar áhættur en þar sem hægt er að gera hlutina hratt og vinna vel er það gert,“ sagði Guðrún í kvöldfréttum Sjónvarps.
Ekki hætta á heimsfaraldri
Guðrún segir ekki hættu á heimsfaraldri en að sjúkdómurinn geti borist milli landamæra. „Ebóla smitast á ákveðinn hátt. Það þarf snertingu við líkamsvessa frá veiku fólki.“
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur fjölgað faraldsfræðingum og heilbrigðisstarfsfólki í Kongó til að reyna að bregðast við óvenjuhraðri útbreiðslu veirunnar.
„Það er auðvitað mjög alvarlegt ástand þarna á svæðinu. Faraldurinn hefur verið að dreifast út þar, er kominn í upp í sex héruð í Kongó. Þannig það þarf að reyna að koma í veg fyrir þetta og stoppa faraldurinn og koma í veg fyrir þessi smit og það er það sem þessar aðgerðir ganga út á.“ segir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir.