Næstum tvöfalda verð á mat handa lífeyrisþegum í Reykjavík

Velferðarráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt breytingar á gjaldskrá matarþjónustu velferðarsviðs sem fela meðal annars í sér verulega hækkun á verði máltíða fyrir lífeyrisþega. Breytingarnar eiga að taka gildi 1. september næstkomandi.
Samkvæmt tillögunni hækkar almennt verð máltíðar fyrir aðra en lífeyrisþega úr 1.915 krónum í 2.387 krónur. Verð fyrir lífeyrisþega verður 1.900 krónur en hefur hingað til verið ýmist 1.100 eða 1.190 krónur. Hækkunin nemur því allt að 800 krónum á máltíð.
Jafnframt verður gjaldskráin einfölduð þannig að sama verð gildi fyrir allar máltíðir óháð því hvar þeirra er neytt. Sérstakt akstursgjald vegna heimsendra máltíða verður fellt niður og aksturinn þess í stað innifalinn í verði matarins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar styðja breytingarnar og segja nauðsynlegt að bregðast við rekstrarvanda matarþjónustunnar.
Fulltrúi Samfylkingarinnar gagnrýndi hins vegar umfang hækkunarinnar og benti á að verð á hádegismat fyrir lífeyrisþega hækkaði um 43 til 72 prósent á sama tíma og verðbólga mælist 5,3 prósent.
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, greiddi einnig atkvæði gegn hækkuninni. Hún segir hættu á að tekjulægsta fólkið dragi úr kaupum á máltíðum vegna kostnaðarins.
„Hætta er á að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á máltíðum af fjárhagslegum ástæðum og að aðgengi að næringarríkum og reglulegum máltíðum skerðist,“ skrifar Sanna Magdalena á Facebook.
Hún gagnrýnir jafnframt ákvörðun ráðsins um að hætta við áform um nýtt framleiðslueldhús á Vitatorgi og útvista þjónustunni. Að hennar mati hefði verið betra að byggja áfram upp þekkingu og getu Reykjavíkurborgar til að annast matarþjónustuna sjálf.