Sýning Bjarkar bæði væmin og stór­kost­leg og leggur til stofnun Bjarkarsafns - Vísir

Sýning Bjarkar bæði væmin og stór­kost­leg og leggur til stofnun Bjarkarsafns - Vísir

Sýning Bjarkar bæði væmin og stór­kost­leg og leggur til stofnun Bjarkarsafns - Vísir

Sýningarnar Ummyndlingar eftir James Merry og echolalia eftir Björk opnuðu báðar í Listasafni Íslands 30. maí við opnun Listahátíðar í Reykjavík og taka yfir listasafnið í allt sumar. 

Sýningarnar hafa notið töluverðra vinsælda, ekki síst hjá erlendum ferðamönnum, en einnig hefur borið á gagnrýni innan myndlistarbransansans. Snorri Ásmundsson tjáði sig um sýningu Bjarkar í byrjun síðasta mánaðar og kallaði hana flopp sem virtist byggja á orðspori frekar en sterkum hugmyndafræðilegum grunni.

„Þetta er ein af þessum sýningum sem virðist vera mjög ánægð með sjálfa sig, en gleymir að gefa gestinum ástæðu til að vera jafn hrifinn. Í stuttu máli: James Merry bjargar því sem bjargað verður. Hitt er að mestu leyti asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump,“ skrifaði Snorri.

Listfræðingurinn Hlynur Helgason skrifaði í síðustu viku listgagnrýni um sýningarnar tvær, gaf sýningu James þrjár stjörnur af fimm en Bjarkar aðeins eina og hálfa og sagði að safnið væri á villigötum með sýningunni. 

Hlynur Helgason er listfræðingur og myndlistarmaður.Vísir/Vilhelm

Með því að leggja alla sýningarsali safnsins undir sýningarnar væri safnið ekki aðeins að bjóða poppmenningu inn fyrir dyrnar heldur að láta hana móta umgjörð safnsins, röksemdir þess og mælikvarða. Safnrými sem ætti að þjóna myndlist léti lögmál tónlistarflutnings, sviðsmyndar og markaðssetningar taka yfir.

„Niðurstaðan er þokkaleg sýning sviðsmuna sem hefur myndrænt gildi, í tilviki James Merrys, og kostnaðarsöm framsetning á tónlistarvídeóum sem virðist öðru fremur þjóna þeim tilgangi að markaðssetja nýja plötu annars áhugaverðs tónlistarmanns en á því miður lítið sammerkt með hlutverki safnsins í að kynna og efla íslenska samtímalist. Þegar popptónlistin er ráðandi afl í sýningu höfuðsafnsins á kostnað sjálfstæðrar myndlistar er hætt við að safnið sé farið að þjóna öðrum heimi en þeim sem því er ætlað,“ skrifaði Hlynur í dómi sínum.

„Við ættum að heiðra okkar mesta og frægasta listamann“

Hallgrímur Helgason, rithöfundur og myndlistarmaður, lagði orð í belg um sýningarnar tvær á Fésbókinni um helgina og velti þar fyrir sér verkum poppstjarna í listasöfnum. Slíkt væri skiljanlega umdeilt en hugsanlega þyrftu Íslendingar að horfa á sýningarnar úr meiri fjarlægð.

„Listasafn Reykjavíkur reið á vaðið með sýningu Jónsa fyrir nokkrum árum, sem lagði undir sig safnið í Tryggvagötu heilt sumar við misjafna hrifningu myndlistarfólks en mikla ánægju túrista. Og nú er það Listasafn Íslands sem flaggar Björk í allt sumar við litla hrifningu gagnrýnanda og myndlistarbransa,“ skrifar Hallgrímur.

