Fyrstu tölur hafa borist frá Akureyri þar sem talin hafa verið 4000 atkvæði. Þar mælast fjórir flokkar með tvo bæjarfulltrúa, L-listinn, Samfylking, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn. VG, Akureyrarlistinn og Miðflokkur ná inn einum manni.
- L-listinn, bæjarlisti Akureyrar: 18,7% og 2 fulltrúar
- Samfylking: 18,3% og 2 fulltrúar
- Sjálfstæðisflokkur: 18,2% og 2 fulltrúar
- Framsóknarflokkur: 15,5% og 2 fulltrúar
- VG: 8,3% og 1 fulltrúi
- Akureyrarlistinn: 7,5% og 1 fulltrúi
- Miðflokkur: 7,5% og 1 fulltrúi
- Viðreisn: 5,9% og ná ekki inn manni.
Núverandi sem er skipaður L-lista, Sjálfstæðisflokki og Miðflokki, er því fallinn miðað við fyrstu tölur.