Landsréttur hefur staðfest ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa frá dómi ákæru á hendur konu fyrir umsáturseinelti og stófelldar ærumeiðingar gegn eiginmanni sínum. Hún var hins vegar sakfelld fyrir brot gegn nálgunarbanni sem hún hafði sjálfviljug gengist undir með hinni svokölluðu Selfossleið.Meint brot áttu sér stað vorið 2023. Konan var meðal annars sökuð um að hafa sent manninum urmul tölvupósta sem innihéldu meðal annars stórfelldar ærumeiðingar og segir ákærandi að sendingarnar hafi verið til þess valdar að valda manninum hræðslu og kvíða.
Sögð hafa tekið yfir Facebook-reikning eiginmannsins og birt ærumeiðingar um hann