Hallgrímur Helgason á listasýningu.Sóllilja Tindsdóttir

„Í gær streymdu hinsvegar erlendir ferðamenn inn í anddyrið og um salina, virtust allir hæstánægðir. Kannski verðum við að horfa á þetta úr fjarlægð. Björk og Sigur Rós eru stærstu listamennirnir okkar, frægustu nöfnin, þau sem laðað hafa flesta til landsins, og maður getur vel skilið að listasöfnin opni dyr sínar (þótt maður hefði líka skilið að þær yrðu lokaðar.) Íslandsferðin fullkomnast með því að fólk fær að sjá eftirlætis artistann sinn installera í listasafni á heimaslóð. En er þetta myndlist? Hvað með allt lókal listafólkið sem aldrei fær að sýna í söfnunum, allir strögglandi listamennirnir sem aldrei gáfu út plötu og fórna lífi sínu fyrir myndlist? Fá þau í staðinn að performera á sviðinu í Eldborg?“ skrifar hann.

Hallgrímur sagði salina fjóra á Listasafni Íslands sem eru undirlagðir verkum Bjarkar og James vera misjafna.

„Væmin og klisjukennd málverk hreyfast með lagi Bjarkar í einum sal á meðan túristarnir fá sína Íslandsferðarfullnægingu í öðrum þar sem hún syngur með Hamrahlíðarkórnum og eldunum á Reykjanesi. Í stóra salnum er hinsvegar hápunktur sýningarinnar: Risastórt lag Bjarkar um móður sína og andlát hennar, Ancestress, einskonar requiem fyrir nýja öld, tignarlegt og óhuggulegt í einfaldleika sínum, myndbandið stórkostlegt og textinn hrein ljóðlist. „My skull is my cathedral…“ - dómkirkjan þar sem útför móður hennar er gerð. Þetta er stór list sem á heima í hvaða safni sem er,“ skrifar Hallgrímur.

Björk og James Merry opnuðu sýningarnar echolalia og Ummyndlingar (Metamorphlings) á Listasafni Íslands. Eygló Gísla

„Í efri sal er síðan sýning á grímum James Merry, við þekkjum þær í notkun Bjarkar. Þetta er veikasti hluti sýningarinnar, andríkt handverk sem fáum dettur í hug að kalla myndlist. Ég get það allavega ekki. Þegar maður fer í söfn erlendis þá er stór munur á því að skoða málverk Delacroix annarsvegar og ganga svo inn í næsta herbergi þar sem sýnd eru hálsmen og armbönd drottningar.“

James Merry vinnur grímur sínar úr fjölbreyttum efnivið.

Hallgrímur sagði grímurnar þó myndu sóma sér vel á safni sem væri líklega kominn tími til að hugsa: sérstöku safni tileinkuðu Björk.

„Við ættum að heiðra okkar mesta og frægasta listamann með slíku safni þar sem vídeóin, búningarnir, sögurnar, ljósmyndirnar, textarnir og allt fá notið sín. Þar sem enginn þarf að kvarta eða spyrja sig hvort þetta sé myndlist, þar sem svarið er einfalt: Þetta er Björk!“ skrifar Hallgrímur að lokum

Fólk yrði ekki sátt ef Snorri Ásmunds sæi um brekkusönginn

Færsla Hallgríms á Fésinu vakti ágætis viðbrögð og hafa ýmsir málsmetandi tjáð sig um sýningar Bjarkar á þræðinum. Arnar Eggert Thoroddsen menningarrýnir leggur þar orð í belg.

„Eitt sem þarf að ræða er að há- og lágmenningarskiptingin er sprelllifandi, þrátt fyrir að margir vilji halda því fram að hún sé það ekki, og þeir sem afneita henni eru einkanlega þeir sem halda henni við,“ skrifar Arnar.

Arnar Eggert Thoroddsen

Hann segir tal um innreið poppmenningar í listasöfn með fyrirlitningartóni og hneykslan yfir Nóbelsverðlaunum Bobs Dylan vera „ekkert annað en gamaldags, hræðsludrifin hliðvarsla“ sem er ætlað að passa upp á „uppdiktuð fagurfræðileg gildi“.

„Það sem er hjákátlegast er að hámenningarfólkinu finnst í góðu lagi að stíga í vænginn við poppið - þegar það hentar. Þetta er frábært í einu samhengi, drasl í öðru. Á meðan mitt fólk, poppararnir, alþýðulistafólkið, dægurlistagengið tekur í höndina á Bríet og Brahms án þess að hugsa út í það. Öllu hrært saman í gleði og sköpunarþrá á meðan hámenningarmannskapurinn fer á límingunum yfir því hvar skal setja hvað...“

Bergsteinn hefur ritstýrt menningarhluta Kastljóss síðustu ár.

