Öldruð kona lést eftir að hafa fallið fram af svölum á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi síðastliðinn sunnudag. Vísir greindi fyrstur frá málinu nú í morgun.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu barst útkall vegna málsins þann 28. júní og hefur rannsókn verið færð til miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu. Málið er rannsakað sem slys og allt bendir að svo stöddu til þess að um hörmulegt slys hafi verið að ræða.
Forstjóri Eirar, Eybjörg Hauksdóttir, segir í samtali við Vísi að starfsfólk hafi brugðist hratt við og kallað bæði lögreglu og viðbragðsaðila á vettvang. Einnig hafi Embætti landlæknis verið upplýst um atvikið og áfallateymi Rauða krossins fengið til að styðja starfsfólk.
Að hennar sögn er nú farið yfir verkferla og öryggisráðstafanir innan heimilisins til að meta hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir slysið.
„Allir hér hjá Eir eru harmi slegnir. Hugur okkar er hjá aðstandendum hinnar látnu,“ sagði Eybjörg við Vísi.