Snorri Másson segir að það komi sér ekki á óvart að sumir blaðamenn séu pólitískir aktívistar, en telur að stærsta vandamálið sé þegar ritstjórnir leyfi slíkum sjónarmiðum að hafa áhrif á fréttaflutning og þar með trúverðugleika fjölmiðla.
Þetta segir Snorri í Spjallinu með Frosta Logasyni þar sem þeir fara yfir fjölmörg umdeild samfélagsmál.
„Eitt er að ég veit að margir blaðamenn eru í grunninn pólitískir aktívistar og það er bara veruleiki lífsins, sko. Það verður alltaf þannig og blaðamennska er þannig vettvangur að þangað sækja pólitískir aktívistar,“ segir Snorri.
Hann segir hins vegar að ábyrgðin liggi hjá ritstjórnum fjölmiðla.
„En hitt er sko hvað stór miðill með ritstjórn gerir og hversu mikið hann leyfir þessum aktívistum að misbeita miðlinum sem á að hafa ákveðinn trúverðugleika í þágu sinna eigin pólitísku markmiða, hvort sem það eru markmið eigenda eða ritstjórnar eða eitthvað slíkt.“
Segir það grafa undan trúverðugleika fjölmiðla
Snorri segir að ef slíkt viðgangist fari það smám saman að grafa undan trausti almennings.
„Hversu mikið slíku er leyft að viðgangast og hvenær það fer verulega að grafa undan trúverðugleika þessara miðla. Verulega. Að maður treysti því bara ekki að menn séu að vinna af heilum hug gagnvart því að afla frétta og segja almenningi frá fréttum.“
Að lokum nefnir hann sérstaklega ritstjórn Vísis og segir það vera mál sem miðillinn þurfi sjálfur að takast á við.
„Það er svo sem önnur saga sem ritstjórn Vísis þarf að gera upp við sjálfa sig.“
Rætt um fjölmörg hitamál
Umræðan um fjölmiðla er aðeins hluti af viðtalinu því í þættinum ræða Frosti og Snorri einnig meðal annars ESB aðild og fullveldi Íslands, evruna, regnboga- og transfána í skólum, málefni barna með kynáttunarvanda, hormónameðferðir, hlutverk Samtakanna ’78, tjáningarfrelsi, innflytjendamál, þjóðernisvitund og pólitíska skautun.
Viðtalið er aðgengilegt í heild sinni á Brotkast.is.