Bergsteinn Sigurðsson, sjónvarpsmaður á Rúv, er ekki sannfærður um að málið snúist um há- og lágmenningu. 

„Við sjáum samskonar togstreitu í celebvæðingu barnabókaútgáfu í Bretlandi, sem ég held að stafi ekki af því að barnabækur séu svo upphafið listform. Þetta gengur líka í báðar áttir. Það myndi svo sannarlega heyrast hljóð úr horni ef Snorra Ásmundssyni yrði falið að sjá um brekkusönginn eða Shoplifter væri headlænið á Tónaflóði á Menningarnótt,“ skrifar Bergsteinn.

Myndlistarkonan Harpa Björnsdóttir segist hrifin af því þegar stigið er yfir landamæri í listum.

„Þess vegna hef ég undanfarin ár hrifist hvað mest af nútímadansi, en þar er trúlega mesti frumleikinn í listgreinum í dag, allt galopið fyrir tengslum við aðrar listgreinar, forminu bylt og áhættur teknar, á meðan t.d. bókmenntirnar eru að festast í formúlum, engin formbylting þar. Björk hefur unnið mikið á ákveðnum mærum, vinnur með hið sjónræna og gengur óhikað til samstarfs við listamenn úr öðrum greinum lista og tónlistar.“

Ármann Reynisson, Harpa Björnsdóttir og Erla Þórarinsdóttir.Listasafn Reykjavíkur

Önnur sem kemur Björk til varnar er rithöfundurinn Kikka Sigurðardóttir sem segir myndlist vera meira en málverk. Hróp og köll myndlistarmanna um hvað megi og megi ekki setja í sali listasafna veki upp spurningar um minnimáttarkennd í garð Bjarkar.

„Björk er fyrir löngu hætt að vera bara tónlistarkona. Allt sem hún gerir tengir saman nokkur listform sem mynda eina heild. Það að myndlistamenn haldi að hennar tjáning í Listasafni Íslands sé list sem sé samboðin safninu sýnir fyrst og fremst takmörkun þeirra sjálfra,“ skrifar Kikka.

„Þessi hróp og köll myndlistamanna um það hvað má og hvað má ekki setja í sali listasafna vekur upp spurningar um minnimáttarkennd og öfund yfir frjóum og gjöfulum huga Bjarkar sem hefur komið henni á þann stað að vera fjölhæfur listamaður.“

#bjarkar #bæði #stórkostleg #sýning #væmin


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262904108d/syning-bjarkar-baedi-vaemin-og-stor-kost-leg-og-leggur-til-stofnun-bjarkarsafns

