Kardinálinn Victor Manuel Fernández gaf út yfirlýsingu fyrir hönd Páfagarðs í morgun, þar sem greint var frá bannfæringunni. Bræðralagið var sagt hafa klofið sig frá kaþólsku kirkjunni með gjörningnum.
Málið er fyrsta krísann sem Leó hefur þurft að takast á við en hann hefur sett það efst á forgangslistann að vinna að sameiningu og samstöðu innan kirkjunnar.
Vísir greindi frá vígslu biskupanna í morgun en um 16.500 manns sóttu athöfnina, meðal annars liðsmenn Forza Nuova og Futuro Nazionale; ítalskra öfgahægri stjórnmálaafla sem eru talin ógna möguleika Giorgiu Meloni forsætisráðherra að ná endurkjöri.