Fyrstu tölur eru komnar frá Reykjanesbæ og þar er meirihlutinn fallinn en talin hafa verið 5.213 atkvæði. Samfylkingin tapar fylgi og einum bæjarfulltrúa en Sjálfstæðisflokkurinn er á miklu flugi og bætir við sig tveimur bæjarfulltrúum. Miðflokkurinn nær inn manni og Framsókn heldur sínum þremur bæjarfulltrúum.
- Framsókn: 26,1 prósent atkvæða
- Sjálfstæðisflokkur: 37,8 prósent atkvæða
- Viðreisn: 5 prósent atkvæða
- Samfylking: 18,8 prósent atkvæða
- Miðflokkur :11,1 prósent atkvæða
Núverandi meirihluti samanstendur af Samfylkingu, Framsóknarflokknum og Beinni leið en Bein leið bauð ekki fram í kosningunum. Miðað við fyrstu tölur er því meirihlutinn fallinn.