📰 Aðrar fréttir

Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
📅 03.10.2026 👁️ 1
Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
Tveir umsjónarmenn eins vinsælasta fréttaskýringarþáttar í heimi um sönn sakamál líkja rannsóknarlögreglumanni sem leysti morðmál, þar sem maður var m...
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir Hvarf lít­ils hjarnskafls í Esj­unni er smá­vægi­leg­ur at­burð­ur í sam­an­burði við h...
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
New York Times greinir frá því að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum hafi upplýst strandgæsluna um að samskipti við flugvélina hefðu rofnað um klukkan s...
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
📅 03.10.2026 👁️ 1
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
Frank Strada, fangelsismálastjóri í Tennessee í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér. Það gerir hann í kjölfar þess að aftaka Christu Pike mistókst á miðv...
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
📅 03.10.2026 👁️ 2
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
Umboðsmaður Alþingis hefur upplýst atvinnuvegaráðuneytið um að til skoðunar sé að embættið taki upp frumkvæðisathugun vegna ítrekaðra kvartana yfir þe...
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
Gunna Dís og Fannar Sveinsson, sem stýrðu skemmtidagskrá í söfnunarþætti fyrir endurbætur á Reykjalundi slógu á létta strengi í viðtali við Svein Guðm...
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
Pike survived two lethal injections on Wednesday and is currently in critical condition in hospital.
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
Þremenningarnir Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Steindi Jr. hafa gert það að árlegri hefð að halda bingó á haustin og í ár verður engin breyting á....
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
📅 03.10.2026 👁️ 2
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
Aðeins um 2% bandarískra heimila greiddu fyrir gervigreindarþjónustu í apríl síðastliðnum, samkvæmt nýrri samantekt fjárfestingarfélagsins Andreessen ...
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
📅 03.10.2026 👁️ 2
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
Fréttastofa RÚV hlýtur töluverða gagnrýni á Facebook-síðu sinni fyrir að birta mynd frá Jökuldal þar sem alvarlegt umferðarslys átti sér stað fyrr í d...
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega Alma Möller heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur rætt við Ingu Sæ­land fé­lags­mála­ráð­herra um óljós mörk á ...
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
Samkvæmt greiningu sem sambandið fékk hagfræðing frá Context til að gera eru tekjur ríkissjóðs sem rekja má til Austurlands 54,2 milljarðar á ári en ú...
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Mótmælendur kalla eftir betri löggjöf fyrir leigjendur en tillögur ríkisstjórnarinnar gegn húsnæðiskre...
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
Gul viðvörun er í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum. Á vef Veðurstofu Íslands segir að síðustu dagar hafi verið mjög úrkomusamir víða...
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
📅 03.10.2026 👁️ 1
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
„Sumir segja að hún hafi bara þjónað vel. Ég held að það sé hægt að breyta. Ég hef bent á það að ég vilji sjá eina löggjöf,“ segir Gylfi Dalmann Aðals...
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
📅 03.10.2026 👁️ 2
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
Ökukennari í Rangárvallasýslu furðar sig á þeirri ákvörðun Samgöngustofu og Frumherja að hætta að leyfa þeim sem eru að læra á bíl að taka ökupróf, ve...
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
Greint var frá rannsókninni á Vísi en hún er unnin af alþjóðlegri hugveitu að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og er sú fyrsta sinnar tegundar. Um ...
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
📅 03.10.2026 👁️ 2
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
Mynd Það skiptir máli hvort stjórnað er af félagshyggju eða frjá
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
Nanna er rafmagnsverkfræðingur og stofnaði Knittable til að hjálpa prjónurum að vera sjálfstæðari í sköpun sinni með hjálp tækni. Thelma er fatahönnuð...
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
📅 03.10.2026 👁️ 2
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
Um klukkan hálf tólf í dag barst lögreglu á Austurlandi tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Þetta kemur fram í tilky...
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út að Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi vegna alvarlegs hópslyss. Hópslysaáætlun var virkjuð.Átt...
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
Langtímaatvinnuleysi er að aukast, segir forseti ASÍ sem telur stýrivexti Seðlabankans koma niður á samfélaginu öllu. Formaður efnahags- og viðskiptan...
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
📅 03.10.2026 👁️ 2
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
Shoko Kawata vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar hún tilkynnti að hún hygðist taka sér fæðingarorlof, fyrst allra bæjarstjóra í Japan. Fyrir ákvörð...
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
Kristrún miðlæg í starfsaftökum Fréttin3. október 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Starfsaftökur í stjórnarráð...
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
📅 03.10.2026 👁️ 2
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
The This Morning presenter said she believes she experienced a panic attack on Friday's show.
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
Truflun veldur því að ekki virkar að uppfæra stafræn ökuskírteini í Ísland.is smáforritinu um þessar mundir. Stafrænu ökuskírteinin eru því ekki nothæ...
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
Skipulögð mótmæli fara fram í meira en 50 borgum og bæjum á Spáni í dag. Mótmælin snúa að húsnæðismálum, ekki síst leigumarkaðnum.Mótmælin hófust efti...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
Það eru 20 skipulagðir glæpahópar starfandi á Íslandi, hópar sem í eru bæði Íslendingar og útlendingar og starfa í fleiri en einu landi. Mikilvægt er ...
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
📅 03.10.2026 👁️ 2
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest brottvísun konu frá Namibíu og tveggja ára endurkomubann. Konan sagðist hafa yfirgefið íslenskan eiginmann sin...
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
📅 03.10.2026 👁️ 2
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
Saksóknari í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem rannsakar árás flugmanns á flugstjóra FlyDubai segir að hann hafa ráðist að honum með öxi og hann ha...
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
Ökumennirnir sýna þá ökuhraðann á mælaborðinu og sýna sjálfa sig smella öryggisbeltinu af áður en þeir deila myndefninu á samfélagsmiðlum. Orðið ökuní...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
Hópslysaáætlun hefur verið að virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal.
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi fyrst frá. Tvær þyrlur hafa verið kallaðar út vegna slyssins. Lögregl...
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
Greint verður frá nýjust vendingum í lifandi fréttavakt hér neðst.  Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi f...
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
📅 03.10.2026 👁️ 3
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs furðar sig á viðbrögðum Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæði...
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
📅 03.10.2026 👁️ 3
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu...
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
📅 03.10.2026 👁️ 2
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
Housing protests are taking place across four Canary Islands this weekend as campaigners demand action over rents, evictions and access to affordable ...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 3
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal á Austurlandi. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsin...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal á Austurlandi.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsins...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á ...
Smella af sér bílbeltunum á ógnar­hraða og breytingar í Kerlingar­fjöllum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Smella af sér bílbeltunum á ógnar­hraða og breytingar í Kerlingar­fjöllum - Vísir
Orðið ökuníðingur sé notað í jákvæðri merkingu meðal afmarkaðs hóps.  Við kynnum okkur einnig atvik sem varð á Hólmsheiðinni í gær þar sem að flugvél ...
Electricity blackout affects 70,000 people in Lanzarote and disrupts drinking-water supply
📅 03.10.2026 👁️ 3
Electricity blackout affects 70,000 people in Lanzarote and disrupts drinking-water supply
A major power failure across Lanzarote this morning shut down the island’s desalination plants, interrupting drinking-water production and prompting w...
Protesters across Spain demand action over housing crisis
📅 03.10.2026 👁️ 3
Protesters across Spain demand action over housing crisis
More than 50 protests are planned to take place on Saturday after the government failed to get emergency legislation through parliament.
Bubbi og Kristmundur Axel tóku lagið fyrir Reykjalund
📅 03.10.2026 👁️ 3
Bubbi og Kristmundur Axel tóku lagið fyrir Reykjalund
Bubbi Morthens og Kristmundur Axel tóku saman lagið „Kominn heim“ í söfnunar- og skemmtiþættinum Endurhæfum Reykjalund í gærkvöldi. Meira en 111 millj...
Gul við­vörun eftir stóra skriðu­ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Gul við­vörun eftir stóra skriðu­ - Vísir
Lægð gengur yfir landið í dag. Þrátt fyrir að heildarúrkoman sem fylgi henni sé ekki talin veruleg með tilliti til skriðuhættu getur lítil viðbótarúrk...
Fimleikafélagið Björk órekstrarhæft við óbreyttar aðstæður - Mælt með að Hafnarfjarðarbær stöðvi greiðslur ef ekkert breytist
📅 03.10.2026 👁️ 3
Fimleikafélagið Björk órekstrarhæft við óbreyttar aðstæður - Mælt með að Hafnarfjarðarbær stöðvi greiðslur ef ekkert breytist
Fluttar voru fréttir af því í vikunni að vegna fjárhagserfiðleika hefði Fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði gripið til þess að segja öllum þjálfurum f...
Vikulokin – Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður
📅 03.10.2026 👁️ 3
Vikulokin – Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður
Kjaramál og atvinnuleysi, Landsvirkjun og samtal forseta Íslands og ungs fólks eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Þátturinn er í þremur hlutum.Ingvar...
Illa brugðið en heill á húfi - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Illa brugðið en heill á húfi - Vísir
Þetta staðfestir flugmaður flugvélarinnar í samtali við fréttastofu. Hann er heill á húfi þótt að honum hafi brugðið illa við atvikið. Hann baðst unda...
Ráðast í aðgerðir vegna sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum
📅 03.10.2026 👁️ 3
Ráðast í aðgerðir vegna sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum
Neytendaverndarstofnanir í Evrópu beina spjótum sínum að níu tölvuleikjaframleiðendum í samhæfðum aðgerðum. Markmið aðgerða samstarfsnets stofnananna ...